Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Sakarábyrgð
Því var hafnað að meðferð opinberra starfsmanna á máli stefnanda hefði verið saknæm og ólögmæt. Stefnandi var ekki talinn hafa sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hennar. Hann var talinn verða bera sjálfur þann kostnað sem hann hefði haft af málsmeðferðinni þótt hann hefði falið lögmanni að hafa samskipti við stjórnvöld.
Stefnandi krafði stefndu um bætur eða afslátt vegna ágalla í loftum fasteignar sem eiginmaður stefnanda hafði keypt af stefndu en hann framseldi síðar kröfur vegna fasteignarinnar til stefnanda. Henni tókst ekki að sýna fram á að atvik hefðu verið með þeim hætti að stefndu skyldu bera bótaábyrgð á sakargrundvelli. Þá náði sá galli sem sannaður þótti ekki gallaþröskuldi. Voru stefndu því sýknuð af öllum kröfum stefnanda.