Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lykilorð: Samningur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2022

E-2226/2021

Landsverk (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Þ.G. verktökum ehf (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

Stefnandi, sem er stjórnvald í Færeyjum, setti fram kröfu á hendur stefnda, sem er íslenskt verktakatfyrirtæki, á grundvelli yfirlýsingar sem stefnandi byggði á að fæli í sér ábyrgð á verki færeysks systurfélags stefnda. Kröfum stefnanda var hafnað þar sem ábyrgðarkrafa á grundvelli yfirlýsingarinnar var talin fyrnd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. desember 2021

E-122/2021

Hulda Rós Guðnadóttir (Auður Tinna Aðalbjarnardóttir lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Dagmar Arnardóttir lögmaður)

Stefnandi, sem var leikstjóri og einn þriggja handritshöfunda kvikmyndar, krafðist bóta úr hendi stefnda vegna myndefnis úr kvikmyndinni sem notað var á sýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Fallist var á hluta af kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2021

E-1853/2021

Magnhildur Sigurbjörnsdóttir (Lára Valgerður Júlíusdóttir lögmaður) gegn þjóðkirkjunni – Biskupsstofu (Árni Gestsson lögmaður)

Stefndi, sem er trúfélag, var sýknaður af kröfum fyrrum starfsmanns stefnda, sem byggðust á því að starfsmanninum hefði verið sagt upp starfi með ólögmætum hætti sem valdið hefði starfsmanninum tjóni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2021

E-7632/2020

Guðmundur Ómar Þráinsson (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn embætti ríkislögreglustjóra og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að stefndu bæri að greiða honum laun vegna starfa hans í þágu embættis ríkislögreglustjóra í samræmi við samkomulag málsaðila frá 26. ágúst 2019.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2021

E-7631/2020

Ásgeir Karlsson (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn embætti ríkislögreglustjóra og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að stefndu bæri að greiða honum laun vegna starfa hans í þágu embættis ríkislögreglustjóra í samræmi við samkomulag málsaðila frá 26. ágúst 2019.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2021

E-7630/2020

Árni Elías Albertsson (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn embætti ríkislögreglustjóra og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að stefndu bæri að greiða honum laun vegna starfa hans í þágu embættis ríkislögreglustjóra í samræmi við samkomulag málsaðila frá 26. ágúst 2019.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2021

E-7617/2020

Óskar Bjartmarz (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn embætti ríkislögreglustjóra og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að stefndu bæri að greiða honum laun vegna starfa hans í þágu embættis ríkislögreglustjóra í samræmi við samkomulag málsaðila frá 26. ágúst 2019.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júní 2021

E-7866/2020

Suðurhús ehf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn Flugleiðahótelum hf og Icelandair Group hf (Gunnar Sturluson lögmaður)

Fallist var á kröfu leigusala um að leigutaka húsnæðis yrði gert að greiða ógreidda húsaleigu. Þá var ábyrgðaraðila samkvæmt leigusamningi gert að greiða umsamda ábyrgð vegna greiðslufalls leigutaka.