Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 22. október 2007.
Mál nr. T-3/2007:
Ár 2007, mánudaginn 22. október, er á dómþingi
Kristín
Bjarnadóttir
gegn
Þórunni
Kristjánsdóttur og
Ingimundi B.
Garðarssyni
kveðinn upp svofelldur
ú r s k u r ð u r :
Með bréfi, dagsettu 23. júlí sl., kærði Dýrleif Kristjánsdóttir hdl.,
fyrir hönd Kristínar Bjarnadóttur, kt. 000000-0000, Villingaholti 2, 801
Selfossi, ákvörðun sýslumannsins á Selfossi frá 3. júlí sl., að afmá úr
þinglýsingabókum yfirlýsingu, dagsetta 4. september 2001, um leyfi fyrir
aðgengi að landspildu í landi Villingaholts en tilheyrandi Villingaholti 2, í
gegnum land Vatnsenda, skjal nr. 3982, innfært í þinglýsingabók embættisins
þann 20. september 2001. Kæran barst dóminum 24. júlí sl. og samkvæmt gögnum
málsins mun sýslumaðurinn á Selfossi hafa fengið afrit kærunnar sent, sbr. 3.
mgr. 3. gr. þinglýsingalaga. Málið var þingfest 9. ágúst sl. Af hálfu
varnaraðila var greinargerð lögð fram í þinghaldi þann 22. ágúst sl. og voru
athugasemdir sýslumannsins á Selfossi lagðar fram í þinghaldi þann 5. september
sl. Dómurinn nýtti heimild í síðasta málslið 4. mgr. 3. gr. laganna til að láta
tekið til úrskurðar eftir að aðilar höfðu reifað sjónarmið sín.
Sóknaraðili er Kristín Bjarnadóttir,
kt. 000000-0000, og varnaraðilar eru Þórunn Kristjánsdóttir, kt. 000000-0000,
og Ingimundur B. Garðarsson, kt. 000000-0000.
Sóknaraðili kefst þess að hinni kærðu
ákvörðun þinglýsingarstjóra 3. júlí 2007 verði hrundið og að lagt verði fyrir
þinglýsingarstjóra sýslumannsembættisins á Selfossi að færa að nýju í
fasteignabók yfirlýsingu, dagsetta 4. september 2001, um leyfi fyrir aðgengi að
landspildu í landi Villingaholts, tilheyrandi Villingaholti 2, á jörðinni
Vatnsenda. Jafnframt er krafist málskostnaðar úr hendi varnaraðila að mati
dómsins.
Varnaraðilar krefjast þess að öllum
kröfum sóknaraðila verði hafnað. Jafnframt er þess krafist af hálfu varnaraðila
að sóknaraðili verði dæmdur til greiðslu málskostnaðar í samræmi við framlagðan
málskostnaðarreikning.
Málavextir.
Málavextir eru þeir að þann 28. október
1967 keypti Svavar Bjarnason 3.300 m² og 96.700 m² landspildur úr landi
Villingaholts í Villingaholtshreppi. Er í afsalinu vitnað til að stærri spildan
sé í norðvesturhorni jarðarinnar við mörk Þingdals og Vatnsenda og ráði
vélgrafinn skurður mörkum milli þessarar spildu og áðurgreindra jarða. Engu er
getið um umferð um landið. Í nóvember 1972 undirrituðu eigendur jarðanna
Vatnsenda, Villingaholts og Þingdals í Villingaholtshreppi yfirlýsingu þess
efnis að skurður, sem grafinn var sem því næst á mörkum jarðanna, skuli
framvegis talinn mörk þeirra í millum, þ.e. milli Villingaholts annars vegar og
Vatnsenda og Þingdals hins vegar. Smáspilda lands frá Vatnsenda lendi
Villingaholtsmegin við skurðinn og skuli hún vera talin með Villingaholti.
Fyrir þessa spildu greiðist ekkert gjald þar sem markaskurður milli þessara
jarða sé á löngum kafla grafinn að öllu leyti í landi Villingaholts.
Yfirlýsingu þessari var þinglýst 9. maí 1973.
Þann 4. september 2001 undirrituðu
Þórunn Kristjánsdóttir og Ingimundur Bergmann yfirlýsingu sem hafði
yfirskriftina „Leyfi fyrir aðgengi.“ Segir þar:
„Við undirrituð veitum leyfi
fyrir aðgengi að landspildu í
landi Villingaholts sem er í eigu Svavars
Bjarnasonar Villingaholti 2, í gegnum Vatnsendaland. Ræsi verði sett í skurðinn
austan við Þingdalsveginn og braut gerð á skurðsbakkanum beint upp að
spildunni, skurður þessi er á mörkum Vatnsenda og Þingdals. Brautin verði ekki
(Torfi Ragnar Sigurðsson hdl)
Lykilorð
Aflýsing. Eignarréttur. Kvöð. Umferðarréttur. Þinglýsing. Réttindum aflýst eða þau afmáð.
Útdráttur
Sóknaraðili gerði þá kröfu að ákvörðun sýslumanns, um að afmá einhliða yfirlýsingu varnaraðila um umferðarrétt á jörð þeirra, úr þinglýsingabók, yrði felld úr gildi. Var kröfu sóknaraðila hafnað og honum gert að greiða varnaraðila málskostnað.
