Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um iðnaðarmálagjald nr. 134/1993

Hæstiréttur birt 17. janúar 2012

670/2011

Aðalvík, ehf, Ámundi, Ingi Ámundason, Baldur, Jónsson ehf, Björn, Einarsson, Bunustokkur, ehf, Byggingarfélag, Gylfa og Gunnars hf, Eðallagnir, ehf, Einar, Helgi Einarsson, Einar, Sigurðsson ehf, Erlingur, Kristjánsson, EVH, verktakar ehf, Eykt, ehf, Flæðipípulagnir, ehf, GG, -lagnir ehf, Gissur, Pálmi ehf, Grand-lagnir, ehf, Guðjón, Hilmarsson, Gunnar, Bjarnason, HS, pípulagnir ehf, Heggur, ehf, Helgi, Skúlason, Hilmar, Kjartansson, Húsafl, sf, Ingimundur, Magnússon, J.E, Skjanni Byggingaverktakar ehf, Jakob, Marínósson, JB, Pípulagnir ehf, Jóhannes, Halldórsson, Jón, Salvar ehf, JS, -hús ehf, K.S, verktakar hf, K16 ehf, Kristinn, Auðunsson ehf, Kristján, Ólason, Króm, hvítt ehf, Lagnameistarinn, ehf, Lurkur, ehf, M, Hlíðdal ehf, Magnús, Pálsson, Marínó, Jóhannsson ehf, Markholt, ehf, Miðstöðin, Vestmannaeyjum ehf, Mótamenn, ehf, Mótás, hf, Nábúi, sf, Neslagnir, ehf, Pípulagningameistarinn, ehf, Pípulögn, sf, Presslagnir, ehf, Rennsli, ehf, Rör, tæki ehf, Rörmenn, Íslands ehf, Rörverk, ehf, SS, Lagnir ehf, S.Þ, verktakar ehf, Sérverk, ehf, Sigurjón, Einarsson, S.I.H, pípulagnir ehf, SL, ehf, Stefánsson, ehf. – Lagnaþjónusta, Steinar, Þ. Ólafsson, Stuðlar, ehf, Súperlagnir, ehf, T, Guðjónsson ehf, Trésmiðja, Snorra Hjaltasonar, Trésmiðjan, Jari, ehf, Tröllalagnir, ehf, Týrus, hf, Valdimar, Valdimarsson, ÞG, verktakar ehf, Þórtak, ehf, Örlygur, Vigfús Árnason og Örn Sigurjónsson (Einar Sveinn Hálfdánarson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

A ehf. og fleiri kærðu úrskurð héraðsdóms þar sem máli þeirra á hendur Í var vísað frá dómi. Fyrri liður aðalkröfu A ehf. og fleiri laut að því að felld yrði úr gildi álagning iðnaðarmálagjalds fyrir árið 2010. Í dómi Hæstaréttar sagði að þótt þessi krafa þeirra væri ekki berum orðum takmörkuð við álagningu gjaldsins, að því er þá eina varðaði, ylli það ekki frávísun hennar, enda leiddi það af 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að dómur um kröfuna byndi aðeins aðila málsins og þá sem að lögum kæmu í þeirra stað. Um síðari lið aðalkröfu auk varakröfu A ehf. og fleiri sagði í dómi réttarins að þær þættu ekki dómtækar, enda yrðu slíkar kröfur um aðfararhæfan dóm því aðeins dæmdar að fjárhæð væri tilgreind um hvern og einn þeirra, en það hefðu þeir ekki gert. Þá þótti málatilbúnaður sem laut að þrautavarakröfu þeirra vanreifaður. Staðfesti Hæstiréttur því niðurstöðu héraðsdóms að öðru leyti en því að felldur var úr gildi sá hluti úrskurðarins sem varðaði frávísun á fyrri lið aðalkröfu A ehf. og fleiri

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2006

66/2006

Hólmfríður Á. Vilhjálmsdóttir (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Tollstjóranum í Reykjavík (Guðfinna H. Þórsdóttir fulltrúi)
Lykilorð: Kærumál. Fjárnám. Skattur.

H krafðist þess að fellt yrði úr gildi fjárnám, sem gert var í fasteign hennar til tryggingar skattaskuldum sambýlismanns hennar. Talið var að þar sem H og sambýlismaðurinn hefðu talið fram sameiginlega til skatts allt frá árinu 1994 og notið þess hagræðis sem samsköttun fylgdi væru fyrir hendi þær aðstæður sem veittu T heimild til að krefja H um skattaskuld sambýlismanns hennar, sbr. 1. mgr. 116. gr. laga nr. 90/1993. Var hin umdeilda fjárnámsgerð því staðfest.