Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 13. gr. laga nr. 121/1994 — Lög um neytendalán

Hæstiréttur birt 26. nóvember 2015

243/2015

Theodór Magnússon (Tómas Jónsson hrl) og Helga Margrét Guðmundsdóttir (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Íbúðalánasjóði (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

T og H höfðuðu mál gegn Í og kröfðust viðurkenningar á því að staða láns samkvæmt skuldabréfi sem þau gáfu út í tilefni lánveitingarinnar hefði á tilteknum gjalddaga numið nánar tilgreindri fjárhæð. Var krafan á því reist að Í hefði verið óheimilt að innheimta verðbætur af láninu en af því leiddi að umframgreiðslur vegna verðbóta á afborganir og vexti yrðu reiknaðar strax við greiðslu hvers gjalddaga til frádráttar höfuðstól lánsins sem ætti að lækka sem því næmi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að tilhögun verðtryggingarinnar sem samið hefði verið um við útgáfu skuldabréfsins hefði verið lögmæt í ljósi ákvæða laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Þá hefði Í við lánveitinguna til T og H borið að fara að fyrirmælum þágildandi laga nr. 121/1994 um neytendalán að því marki sem ekki hefði verið vikið frá þeim með sérlögum er hefðu gilt um starfsemi Í. Loks var talið að hvorki reglur Í um greiðslumat né fyrirmæli laga og stjórnvaldsákvarðana sem um starfsemi Í hefðu gilt hefðu vikið til hliðar skyldum hans sem lánveitanda samkvæmt lögum nr. 121/1994. Að fengnum framangreindum niðurstöðum kom næst til úrlausnar sú málsástæða T og H að Í hefði við lánveitinguna vanrækt að upplýsa þau um atriði sem honum hefði borið að tilgreina og varðaði kostnað T og H af láninu samkvæmt 5. og 6. gr. laga nr. 121/1994. Var í því sambandi gengið út frá því að til álita gæti komið að víkja til hliðar ákvæðum skuldabréfsins á grundvelli 36. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. c. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, hefði Í látið hjá líða að veita T og H upplýsingar um efni og áhrif skilmála skuldabréfsins í þeim mæli að ósanngjarnt væri af Í eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera þá fyrir sig. Að virtum dómi Hæstaréttar í máli nr. 160/2015 og ákvæðum tilskipunar nr. 87/102/EBE um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán, svo sem henni hafði verið breytt með tilskipun nr. 90/88/EBE, var talið að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 121/1994 hefði hvílt sú skylda á Í við gerð lánssamningsins að veita T og H upplýsingar um fjögur atriði. Í fyrsta lagi um höfuðstól lánsins sem væri fjárhæð þess án nokkurs kostnaðar, í öðru lagi um heildarlántökukostnað, í þriðja lagi um árlega hlutfallstölu kostnaðar sem skyldi lýst sem árlegri prósentu heildarlántökukostnaðarins af höfuðstól skuldarinnar og í fjórða lagi um heildarupphæð sem greiða ætti og væri samtala höfuðstóls, vaxta og lántökukostnaðar. Með hliðsjón af orðalagi skuldabréfsins og þeirri fjármálaráðgjöf sem leggja yrði til grundvallar að Í hefði veitt við undirritun lánsins taldi Hæstiréttur að Í hefði fullnægt þeirri upplýsingaskyldu sem á honum hefði hvílt samkvæmt þágildandi lögum nr. 121/1994. Þá var með hliðsjón af fyrrgreindum dómi Hæstaréttar ekki talið að Í hefði verið skylt samkvæmt síðastnefndum lögum að láta T og H í té við lánveitinguna sérstaka greiðsluáætlun sem gerði ráð fyrir tiltekinni hækkun vísitölu neysluverðs og að við gerð lánssamningsins hefði verið þörf að gera ráð fyrir að verðbætur teldust til heildarlántökukostnaðar. Við úrlausn málsins var enn fremur litið til þess að tilskipun 87/102/EBE hefði ekki haft lagagildi hér á landi og gæti lögskýring með hliðsjón af 3. gr. laga nr. 2/1993 ekki leitt til annarrar niðurstöðu um túlkun ákvæða laga nr. 121/1994, sbr. meðal annars dóm Hæstaréttar í máli nr. 79/2010. Samkvæmt framansögðu var Í sýknað af kröfu T og H.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2015

E-4521/2013

Theodór Magnússon og Helga Margrét Guðmundsdóttir (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Íbúðalánasjóði (Áslaug Árnadóttir hdl)

Íbúðalánasjóður var sýknaður af kröfu lántaka um að viðurkennt yrði að skuld þeirra næmi tiltekinni, lægri fjárhæð en Íbúðalánasjóður gekk út frá.