Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra. nr. 105/2007
O ehf. höfðaði mál gegn E ehf. til greiðslu skulda vegna 67 reikninga sem O ehf. hafði gefið út. Með dómi Landsréttar var talið að E ehf. hefði með fyrirvaralausri innborgun að fjárhæð 10.000.000 króna inn á einn tiltekinn reikning viðurkennt kröfu O ehf. Bæri E ehf. sönnunarbyrði fyrir því að krafa O ehf. vegna vinnu við verkið hefði verið ósanngjörn og ekki í samræmi við umfang þess en honum hefði ekki tekist sú sönnun. Var því fallist á kröfu O ehf. um greiðslu eftirstöðva reikningsins sem námu 8.499.000 krónum. Að öðru leyti var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu E ehf. af öðrum kröfum O ehf.
Stefnandi krafði stefnda um fjölda reikninga vegna vinnu og efnistúttekta allt frá árinu 2017. Var stefndi sýknaður, m.a. vegna fyrningar, tómlætis eða sönnunarskorts. Þá voru gerðar athugasemdir við málatilbúnað stefnanda sem krafði stefnda um fjölda reikninga sem þegar höfðu verið greiddir að fullu. Var stefnandi látinn bera málskostnað að fullu m.a. vegna þessa.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu Ö var hafnað og staðfest sú afstaða slitastjórnar G hf. að taka kröfu Ö ekki inn á kröfuskrá þar sem henni hafði ekki verið lýst fyrr en eftir að kröfulýsingarfrestur samkvæmt 118. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. rann út.
Kærumál. Aðfararbeiðni. Úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi. I kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hans um að fella úr gildi ákvörðun sýslumanns um að endursenda aðfararbeiðni hans og leggja fyrir sýslumann að taka beiðnina til efnismeðferðar. Sýslumaður endursendi beiðnina með vísan til 2. mgr. 17. gr. laga nr. 90/1989, en samkvæmt því ákvæði verður aðfararbeiðni endursend telji sýslumaður tiltekin formskilyrði, sbr. 1. mgr., ekki uppfyllt. Taldi hann að krafa I væri fyrnd. Þar sem sú forsenda hafi varðað efni máls en ekki form var talið að sýslumaður hafi ekki haft heimild til að endursenda beiðnina af sjálfsdáðum, heldur hafi honum borið að taka hana til efnismeðferðar. Af þessum sökum var ákvörðun sýslumanns felld úr gildi.