Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 63. gr. laga nr. 117/1993 — Lög um almannatryggingar

Hæstiréttur birt 3. maí 2001

446/2000

Sjómaður Vinnusamningur Orlof Slysatrygging Fimmtudaginn 3 (Helgi Jóhannesson hrl) gegn Hallgrími Einarssyni og Steinunni Eldjárnsdóttur (Björn Lárus Bergsson hrl)

H starfaði sem skipverji á skipi Á en lét fyrirvaralaust af störfum í kjölfar ágreinings sem upp kom milli þeirra. H hafði slasast um borð í skipinu nokkru áður og greiddi Á honum tiltekna fjárhæð vegna veikindaforfalla. H tók hins vegar við nokkru hærri fjárhæð úr slysatryggingu sjómanna og vátryggingu hjá Tryggingastofnun ríkisins. Var fallist á að Á bæri að standa H skil á mismuninum, enda var ekki talið að Á hefði verið heimilt að taka til sín hluta fjárins þar sem tryggingarnar hefðu verið teknar til hagsbóta fyrir H. Samið hafði verið um að laun H yrðu tiltekið hlutfall af verðmæti heildarafla. Krafðist H til viðbótar greiðslna fyrir orlof en Á bar að hin umsamda hlutdeild H í verðmæti heildarafla fæli meðal annars í sér orlofslaun. Með hliðsjón af gögnum málsins var fallist á að svo hefði verið um samið og var ekki talið að ákvæði laga um orlof stæðu slíku samkomulagi í vegi. Ekki var talið að Á ætti rétt til að skerða greiðslur til H á grundvelli 60. gr. sjómannalaga vegna brotthvarfs hans úr skipsrúmi. H og S voru hins vegar dæmd til að greiða Á tiltekna fjárhæð vegna úttekta þeirra í verslun Á, enda höfðu þau H og S viðurkennt þá kröfu.