Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 40. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 16. nóvember 2000

139/2000

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Kristjáni Guðmundi Snæbjörnssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

K var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar fyrir hlutdeild í fíkniefnabroti. Um var að ræða innflutning á 969 MDMA töflum og var brot K fólgið í því að hafa, að beiðni meðákærðu C, útvegað tiltekið heimilisfang í því skyni að þangað yrði sendur pakki með umræddum fíkniefnum. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu var staðfest í Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 13. janúar 2000

3/2000

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Kristni Baldvinssyni (Jóhann Halldórsson hdl)

Við meðferð opinbers máls krafðist ákæruvaldið þess að E, sem upphaflega hafði verið skipuð verjandi ákærða í málinu, yrði kvödd til að bera vitni. Ákærði og E mótmæltu kröfunni bæði. Talið var, að þótt E kynni að geta færst undan því að svara ákveðnum spurningum með vísan til þagnarskyldu um það sem sakborningur hefði trúað henni fyrir um málsatvik, væri ekki hægt að útiloka fyrirfram að fram kæmu spurningar sem féllu utan þeirrar þagnarskyldu. Ekki var heldur talið unnt að fallast á þá kröfu E að það yrði afmarkað fyrir fram hvers efnis þær spurningar gætu verið, sem henni væri óskylt að svara. Var því fallist á kröfu ákæruvaldsins.