Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 117 20. desember 1993, með síðari breytingum. nr. 3/2001

Hæstiréttur birt 16. október 2003

549/2002

Ingibjörg Gunnarsdóttir (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Þann 19. desember 2000 var í Hæstarétti kveðinn upp dómur í málinu nr. 125/2000, sem höfðað hafði verið af Ö til viðurkenningar á því að T hefði verið óheimilt að skerða tekjutryggingu öryrkja í hjúskap vegna tekna maka. Varð niðurstaðan sú að þetta hefði T verið óheimilt á árunun 1994 til 1998 þar sem skerðingin byggðist á fyrirmælum reglugerðar, sem ekki hafði lagastoð. Eftir breytingu þá, sem gerð var á almannatryggingalögum með lögum nr. 149/1998, var heimild til framangreindrar skerðingar ákveðin í 5. mgr. 17. gr. laganna. Taldist sú skerðing meiri en svo að hún tryggði öryrkjum þau lágmarksréttindi, sem fælust í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, þannig að þeir fengju notið þeirra mannréttinda, sem 65. gr. hennar mælti þeim. Í kjölfar dómsins voru sett lög nr. 3/2001 um breytingu á almannatryggingalögum. Samkvæmt lögunum var örorkulífeyrisþegum, sem sætt höfðu skerðingu, greidd full tekjutrygging árin 1997 og 1998, en tekjutrygging vegna áranna 1999 og 2000 var skert með nýjum hætti. Ekkert var greitt vegna áranna 1994 til 1996 þar sem kröfur örorkulífeyrisþega vegna þeirra ára voru taldar fyrndar. IG krafðist þess í málinu að fá greiddar óskertar örorkubætur fyrir árin 1994 til 1996 og 1999 til 2000. Fallist var á það með héraðsdómara að kröfur IG vegna fyrrnefnda tímabilsins væru fyrndar, enda nægði lögsókn í viðurkenningarmáli Ö, eins og það var úr garði gert, ekki til að rjúfa fyrningu einstaklega ákveðinnar kröfu, sem reist væri á niðurstöðu dóms í því máli. Varðandi síðara tímabilið var talið að eftir uppsögu dóms í fyrra málinu hefðu örorkulífeyrisþegar átt kröfu til þess að fá greidda óskerta tekjutryggingu, þar sem skerðingarreglu 5. mgr. 17. gr. almannatryggingalaga varð ekki beitt. Þessi kröfuréttindi þeirra nytu verndar eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar og yrðu ekki skert með afturvirkri og íþyngjandi löggjöf. Nýrri skerðingarreglu samkvæmt lögum nr. 3/2001 yrði því heldur ekki beitt um greiðslu tekjutryggingar örorkulífeyrisþega á árunum 1999 og 2000. Var þannig fallist á kröfu IG um greiðslu á óskertum örorkulífeyri vegna þessara ára.