Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum, með síðari breytingum (viðaukar, tilkynningarskyldar framkvæmdir, flutningur stjórnsýslu). nr. 138/2014
Samþykkt krafa hluthafa í einkahlutafélagi um að félaginu skyldi slitið vegna ótilhlýðilegra ráðstafana annarra hluthafa sem gerðar voru af ásetningi og bitnuðu á hagsmunum viðkomandi hluthafa.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli M gegn A ehf., Á og MM var vísað frá dómi á þeim grundvelli að M skorti lögvarða hagsmuni af því að fá niðurstöðu um kröfu sína. Í málinu krafðist M þess á grundvelli 1. mgr. 81. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög að A ehf. yrði slitið. Eftir að málið var höfðaði hafði Á sem eigandi 99,98% hlutafjár A ehf. ákveðið að aðrir hluthafar félagsins, þar á meðal M, skyldu sæta innlausn hans á hlutum í félaginu samkvæmt 16. gr. laga nr. 138/1994. Með vísan til þess að þegar þær ráðstafanir voru gerðar, sem M taldi að ætti að leiða til þess að A ehf. skyldi slitið, hefði M verið hluthafi í félaginu og taldi sig ráða yfir því hlutafé sem nægði eftir 1. mgr. 81. gr. laga nr. 138/1994 til að krefjast slita taldi Hæstiréttur að hann hefði lögvarða hagsmuni af því að leyst yrði úr ágreiningi aðila. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Krafist var slita á einkahlutafélagi. Kröfunni vísað frá þar sem stefnandi var ekki talinn eiga lengur lögvarða hagsmuni í málinu þar sem hann var ekki lengur hluthafi í félaginu vegna innlausnar annars hluthafa.