Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lagagrein: 3. gr. laga nr. 105/2006 — Lög um umhverfismat áætlana
Stefnendur kröfðust þess að felld yrði úr gildi sú ákvörðun umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra að heimila stefnda Landsneti hf. eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar Suðurnesjalínu 2 á landi stefnenda og leggja kvöð á jörð þeirra því tengda. Dómurinn féllst ekki á að ákvörðun ráðuneytisins væri haldin annmörkum sem leitt geti til ógildingar og voru stefndu því sýknaðir af kröfum stefnenda.

S o.fl. höfðuðu mál gegn sveitarfélaginu V og Í ehf. og kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun V um staðfestingu á deiliskipulagsbreytingu fyrir nánar tilgreint iðnaðarsvæði í sveitarfélaginu þar sem Í ehf. hugðist reisa súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju. Var málið rekið samhliða öðru máli sem S o.fl. höfðu höfðað vegna þriggja byggingarleyfa sem V hafði gefið út til Í ehf. vegna verksmiðjunnar og til úrlausnar var í dómi Hæstaréttar í máli nr. 738/2017. Byggðu S o.fl. á því að málsmeðferð V við deiliskipulagsbreytinguna hefði ekki samræmst ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulagsbreytingin væri háð efnislegum annmörkum sem leiða ættu til ógildingar hennar. Var meðal annars á því byggt af hálfu S o.fl. að deiliskipulagið hefði ekki sætt umhverfismati í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana og skipulagslög og að skort hefði á að samráð hefði verið haft við S o.fl. við vinnslu og samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar. Þá hefði breytingin bæði gerbreytt eðli deiliskipulagsins og eyðilagt innra samræmi þess. Héraðsdómur hafnaði öllum málsástæðum S o.fl. og taldi að ekki hefði verið sýnt fram á að nokkrir þeir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins sem leitt gætu til þess að fallist yrði á kröfur þeirra. Voru V og Í ehf. því sýknuð af kröfu S o.fl. og staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu.
Landsnet hf og Sveitarfélagið Vogar (
Hjördís Halldórsdóttir hrl, Ívar Pálsson hrl, Áslaug Árnadóttir hdl, 1. prófmál)
gegn
Bjarneyju Guðrúnu Ólafsdóttur, Geirlaugu Þorvaldsdóttur, Katrínu Þorvaldsdóttur, Margréti Guðnadóttur, Ólafi Þór Jónssyni, Reykjaprenti ehf, Sigríði Jónsdóttur, Skúla Þorvaldssyni og STV ehf (
Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)
Í málinu kröfðust B o.fl. þess að ógilt yrði ákvörðun sveitarfélagsins V frá árinu 2015 um að veita L hf. framkvæmdaleyfi til að reisa flutningsvirkið Suðurnesjalínu 2 innan marka sinna. Reistu þau kröfu sína á því að við meðferð málsins hefðu verið brotnar ýmsar reglur laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, skipulagslaga nr. 123/2010 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993, meðal annars með því að ekki hefði verið rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti. Með hliðsjón af dómum Hæstaréttar í málum nr. 511-513/2015 nr. 541/2015 og nr. 796/2015 og að virtum helstu reglum laga nr. 106/2000 og 123/2010 um málsmeðferð vegna matsskyldra framkvæmda og efni matsskýrslna var talið að B o.fl. hefðu sýnt fram á að jarðstrengur hefði verið framkvæmdarkostur sem til greina hefði getað komið. Hefði því borið að gera grein fyrir honum í tillögum og matsskýrslum í matsferlinu og bera hann saman við annan eða aðra framkvæmdarkosti. Það hefði ekki verið gert að öðru leyti en því að látið hefði verið nægja að vísa til almennra sjónarmiða um kosti og galla jarðstrengja. Umhverfisáhrifum jarðstrengs í samanburði við aðra framkvæmdarkosti hefði samkvæmt því ekki verið lýst á fullnægjandi hátt og hefði matsferlið og umhverfismatsskýrslan því ekki uppfyllt þann áskilnað sem gerður er í framangreindum lögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Hefði matsskýrsla L hf. um Suðurnesjalínu 2 og álit Skipulagsstofnunar um skýrsluna því ekki getað verið lögmætur grundvöllur undir ákvörðun sveitarfélagsins V um veitingu framkvæmdaleyfisins. Var fallist á kröfu B o.fl.
Geirlaug, Þorvaldsdóttir, Margrét, Guðnadóttir, Ólafur Þór, Jónsson, Reykjaprent, ehf, Sigríður, Jónsdóttir, Bjarney Guðrún, Ólafsdóttir, STV ehf, Skúli, Þorvaldsson og Katrín Þorvaldsdóttir (
Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)
gegn
Landsneti hf. (
Einar Farestveit hdl) og
og Sveitarfélaginu og Vogum (
Áslaug Árnadóttir hdl)
Framkvæmdarleyfi sem Sveitarfélagið Vogar gaf út til Landsnets hf., var dæmt ógilt.