Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 139. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2006

S-576/2006

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn X (Lúðvík Emil Kaaber hdl)

Karlmaður, sem talinn var ósakhæfur vegna geðsjúkdóms, dæmdur í öryggisgæslu samkvæmt 62. gr. almennra hegningarlaga, vegna brots sem heimfært var til 211. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. Miskabætur að fjárhæð 400.000 krónur dæmdar til handa brotaþola.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2006

449/2005

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa hótað lækninum A og ráðist á hann vegna erfðafræðilegra rannsókna, sem læknirinn hafði framkvæmt í starfi sínu. Að áliti geðlæknis var X haldinn alvarlegri hugvilluröskun og var það mat staðfest af tveimur dómkvöddum matsmönnum, sem töldu brýnt að hann sætti öryggisgæslu og fengi meðferð á viðeigandi stofnun. Það varð niðurstaða héraðsdóms og Hæstaréttar að X hefði verið ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu og teldist því ósakhæfur. Hann var því sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins. Með hliðsjón af eðli sjúkdómsins og háttsemi X var hins vegar fallist á að hann skyldi sæta öryggisgæslu samkvæmt 62. gr. almennra hegningarlaga. Þá var hann dæmdur til að greiða A 300.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 13. maí 2004

41/2004

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Steini Stefánssyni (Björn Lárus Bergsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir manndráp með því að hafa ráðist að B á heimili hans í Reykjavík og stungið hann með hnífi í brjóst, kvið og framhandlegg með þeim afleiðingum að B lést skömmu síðar. Þá var X einnig ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa veist að gæslumanni á réttargeðdeildinni að Sogni. Deilt var um sakhæfi X en í málinu lágu fyrir ósamhljóða matsgerðir um geðheilbrigði hans. Staðfest var sú niðurstaða héraðsdóms að X hafi framið þau brot sem um ræddi. Talið var ljóst að hæfni X til að stjórna viðbrögðum sínum væri skert og að minnsta kosti á stundum væri hann haldinn ranghugmyndum og líklegur til að rangtúlka aðstæður þegar hann teldi sér ógnað. Með vísan til þessa, og framburðar starfsmanna réttargeðdeildarinnar að Sogni, sem báru um hversu gjörsamlega hömlulaus X var þegar hann framdi fyrrnefnda líkamsárás, var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að X væri ósakhæfur og því bæri að sýkna hann af kröfu ákæruvalds um refsingu, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga.

Hæstiréttur birt 24. janúar 2002

446/2001

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Jóni Andréssyni (Jón Hjaltason hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

J var í héraði fundinn sekur um verknað er varðaði við 1. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940. Á grundvelli 15. gr. sömu laga hafði J jafnframt verið sýknaður af refsikröfu ákæruvalds. Ekki var talið að gera hefði þurft grein fyrir þessari niðurstöðu í dómsorði. Niðurstaða héraðsdóms um að gera J skylt að gangast undir lyfjameðferð var talin samrýmast ákvæðum 62. gr. laga nr. 19/1940 og að nægilega væri gerð grein fyrir því í forsendum héraðsdóms hvernig læknismeðferð J skyldi háttað. Ómerkingarkröfu ákæruvaldsins var samkvæmt þessu hafnað og stóð héraðsdómur óraskaður.