Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingar á ýmsum lögum vegna verkefna Umhverfisstofnunar. nr. 164/2002
Karlmaður, sem ók óskráðu vélhjóli við að smala fé, sætti ákæru fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um náttúruvernd. Var hann sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, sem hann gekkst greiðlega við og dæmdur til greiðslu 80.000 króna sektar, en sýknaður af því að hafa brotið gegn lögum um náttúruvernd, þar sem talið var að aksturinn hefði verið honum heimill samkvæmt reglugerð um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands.
X fór til hreindýraveiða í september 2003 og naut til þess leiðsagnar eftirlitsmannsins Z. Voru þeir í kjölfarið ákærðir fyrir brot gegn tilteknum ákvæðum laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og reglugerð nr. 486/2003. Í héraði voru X og Z sakfelldir fyrir brot gegn öðrum ákvæðum framangreindra laga og reglugerðar. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 mætti dæma eftir öðrum refsiákvæðum en greindi í ákæru hefði ákærða eða verjanda verið gefið færi á að tjá sig um sakaratriði og vörn þannig ekki orðið áfátt að þessu leyti. X og Z mótmæltu því að þetta hefði verið gert og fyrir Hæstarétti gerði ákæruvaldið auk þess athugasemdir við heimfærslu í héraðsdómi. Þar sem þessa var ekki getið í bókunum þinghalda í héraðsdómi var það gegn mótmælum X og Z talið ósannað. Tekið var fram að í ákæru væri ekki greint á milli þátta X og Z í brotum og að heimfærsla þeirra til refsiákvæða samrýmdist ekki efnislýsingu ákæru sem yrði því óskýr. Þar sem ákæruvaldið hafði hvorki sýnt fram á að bætt hefði verið úr þessu undir rekstri málsins í héraði né að það hefði verið unnt svo vörn málsins yrði ekki ábótavant var málinu vísað frá héraðsdómi.