Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 33. gr. laga nr. 117/1993 — Lög um almannatryggingar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. apríl 2013

E-1477/2012

Bragi Halldórsson (Klemenz Eggertsson hdl) gegn íslenska ríkinu og Tryggingastofnun ríkisins (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist bóta vegna ólögmætrar synjunar Tryggingastofnunar á umsókn hans um styrk til bifreiðakaupa. Fallist var á það með stefnanda að synjun stefnda hefði verið ólögmæt þar sem hún byggði á ákvæði reglugerðar sem ekki átti sér fullnægjandi lagastoð. Hins vegar var skaðabótakröfu stefnanda hafnað en tekin til greina þrautavarakrafa um greiðslu vaxta af styrkfjárhæð.

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. mars 2010

E-1035/2009

Landspítali (Auður Björg Jónsdóttir hdl) gegn Gunnari Svavarssyni (Helgi Þór Þorsteinsson hdl)

Deilt var um gjaldtöku stefnanda vegna notkunar stefnda á öndunarvél fyrir kæfisvefn. Talið var að innheimta stefnanda byggðist á skýrri lagaheimild sem bryti ekki í bága við 77. gr. stjórnarkrár. Reglugerðarákvæði var einnig talið skýrt og að málefnalegar ástæður lægju til grundvallar mismunandi þátttöku notenda í kostnaði.