Mál þetta barst með kæru, dagsettri 23. júlí 2007, til dómsins, þar sem kærð er ákvörðun sýslumannsins á Selfossi um að afmá yfirlýsingu, dagsetta 4. september 2001, um leyfi fyrir aðgengi að landspildu í landi Villingaholts í gegnum land Vatnsenda, úr þinglýsingabók. Þegar efni yfirlýsingarinnar, sem gerð var að Vatnsenda 4. september 2001, er skoðað kemur þar fyrst fyrir titill hennar en þar segir „Leyfi fyrir aðgengi“. Þá segir ennfremur: „Við undirrituð veitum leyfi fyrir aðgengi að landsspildu í landi Villingaholts sem er í eigu Svavars Bjarnasonar Villingaholti 2, í gegnum Vatnsendaland“. Í síðustu málsgrein yfirlýsingarinnar segir: „Verði um átroðning eða önnur óþægindi að ræða vegna umferðar um brautina áskilja undirrituð sér rétt til að endurskoða þetta leyfi“. Undir yfirlýsinguna rita síðan Þórunn Kristjánsdóttir og Ingimundur Bergmann en undirritaðir eru eigendur og ábúendur jarðarinnar Vatnsenda. Af yfirlýsingunni má ljóst vera að þar er um að ræða einhliða yfirlýsingu um leyfi til handa eigendum spildu í landi Villingaholts að fara í gegnum land Vatnsenda að landareign sinni. Hér er ekki um tvíhliða samning að ræða, en ekkert gagngjald virðist koma fyrir leyfið af yfirlýsingunni að dæma eða öðrum gögnum málsins, aukinheldur sem einungis eigandi og ábúandi Vatnsenda skrifa undir yfirlýsinguna. Í yfirlýsingunni felast hins vegar ákveðin afnotaréttindi á landi Vatnsenda, og háð eru ákveðnum skilyrðum, til handa eigendum spildunnar í landi Villingaholts. Af efni yfirlýsingarinnar að ráða virðast útgefendur hennar hafa lofað að endurskoða ekki leyfið nema ef „átroðningur eða önnur óþægindi“ yrðu vegna umferðar um brautina í gegnum land Vatnsenda. Er ekki annað að sjá en að þar sé eingöngu um huglægt mat eigenda Vatnsenda að ræða.
Þegar beiðni berst þinglýsingarstjóra um afgreiðslu skjals miðast könnun þinglýsingarstjóra fyrst og fremst við efni þinglýstra heimilda. Þinglýsingarstjóra ber því almennt ekki að taka afstöðu til efnisatvika að baki tilteknu skjali. Í málinu liggur fyrir að varnaraðili krafðist að fyrrgreind yfirlýsing yrði afmáð úr þinglýsingabók. Meðfylgjandi beiðni varnaraðila til þinglýsingarstjóra var afrit af bréfi varnaraðila til sóknaraðila, dagsett 29. desember 2006, þar sem leyfi samkvæmt yfirlýsingunni var sagt upp m.t.t. áðurnefnds fyrirvara í yfirlýsingunni. Hafa varnaraðilar því fullnægt þeirri ákvörðun sinni, sem tilgreind var í skjalinu, að meta hvort það skilyrði væri uppfyllt eða ekki áður en þau fóru fram á að skjalið yrði afmáð úr þinglýsingabók. Skjalinu var eingöngu þinglýst á eign varnaraðila en ekki á landareign þeirra sem áttu að njóta umferðarréttar. Þinglýsingin sem slík hefur því haft gildi gagnvart síðari viðsemjendum varnaraðila en ekki gagnvart síðari viðsemjendum eigenda annarra jarða eða eigna. Þá hefur þinglýsing skjalsins, sem slík, ekki neina þýðingu varðandi efnislegt samkomulag aðila um umferðarrétt. Fyrir þinglýsingarstjóra lá beiðni um aflýsingu yfirlýsingar, ásamt uppsögn á leyfi í samræmi við efni yfirlýsingarinnar. Það er því mat dómsins að þinglýsingarstjóri hafi uppfyllt könnunarskyldur sínar og aflýsing yfirlýsingarinnar hafi verið réttmæt afgreiðsla af hálfu þinglýsingarstjóra.
Er ákvörðun þinglýsingarstjóra sýslumannsins á Selfossi um að afmá yfirlýsingu, dagsetta 4. september 2001, um leyfi fyrir aðgengi að landspildu í landi Villingaholts í gegnum land Vatnsenda, skjal nr. 3982, staðfest.
Í samræmi við þessi úrslit ber að úrskurða sóknaraðila til að greiða varnaraðila 208.000 krónur í málskostnað.
Óverulegur dráttur hefur orðið á uppkvaðningu úrskurðar þessa vegna anna dómarans.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð.
Hafnað er kröfu sóknaraðila, Kristínar Bjarnadóttur, um að ákvörðun sýslumannsins á Selfossi um að afmá yfirlýsingu, dagsetta 4. september 2001, skjal nr. 3982, af jörðinni Vatnsenda í Villingaholtshreppi, verði felld úr gildi og honum gert að færa hana að nýju í þinglýsingabók.
Sóknaraðili, Kristín Bjarnadóttir, greiði varnaraðilum, Þórunni Kristjánsdóttur og Ingimundi B. Garðarssyni, 208.000 krónur í málskostnað.
Ástríður Grímsdóttir.