Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 6. gr. laga nr. 105/2006 — Lög um umhverfismat áætlana

Héraðsdómur Austurlands birt 10. maí 2023

E-86/2020

Stefán Halldórsson, Anna Guðný Halldórsdóttir, Þórey Kolbrún Halldórsdóttir (Jón Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Stefnendur, sem eru eigendur jarðanna Brúar 1 og Brúar 2 á Jökuldal, kröfðust þess aðallega að ógilt yrði ákvörðun umhverfis- og auðlindaráðherra frá 10. ágúst 2019 um að friðlýsa vatnasvið Jökulsár á Fjöllum, innan nánar skilgreindra marka, gagnvart orkuvinnslu fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira. Til vara kröfðust stefnendur viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna umræddrar ákvörðunar. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin væri ekki haldin annmörkum sem ættu að leiða til ógildingar hennar. Þá var ekki talið að uppfyllt væru skilyrði þess að stefnendur ættu bótarétt á hendur stefnda vegna hennar. Íslenska ríkið var því sýknað af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 17. desember 2021

E-184/2019

B. Pálsson ehf (Magnús Óskarsson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Skagafirði (Ívar Pálsson lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu á breytingu á aðalskipulagi stefnda sem tók til lagningu Blöndulínu 3 í Skagafirði.

Hæstiréttur birt 24. nóvember 2016

33/2016

Landvernd (Ásgeir Þór Árnason hrl, Magnús Óskarsson hdl, 4. prófmál) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason hrl, Kristín Ólafsdóttir hdl, 1. prófmál)

Í málinu leitaði L dóms um lögmæti svonefndrar kerfisáætlunar L hf., en í samræmi við ákvæði raforkulaga nr. 65/2003 var í meginatriðum að finna í henni spá um raforkuþörf og áætlun um uppbyggingu flutningskerfis fyrir rafmagn samkvæmt III. kafla laganna á árabilinu 2014 til 2023. Fyrir Hæstarétt var lögð ný kerfisáætlun L hf. fyrir árin 2015 til 2024, sem stjórn hans samþykkti í nóvember 2015 og Orkustofnun í apríl 2016, en hún kom í stað þeirrar áætlunar sem dómkrafa L tók til. Í dómi Hæstaréttar kom fram að án tillits til þess hvort L hefði nokkru sinni haft lögvarða hagsmuni af því að fá áætlun af þessum toga fellda úr gildi, væri ljóst að þeir hagsmunir hefðu liðið undir lok með samþykkt nýrrar áætlunar. Með því að atvik þessi urðu eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms var málinu vísað án kröfu frá Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 22. október 2009

22/2009

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundsdóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu og Vegagerðinni (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl, Kristinn Bjarnason hrl, Magnús Baldursson hdl)

Í tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um H hafði V lýst þremur framkvæmdakostum. Áfrýjendur lögðu fram tvo framkvæmdakosti til viðbótar, sem þeir færðu rök fyrir að metnir skyldu samhliða kostum V. Í tillögu að matsáætlun sem V sendi til S í október 2006 var fjallað um þá framkvæmdakosti sem áfrýjendur lögðu til og hafnað að þeir yrðu teknir til mats. Í ákvörðun S 5. desember 2006 var fallist á matáætlunina með athugasemdum. V kærði ákvörðunina til umhverfisráðherra, sem með úrskurði 11. maí 2007 féllst á kröfu V um að felldur yrði úr gildi sá hluti hennar sem meðal annars laut að því að V skyldi meta framkvæmdakosti sem áfrýjendur höfðu lagt til. Áfrýjendur höfðuðu mál og kröfðust ógildingar á úrskurði umhverfisráðherra. Talið var að ekki væru slíkir formannmarkar á úrskurði umhverfisráðherra að ógildi varðaði. Þá var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að framkvæmdaaðili hefði forræði á því hvaða framkvæmdakostir uppfylltu markmið framkvæmdar, enda væri mat hans í þeim efnum reist á hlutlægum og málefnalegum grunni. Ekkert hefði komið fram í málinu er gæfi til kynna að leiðaval V hefði ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum. V hefði rökstutt að önnur leiðin, sem áfrýjendur lögðu til, stytti leiðina minna en aðrir kostir, umferðaröryggi væri áfátt þar sem hún lægi nærri þéttbýli og á henni væru margar tengingar við hliðarvegi. Talið var að þessi sjónarmið væru málefnaleg og vörðuðu tilgang og markmið framkvæmdarinnar með þeim hætti að ekki yrði haggað því mati framkvæmdaaðila að hafna þessum kosti til mats. Þá hefðu áfrýjendur ekki hrakið þau rök að hin leiðin væri innan þess öryggissvæðis sem krafist væri vegna flugvallarins. Var talið að þetta væri málefnaleg forsenda til að hafna sérstöku mati á þessum kosti. Þá fælist í úrskurði umhverfisráðherra að tvær aðrar leiðir, sem deilt var um, kæmu til mats með óbeinum hætti og því væri ekki forsendur til að ógilda hann á þeim grunni að þessar leiðir yrðu ekki metnar. Voru V og Í sýknuð af kröfum áfrýjenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2008

E-4705/2007

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundardóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (Dýrleif Kristjánsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vegagerðinni (Kristinn Bjarnason hrl)

Íslenska ríkið og Vegagerðin sýknuð af kröfu nokkurra landeigenda um ógildingu úrskurðar umhverfisráðherra sem laut að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót.