Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 3. gr. laga nr. 41/1919 — Lög um landamerki o.fl.
Anna Kristín Magnúsdóttir, Óla Björg Magnúsdóttir, Stefán Smári Magnússon og Steindór Gunnar Magnússon (
Arnar Þór Stefánsson hrl)
gegn
Andrési Andréssyni, Ásrúnu Á. Olsen, Berglindi Andrésdóttur, Bergþóru Vilhjálmsdóttur, Birnu Ásmundsdóttur Olsen, Davíð Mássyni, dánarbúi Grétars Arnar Vilhjálmssonar, Guðrúnu Benediktsdóttur, Guðrúnu Vilhjálmsdóttur, Gunnari Má Mássyni, Gunnlaugi Má Olsen, Hörpu Másdóttur, Perlu Vilhjálmsdóttur, Ósk Harrys Vilhjálmsdóttur, Stefáni Andréssyni, Viðari Á. Olsen og Þorsteini Hjaltested (
Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Ágreiningur málsins átti rætur að rekja til gjafaafsals frá 1960 þar sem hjón gáfu börnum sínum tiltekið landsvæði innan jarðarinnar S. Skjalið var fært til þinglýsingar á jörðinni sjálfri, en svæðið sem afsalið tók til var ekki skráð sem sérstök lóð eða land. Á árinu 2014 hafði þinglýsingarstjóri forgöngu um að stofnuð yrði sérstök fasteign, S2, sem hann taldi vera það land sem gjafaafsalið tók til. Fasteignin var síðan færð í þinglýsingabækur og voru A o.fl. meðal þinglýstra eigenda hennar. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans í Hæstarétti, var talið að það væri með öllu óljóst hversu stórt og hvar landsvæðið samkvæmt gjafaafsalinu ætti að vera innan jarðarinnar S. Þinglýsingarstjóri hefði því ekki mátt líta svo á að í gjafaafsalinu væri tiltekið afmarkað landsvæði sem skilið hefði verið frá jörðinni S. Leiðrétting þinglýsingarstjóra, sem fólst í skráningu landsins S2, hafi þannig ekki átt stoð í 1. mgr. 27. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978. Samkvæmt þessu var fallist á kröfu ÞH um að sýslumanni yrði gert að afmá landið S2 úr þinglýsingabók.
Ákvörðun þinglýsingarstjóra um að synja kröfu sóknaraðila um leiðréttingu á grundvelli 1. mgr. 27. gr. þinglýsingalaga var hrundið og tekin til greina krafa hans um afmáningu lands úr þinglýsingabók.
Björn Gústafsson, Hrafn Olgeir Gústafsson, Hulda Inger Klein Kristjánsdóttir, Kristján Ingi Úlfsson, Lilja Björk Arnardóttir, Óli Jóhann Klein, Ragna Björg Arnardóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Sophus Klein Jóhannsson og Þóra L. Klein (
Ólafur Kjartansson hdl)
gegn
Ás-10 ehf, Björk Rúnarsdóttur, Guðmundi Gíslasyni, Heklubyggð ehf og Orrustuhóli ehf (
Guðjón Ármannsson hdl)
Deilt um landamerki Selsunds og Svínhaga í Rangárþingi ytra.
Í málinu deildu aðilar um mörk landsvæðis, sem tekið hafði verið eignarnámi úr landi jarðarinnar V. Talið var að Þ ætti lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr þrætu þessari og töldust ákvæði 2. mgr. 14. gr. laga nr. 58/1998 ekki standa því í vegi, þótt íslenska ríkið gerði kröfu til þess í máli fyrir óbyggðanefnd að hluti hins umdeilda svæðis yrði talið þjóðlenda. Þá þótti ákvæði 2. mgr. 18. gr. ekki eiga við í málinu. Var kröfu R um frávísun málsins því hafnað.
Í málinu er deilt um mörk eignarnáms Reykjavíkur, Heiðmerkur. Málinu vísað frá dómi þar sem hluti þess lands sem í málinu er fjallað um er til umfjöllunar hjá óbyggðanefnd.