Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Réttindum aflýst eða þau afmáð

Héraðsdómur Reykjaness birt 31. ágúst 2016

T-2/2014

Hansína Sesselja Gísladóttir, db. Finnborgar Bettýjar Gísladóttir, Guðmundur Gíslason, Margrét Margrétardóttir, Gísli Finnsson og Elísa Finnsdóttir (Oddur Þórir Þórarinsson hdl) gegn Þorsteini Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) og Skógræktarfélagi Kópavogs (Guðjón Ármannsson hrl)

Þinglýsing. Kröfum sóknaraðila um afmáningu tveggja skjala úr þinglýsingabók hafnað. Þá var kröfu sóknaraðila um afmáningu þriðja skjalsins vísað frá dómi þar sem sóknaraðilar höfðu ekki lögvarða hagsmuni af því að leyst yrði úr kröfunni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. júní 2011

T-1/2011

Arion banki hf (Sigurður Guðmundsson hdl) gegn Jörundi Jörundssyni, Erni Andréssyni, Kristni Jörundssyni, Andrési H. Arnarsyni, Hinriki Arnarsyni og Berglindi Arnardóttur (Gestur Jónsson hrl)

Deilt var um þá úrlausn sýslumanns að þinglýsa að nýju kvöð sem hafði verið afmáð úr þinglýsingabók vegna mistaka. Kröfu sóknaraðila, um að fella úr gildi þá ákvörðun sýslumanns að þinglýsa kvöðinni á ný, var hafnað.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 24. desember 2007

T-1/2007

A (Sigurður A. Þóroddsson hdl) gegn sýslumanninum á Blönduósi (Einar Sigurjónsson hdl)

Fallist var á kröfu sóknaraðila og lagt fyrir þinglýsingarstjóra að afmá með öllu þinglýsta yfirlýsingu varnaraðila af eignarhluta sóknaraðila í jörð, þ.m.t. eignarhluta hans í sumarhúsi í landi jarðarinnar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. október 2007

T-3/2007

Kristín Bjarnadóttir (Dýrleif Kristjánsdóttir hdl) gegn Þórunni Kristjánsdóttur og Ingimundi B Garðarssyni (Torfi Ragnar Sigurðsson hdl)

Sóknaraðili gerði þá kröfu að ákvörðun sýslumanns, um að afmá einhliða yfirlýsingu varnaraðila um umferðarrétt á jörð þeirra, úr þinglýsingabók, yrði felld úr gildi. Var kröfu sóknaraðila hafnað og honum gert að greiða varnaraðila málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. september 2007

T-2/2007

Alefli ehf (Gestur Óskar Magnússon hdl) gegn Birni og Guðna hf (Sveinn Jónatansson hrl)

Sóknaraðili skaut ákvörðun þinglýsingarstjórans í Reykjavík, þess efnis að afmá þinglýst skjöl af fasteign,til dómsins. Ágreiningur var um efni gagntilboðs og var talið að ekki kæmi ótvírætt fram í gagntilboði hvaða eign var verið að selja. Var kröfum sóknaraðila því hafnað.