Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum. nr. 120/2004
Í málinu var deilt um heimild Í til að krefja E og F í desember 2019 um þóknun vegna uppgreiðslu á 40 ára húsnæðisláni sem þau höfðu í apríl 2008 tekið hjá Í með útgáfu ÍLS-veðbréfs. E og F byggðu meðal annars á því að þær reglugerðir sem Í reisti rétt sinn á til að innheimta uppgreiðslugjald skorti lagastoð og uppfylltu ekki þau skilyrði sem heimildarákvæði laga nr. 44/1998 um húsnæðismál mæltu fyrir um og stæðust því ekki lögmætisreglu. Þá vísuðu E og F til þess að þau hefðu ekki afsalað sér heimild sinni til að greiða upp lánið án þóknunar. Einnig töldu E og F að hvað sem liði lagastoð tilgreindra reglugerðarákvæða, hefði ákvæði veðbréfsins um uppgreiðslugjald verið ólögmætt og Í hefði verið óheimilt að byggja á því, meðal annars með vísan til meginreglu samningaréttar um ógildi ólögmætra löggerninga. Jafnframt byggðu þau á því að gjaldtakan hefði verið ósanngjörn og andstætt góðri viðskiptavenju að bera fyrir sig ákvæði veðbréfsins um uppgreiðsluþóknun og því bæri að víkja því til hliðar á grundvelli ógildingarreglna samningaréttar, sbr. 36. gr. og 36. gr. a–c laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Í dómi Hæstaréttar var ekki á það fallist með E og F að ákvæði umþrættra reglugerða skorti fullnægjandi lagastoð samkvæmt heimildarákvæði laga nr. 44/1998. Þá var fallist á með Í að E og F hefðu með fullnægjandi og bindandi hætti afsalað sér rétti til uppgreiðslu lánsins án greiðslu þóknunar enda hefðu þau undirritað veðbréfið með þeim skilmálum. Loks var ekki talið koma til álita að ákvæði veðsamningsins yrðu metin ógild á grundvelli meginreglu samningaréttar um ógildi ólögmætra löggerninga, að þeim yrði vikið til hliðar á grundvelli 36. gr. a–c. laga nr. 7/1936 né að ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju væri fyrir Í að bera þau fyrir sig, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga nr. 7/1936. Var Í því sýknað af kröfum E og F.
Þegar Tryggingasjóður vegna byggingagalla var lagður niður árið 1999 hafði stjórn Í tekið við og varðveitt sérstaklega framlög annarra framkvæmdaraðila en sveitarfélaga sem runnið höfðu til sjóðsins. B, sem greitt hafði framlög í sjóðinn, krafði Í um greiðslu vaxta af framlögum hans í sjóðinn við uppgjör sem fram fór í febrúar 2018 vegna slita sjóðsins. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var af Landsrétti, kom fram að ekki yrði annað séð en að uppgjöri sjóðsins hefði verið hagað með þeim hætti sem gert væri ráð fyrir í 3. mgr. 53. gr. laga nr. 44/1998 og að fjármunir sem eftir stóðu hefðu verið endurgreiddir framkvæmdaraðilum í hlutfalli við framlög þeirra til sjóðsins. Þá kom fram í dómi Landsréttar að Í hefði greitt B verðbætur við uppgjörið og ekki lægi fyrir að sú ávöxtun hefði átt að vera önnur á grundvelli laga, venju eða samninga. Var Í því sýknaður af kröfum B.
Aðila greindi á um hvort stefnda hefði borið að greiða stefnanda vexti af framlögum hans í Tryggingarsjóð vegna byggingargalla við uppgjör sem fór fram í febrúar 2018 vegna slita sjóðsins. Ekki var talið að vextir hefðu lagst á þau framlög sem voru greidd í sjóðinn á meðan á vörslu hans stóð. Við uppgjör sjóðsins hefði stefnandi átt kröfu til þess að fá þá fjármuni sem eftir stóðu í sjóðnum endurgreidda í hlutfalli við framlög sín í sjóðinn, sbr. lokamálslið 3. mgr. 53. gr. laga nr. 44/1998. Engin sérákvæði voru í lögunum um það hvernig nánar skyldi staðið að uppgjörinu og var ekki vikið að því hvort leggja bæri vexti við þá fjárhæð sem kom til endurgreiðslu. Þá var ekki talið að krafa stefnanda gæti stuðst við 3. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.
Ágreiningur um lögmæti uppgreiðslugjalds.