Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004
Með dómi héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti með vísan til forsendna hans, var talið að lán sem S tók hjá forvera L ohf. hefði verið í íslenskum krónum, bundið með ólögmætum hætti við gengi erlendra gjaldmiðla og sú staðreynd að lánveitingin til handa S hefði verið fjármögnuð af forvera L ohf. með erlendu lánsfé fékk þeirri niðurstöðu ekki hnekkt. Þá var við úrlausn ágreinings um uppgjör milli aðilanna vegna endurreiknings hins ólögmæta gengistryggða láns lagt til grundvallar að L ohf. gæti ekki krafið S um viðbótargreiðslur vegna þegar greiddra vaxta aftur í tímann með skírskotun til þess að greiðsluseðlar L ohf. og forvera hans og fyrirvaralaus móttaka þeirra á greiðslum frá S, eða S ehf. fyrir hans hönd, jafngiltu fullnaðarkvittun vegna hlutaðeigandi greiðslna, svo og að virtum dómum Hæstaréttar 15. febrúar 2012 í máli nr. 600/2011 og 18. október sama ár í máli nr. 464/2012.
Aðila greindi á um hvort lánssamningur innihéldi ólögmæta gengistryggingu eða um væri að ræða löglegt lán í erlendum myntum. Þá var í málinu deilt um fjárhæð eftistöðva lánsins.