Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á samkeppnislögum, nr. 8 25. febrúar 1993. nr. 24/1994

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. september 2011

E-6913/2010

Íslandsbanki hf (Ágúst Stefánsson hdl) gegn Kleppsvegi 40, húsfélagi (Arnar Kormákur Friðriksson hdl)
Lykilorð: Húsfélag. Skuldamál. Umboð.

Húsfélag var sýknað af kröfu banka um greiðslu yfirdráttarskuldar þar sem formaður húsfélagsins, sem jafnframt var gjaldkeri þess, var talinn hafa farið út fyrir umboð sitt þegar hann samdi við bankann um yfirdráttarheimildina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2011

E-2758/2010

Bala, Murughan Kamallakharan, Esther, Ágústa Berg, Friðný, Jóhannesdóttir, Ólafur, Jóhannsson, Selma, Svavarsdóttir, Sigríður, J Hjaltested, Valtýr og Sigurðsson (Karl Axelsson hrl) gegn Jóni, Inga Benediktssyni, Sigríði og Jónu Guðnadóttur (Einar Gautur Steingrímsson hrl)

Ágreiningur var með aðilum um það, hvort raðhúsalengja í Reykjavík teldist vera fjöleignarhús í skilningi laga nr. 26/1994, um fjöleignarhús, og hvort stefndu bæri því að taka þátt í kostnaði vegna viðgerða á gafli endahússins. Talið var að um fjöleignarhús í skilningi laganna væri að ræða og því teldist ytra byrði þess í sameign allra eigendanna og viðgerðarkostnaður á endagafli ætti að skiptast milli þeirra. Var hvorki fallist á það með stefndu að sú niðurstaða bryti í báða við stjórnarskrá né að hún væri óeðlileg og ósanngjörn í skilningi 5. mgr. 46. gr. laga nr. 26/1994. Var stefndu því gert að greiða stefnendum stefnukröfuna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. mars 2009

E-7389/2007

Auður Haralds (Sjálf) gegn Páli Björgvinssyni (Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl)
Lykilorð: Skuldamál.

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um þátttöku í kostnaði við sameign þar sem ekki var farið að lögum um fjöleignarhús við ákvörðunartöku og framkvæmd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2008

E-2351/2006

Hlynur Höskuldsson og María Helen Eiðsdóttir (Þorvaldur Jóhannesson hdl) gegn Ólafi Jóni Ingólfssyni (Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl), Höllu Maríu Ólafsdóttur og Vátryggingafélagi Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hdl) og Kristjáni Ólafssyni (Ólafur Kjartansson hdl)

Kaupendur dæmdir til greiðslu eftirstöðva kaupverðs og kröfu um skaðabætur vegna stærðarfráviks hafnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. nóvember 2007

E-1296/2006

Jón Ingi Sigursteinsson (Rúnar Svanholt Gíslason hdl) gegn Önnu Guðrúnu Magnúsdóttur Hjördísi Pálmarsdóttur og Þórði Kristni Jónassyni (Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Sýknað var af kröfu um greiðslu kostnaðar vegna viðhaldsframkvæmda í fjöleignarhúsi.

Hæstiréttur birt 21. mars 2002

378/2001

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála (Brynjar Níelsson hrl) gegn Hönnun hf (Garðar Valdimarsson hrl)

H hf. kærði ákvörðun S til Á, sem vísaði málinu frá. Stefndi H hf. þá Á og krafðist þess að frávísunarúrskurðurinn yrði felldur úr gildi og lagt fyrir Á að taka kæruna til efnislegrar meðferðar. Talið var að þar sem S var gagnaðili H hf. að málinu, væri þörf á aðild S að dómsmáli um gildi þessa úrskurðar. Á, sem gegnir hlutverki úrskurðarnefndar á málskotstigi innan stjórnsýslunnar, hafði enga þá lögvörðu hagsmuni af úrlausn málsins sem leitt gætu til aðildar Á að því. Vegna þessa annmarka á málsókn H hf. var málinu vísað sjálfkrafa frá héraðsdómi.