Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Skaðabótaréttur
Fallist var á fjárkröfu stefnanda í máli hans gegn tryggingafélagi. Málið varðaði einkum ágreining um viðkomandi skilmála vátryggingasamnings vegna frítímaslysatryggingar stefnanda og sönnun og sönnunarbyrði í því sambandi.
Sýkna í vinnuslysi.
Fyrirtækið N krafði R um skaðabætur fyrir tjón sem N taldi hafa orðið í fiskeldisstöð sinni vegna opnana R á botnloku stíflu í Fljótaá í Skagafirði í mars 1994 og júní 1995. R krafði N um greiðslu á rafmagnsreikningum í gagnsök. Fram hafði komið að við opnunina á botnlokunni vegna viðgerða í mars 1994 hljóp fram mikið efnismagn úr miðlunarlóni. Voru þá aðrir eigendur að fiskeldisstöðinni, en N keypti stöðina síðari hluta ársins 1994. Hafði bótakrafa fyrri eigenda ekki fylgt með í kaupunum og gerði N heldur ekki kröfur vegna hennar á hendur R. Reyndi því ekki á bótaskyldu R vegna affalla á fiski í stöðinni vorið 1994. Í apríl 1995 urðu enn töluverð afföll í stöðinni og taldi N þau stafa af framkvæmdum R árið áður. Afföll þessi voru rakin til eitrunar af völdum brennisteinsvetnis. Sýnt var að dæmi voru um að slík eitrun hafði myndast í vatninu sem fiskeldisstöðin stóð við, sökum náttúrulegra aðstæðna við vatnið, sérstaklega þegar ís og snjór lágu yfir líkt og var þegar eitrunin varð. Ekki hafði verið sýnt fram á að aðgerðir R hefðu getað valdið þessu tjóni N svo löngu síðar, eða um ári eftir að viðgerðin fór fram. Var N ekki talinn hafa sannað að tjón hans hafi mátt rekja til umræddra aðgerða R. N reisti kröfur sínar einnig á því að tjón af völdum nýrnaveiki í fiski í stöðinni í júní 1995 mætti rekja til þess að opnað hafi verið að nýju fyrir botnlokuna. Af gögnum málsins varð hins vegar ráðið að flóð höfðu orðið í Fljótaá af völdum mikilla vorleysinga það árið. Höfðu leysingarnar m.a. valdið því að á sem rann í miðlunarlón stíflunnar braut sér leið fram hjá stíflumannvirkjum með miklum framburði aurs og grjóts í ána neðan þeirra. Voru þetta atburðir sem voru ekki á valdi R og hann gat ekki borið ábyrgð á. Var R sýknaður af skaðabótakröfum N. N var gert að greiða R fyrir raforku samkvæmt varakröfu R í gagnsök.