Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 18. gr. laga nr. 30/2003 — Lög um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2012

X-177/2010

Eskja hf (Guðbjarni Eggertsson hdl) gegn Landsbanka Íslands hf. í slitameðferð (Ágúst Karl Karlsson hdl)

Ekki var fallist á að sóknaraðili ætti skaðabótakröfu á hendur varnaraðila vegna kaupa hans á hlutdeildarskírteinum í peningamarkaðssjóði 3. október 2008, en kröfu þessari hafði sóknaraðili lýst við slitameðferð varnaraðila.

Hæstiréttur birt 14. desember 2011

654/2011

Eskja hf (Guðbjarni Eggertsson hdl) gegn Landsbanka Íslands hf (Halldór Helgi Backman hrl)

E hf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hans um að L hf. yrði gert að leggja fram nánar tilgreind gögn í dómsmáli sem rekið var um kröfu E hf. við slit L hf. Fyrir Hæstarétti krafðist E hf. þess að lagt yrði fyrir héraðsdóm að kveðja fulltrúa L hf., LV hf. og LB. hf. fyrir dóm til að „tjá sig“ um kröfu E hf. í málinu. Í dómi Hæstaréttar sagði meðal annars að skori aðili einkamáls á gagnaðila að leggja fram skjal, sem sá hefði undir höndum, bæri gagnaðilanum samkvæmt 2. mgr. 67. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að verða við þeirri áskorun ef aðilinn ætti rétt til skjalsins án tillits til málsins eða efni skjalsins væri slíkt að gagnaðilanum væri skylt að bera vitni um það ætti hann ekki aðild að málinu. Ef öðru hvoru þessara skilyrða væri fullnægt og gagnaðilinn yrði ekki við áskorun um að leggja fram skjal, sem hann hefði í vörslum sínum, gæti dómari skýrt það svo að hann samþykkti frásögn áskoranda um efni skjalsins, sbr. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 91/1991. Úrræði aðila til að knýja á um að fá aðgang að skjali í vörslum gagnaðila væru tæmandi talin á þennan hátt. Gæti því aldrei komið til þess að hann yrði skyldaður að viðlögðum dagsektum til að leggja fram skjal í máli. Krafa E hf. væri því andstæð lögum að því leyti, sem hún beindist að því að fá skyldu lagða á L hf. til að afhenda gögnin, sem um ræddi í málinu. Þá sagði að E hf. hefði jafnframt beint kröfu um afhendingu umræddra gagna að LB hf. og LV hf. Hvorugt þeirra félaga ætti aðild að málinu og tækju því ákvæði 3. og 4. mgr. 67. gr. og 2. og 3. mgr. 68. gr. laga nr. 91/1991 til kröfu E hf. að því er þau varðaði. Í beiðni E hf. hefði þess hvorki verið getið að E hf. teldi að skjölin, sem hún sneri að, væru í vörslum LB hf. né að hann hefði áður krafist þess að félagið léti þau af hendi. Í beiðninni væri í engu leitast við að lýsa efni þessara skjala og ekkert væri heldur sagt um hvað leiða ætti í ljós með þeim. Þegar af þessum ástæðum væri málatilbúnaður E hf. í því horfi að ófært væri að taka afstöðu til dómkröfu hans. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Hæstiréttur birt 14. júní 2011

326/2011

Hjördís, Anna Ingvarsdóttir, Regína, Berndsen, Árni, Klemens Magnússon, Ólafur, Friðsteinsson, Magnús, Ágústsson, Smári, Halldórsson, María, Högnadóttir, Friðbjörn, Björnsson, Guðrún, Guðmundsdóttir og Álnabær ehf (Einar Hugi Bjarnason hdl) gegn Íslandssjóðum hf (Aðalsteinn E. Jónasson hrl)

H o.fl. kærðu úrskurð héraðsdóms þar sem máli þeirra gegn Í hf. var vísað frá dómi. Í málinu gerðu H o.fl., með vísan til 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sameiginlega kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu Í hf. gagnvart þeim hverjum fyrir sig vegna atvika í rekstri Í, sem þeir töldu að hefðu valdið sér fjártjóni. Í reisti frávísunarkröfu sína m.a. á því að H o.fl. væri ekki heimilt að sækja mál þetta í félagi þar sem kröfur þeirra ættu ekki sameiginlegan uppruna. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að mismunandi atvik, sem varði hvern og einn þeirra sérstaklega, kynnu að hafa áhrif við mat á skaðabótaábyrgð Í. Athuga yrði réttarstöðu hvers aðila sjálfstætt við mat á hugsanlegri skaðabótaskyldu Í. Skilyrðum 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 væri því ekki fullnægt. Með því að Í hefði m.a. byggt frávísunarkröfu sína á þessum grundvelli bæri þegar af þeirri ástæðu að staðfesta hinn kærða úrskurð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2011

E-4788/2010

Hjördís Anna Ingvarsdóttir, Regína Berndsen, Árni Klemens Magnússon, Ólafur Friðsteinsson, Magnús Ágústsson, Smári Halldórsson, María Högnadóttir, Friðbjörn Björnsson, Guðrún Guðmundsdóttir og Álnabær ehf (Einar Hugi Bjarnason hdl) gegn Íslandssjóðum hf (Aðalsteinn E. Jónasson hrl)

Máli vísað frá dómi þar sem skilyrðum 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 og d.- og e.-lið 80. gr. sömu laga var ekki fullnægt.