Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Upplýsingaskylda seljanda

Hæstiréttur birt 20. maí 2026 kl. 15:06

49/2025

Birgitta Strange og Pálmi Ólafur Theódórsson (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Kristmundi Stefáni Einarssyni og Írisi Dröfn Árnadóttur (Ívar Pálsson lögmaður) og gagnsök og til réttargæslu Magnúsi Filip Sævarssyni og Sentor ehf (Guðmundur Óli Björgvinsson lögmaður)

K og Í höfðuðu mál á hendur B og P og kröfðust skaðabóta eða afsláttar vegna galla sem þau töldu vera á fasteign er þau keyptu af B og P með milligöngu M og S ehf. B og P stefndu M og S ehf. til réttargæslu. Hæstiréttur lagði til grundvallar að ekki hefði verið hnekkt matsgerð dómkvadds manns um ástands hússins. Fasteignin var talin gölluð vegna þess að ástand hennar var ekki í samræmi við upplýsingar sem K og Í fengu við kaupin auk þess sem fallist var á kröfu um greiðslu kostnaðar við flutning búslóðar á framkvæmdatíma. Ekki þóttu efni til að lækka skaðabætur til K og Í vegna endurbóta á þaki eignarinnar af þeim sökum að nýtt hefði komið í stað notaðs. Þá var B og P gert að endurgreiða K og Í dráttarvexti sem þau höfðu greitt til að fá útgefið afsal fyrir eigninni. Vextir af skaðabótum voru reiknaður frá dagsetningu matsgerðar en dráttarvextir frá því mánuði eftir að K og Í lögðu fram upplýsingar sem þörf var á til að meta tjónsatvik. Einnig var við ákvörðun vaxta tekið mið af því að K og Í héldu aftur lokagreiðslu hluta þessa tíma.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2024

E-3197/2023

Þórhallur Ólafsson og Halla María Ólafsdóttir (Eva Halldórsdóttir lögmaður) gegn Hilmari F. Thorarensen og Ingigerði Þorsteinsdóttur (Jón Gunnar Ásbjörnsson lögmaður) og Fasteignamarkaðnum ehf. og Guðmundi Theódór Jónssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Kristín Edwald lögmaður)

Seljendum fasteignar ásamt fasteignasala, fasteignasölu og vátryggingafélagi hinna síðastnefndu tveggja aðila var gert að greiða kaupendum fasteignar skaðabætur vegna ágalla á fasteigninni sem rekja mátti til þess að veittar voru rangar upplýsingar við söluna.