Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 5. gr. laga nr. 10/2008 — Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2018

E-649/2018

A (Áslaug Árnadóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (María Thejll lögmaður)

Stefnandi krafðist miskabóta með vísan til þess að brotið hefðu verið gegn lögum nr. 10/2008 o.fl. við ákvörðun um ráðningu í sumarstörf hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í maí 2016. Lagt var til grundvallar að úrskurður kærunefndar jafnréttismála um að brotið hefði verið gegn lögunum væri bindandi. Aftur á móti var kröfu stefnanda um miskabætur samkvæmt samkvæmt 31. gr. laganna hafnað þar sem skilyrðið um verulegt gáleysi var ekki talið uppfyllt. Að sama skapi fékk krafan ekki stoð í b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, enda ólögmætri meingerð gagnvart stefnanda ekki til að dreifa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2017

E-2475/2016

Gná Guðjónsdóttir (Áslaug Árnadóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)

Stefnandi krafðist skaðabóta úr hendi ríkisins vegna brota gegn jafnréttislögum við setningu í stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu í maí 2014.

Hæstiréttur birt 15. janúar 2015

364/2014

Landspítali (Daníel Isebarn Ágústsson hrl, Páll Rúnar M. Kristjánsson hdl) gegn Stefáni Einari Matthíassyni

L höfðaði mál á hendur S og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar jafnréttismála, þar sem komist var að niðurstöðu um að brotið hefði verið gegn ákvæðum laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla við ráðningu í starf yfirlæknis æðaskurðlækninga með því að S, sem var á meðal umsækjenda um stöðuna, var talinn hæfari til að gegna starfinu en sá umsækjenda sem ráðinn var. S var sýknaður af kröfu L með skírskotun til þess að kærunefnd jafnréttismála hefði beitt lögmætum aðferðum í úrlausn sinni og ekki farið út fyrir valdsvið sitt eða verksvið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2012

X-543/2010

Oddný Ingimarsdóttir (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Kaupþingi banka hf (Feldís Lilja Óskarsdóttir hdl)

Deilt var um hvort við slit varnaraðila bæri að viðurkenna skaðabótakröfu sóknaraðila á hendur varnaraðila vegna brots gegn jafnréttislögum og þá hverrar stöðu í réttindaröð krafan nyti. Fallist á að viðurkenna bæri skaðabótakröfu sóknaraðila, þó að lægri fjárhæð en krafist var. Hafnað að krafan nyti stöðu sem forgangskrafa, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 112. gr. laga nr. 21/1991 en viðurkennt að hún nyti stöðu sem almenn krafa sbr. 113. gr. sömu laga.