Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 179. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
A krafði Í um bætur vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir. Opinbert mál hafði verið höfðað gegn A vegna gruns um að hann hefði dregið sér fé en hann verið sýknaður. Taldi A að Í hefði bakað sér tjón með rannsóknaraðgerðum lögreglu og málsmeðferð í sakamálinu sem hefði verið höfðað án nægjanlegs tilefnis. Fallist var á að Í hefði ekki fært fram viðhlítandi rök fyrir því að nauðsyn hefði borið til að halda A í gæslu í rúmar tvær klukkustundir á rannsóknarstigi hins opinbera máls. Þá var fallist á að ekki hefði verið ástæða til að endurtaka leit á heimili A og í sameign fjöleignarhúss, sem hann bjó í. Voru honum dæmdar miskabætur vegna þessa. Þá var fallist á að A bæru skaðabætur vegna skyrtu sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins en ekki skilað. Hins vegar var hafnað að ákvæði XXI. kafla laga nr. 19/1991 fælu í sér heimild til að dæma bætur vegna þess að A hefði verið sóttur til sakar án nægjanlegs tilefnis. Þótti ekki sýnt að skilyrði væru til slíkra bóta á grundvelli sakarreglunnar. Þá var hafnað kröfu A um bætur vegna mismunar á lögmannskostnaði samkvæmt gjaldskrá og tildæmdum málsvarnarlaunum í sakamálinu.
Með dómi héraðsdóms 24. nóvember 1995 var M, stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri hlutafélagsins G, dæmdur til þess að sæta tveggja ára fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55/1987, en fullnustu 21 mánaðar af fangelsisvistinni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Taldi dómurinn sannað að M hefði með fulltingi erlends seljanda framvísað við tollayfirvöld reikningum, sem aðeins sýndu hluta þess verðs sem G hafði raunverulega greitt fyrir sendingar af frystum forsteiktum kartöflum og skotið þannig undan aðflutningsgjöldum. M ákvað að una þessum dómi og tók út hinn óskilorðsbundna hluta refsingarinnar. Með dómi Hæstaréttar 19. desember1996 var felldur úr gildi úrskurður ríkistollanefndar um endurákvörðun á aðflutningsgjöldum vegna innflutnings hlutafélagsins S á frystum forsteiktum kartöflum, þar sem talið var að álagning gjaldsins hefði verið ólögmæt. Í framhaldi af þessum dómi Hæstaréttar óskaði M endurupptöku máls síns og vísaði til þess, að með dóminum hefði verið dæmd ólögmæt álagning sams konar jöfnunargjalds og hann hefði meðal annars verið sakfelldur fyrir að koma G undan að greiða. Fallist var á beiðni M um endurupptöku málsins og var M sýknaður með dómi Hæstaréttar 12. mars 1998, þar sem talið var að eins og ríkissaksóknari hefði gert málið úr garði við áfrýjun þess, lægju engan veginn fyrir viðhlítandi sönnur fyrir sök M, en ríkissaksóknari hafði aðeins að óverulegu leyti lagt fram þau gögn fyrir Hæstarétti sem héraðsdómur taldi sanna sök ákærða. M höfðaði mál gegn Í til greiðslu miskabóta samkvæmt XXI. kafla laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og byggði kröfu sína á því, að hann hefði saklaus hlotið refsidóm og verið látinn sæta ólögmætri frelsisskerðingu, sem rót sína ætti að rekja til löglausra reglugerða landbúnaðarráðherra. Talið var, að ótvírætt væri, að jöfnunargjaldið, sem Hæstiréttur hafði dæmt ólögmætt, hefði vegið langþyngst og mestu máli skipt við refsiákvörðun héraðsdóms. Þegar litið var til gagna málsins og tveggja dóma Hæstaréttar, sem fjölluðu um undanskot á sama gjaldi, þótti mega ætla, að M hefði eingöngu hlotið sekt ef dæmt hefði verið á grundvelli allra gagna málsins í Hæstarétti 12. mars 1998. Að þessu virtu þótti M hafa ófyrirsynju orðið að þola refsivist þá, er hann var dæmdur til með dómi héraðsdóms. Voru M því dæmdar miskabætur samkvæmt 177. gr. laga nr. 19/1991, en háttsemi hans varðandi aðflutningsgjöld og skýrslugerð til yfirvalds voru virt til lækkunar bótanna.