Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Meðábyrgð

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. maí 2025

E-3895/2024

A (Guðmundur Sæmundsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Viðurkenndur var réttur stefnanda til bóta að tveimur þriðju hlutum úr hendi hins stefnda tryggingafélags á grundvelli 1. mgr. 4. gr. laga nr. 30/2019 en vegna meðábyrgðar var talið að stefnandi þyrfti að bera einn þriðja hluta af tjóni sínu sjálfur á grundvelli 4. mgr. ákvæðisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. apríl 2025

E-3894/2024

A (Klara Óðinsdóttir lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Telma Sif Reynisdóttir lögmaður)

Viðurkennt var að vinnuveitandi bæri skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda en stefnandi talinn hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og gert að bera tjón sitt að hluta til sjálfur.

Landsréttur birt 10. apríl 2025

173/2024

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

A höfðaði mál og krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda S úr frjálsri ábyrgðartryggingu nánar tiltekins félags vegna líkamstjóns sem hann hlaut í vinnuslysi. Slysið bar að með þeim hætti að hann stóð uppi á stafla af mótaflekum og var að taka á móti einum slíkum, sem hífður hafði verið upp með byggingarkrana og koma átti fyrir ofan á þeim flekum sem þar voru fyrir, er hreyfing kom á flekann með þeim afleiðingum að hann slóst í A sem við það kastaðist út af staflanum og niður á hellulagða akbraut. Í hinum áfrýjaða dómi var lagt til grundvallar að starfsmaður vátryggingartaka hefði ekki sýnt af sér saknæma háttsemi þegar hann ákvað að hífa mótafleka við þær veðuraðstæður sem uppi voru í umrætt sinn. Landsréttur taldi ljóst að slys A hefði komið til vegna vindhviðu, sem varð til þess að mótafleki feyktist til og slóst í A, og að taka þyrfti afstöðu til þess hvort sú vindhviða hefði verið óvænt, líkt og gengið hefði verið út frá í hinum áfrýjaða dómi, eða hvort fyrir hendi hefði verið vanræksla á því að taka nægilegt tillit til veðuraðstæðna, þannig að saknæmt teldist. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að E hefði skynjað að hætta gæti verið á ferðum vegna vindstyrks en að hann hefði engu að síður ákveðið að framkvæma verkið og treysta á að það leiddi ekki til tjóns. Með þessari háttsemi var hann talinn hafa vikið frá þeim ríku skyldum sem á honum hvíldu og var það metið honum til sakar. Var því fallist á kröfu A um viðurkenningu á bótaskyldu en ekki var talið sýnt fram á að bótaréttur A skertist vegna meðábyrgðar.

Landsréttur birt 30. janúar 2025

724/2023

A (Björgvin Þórðarson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Kristín Edwald lögmaður) og VÍS tryggingum hf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur S og V og krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda úr ábyrgðartryggingu X, áður Þ, hjá stefnda S, og Z, hjá stefnda V, vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í vinnuslysi er hann féll til jarðar af vörubílspalli þegar verið var að hífa steyptar holplötur með krana af fyrrgreindum palli. Í héraðsdómi voru S og V sýknuð en lagt var til grundvallar að slysið hefði orðið vegna aðgæsluleysis A. Landsréttur taldi á hinn bóginn að A hefði slasast við verk sem honum hefði verið gert að vinna í veðri sem taldist sannað að hefði gert verkið erfitt og varasamt og átt þátt í því að slysið varð. Þá hefði A verið látinn skrifa undir áhættumat á tungumáli sem hann skildi ekki, auk þess sem gögn málsins bæru með sér að hann hefði hlotið takmarkaða kennslu og þjálfun þrátt fyrir brýna þörf. Með þessu taldi Landsréttur að Þ hefði vikið frá þeim ríku skyldum sem á honum hvíldu og það metið honum til sakar. Um ábyrgð Z, sem ekki var vinnuveitandi A, sagði Landsréttur meðal annars að D, kranastjóri Z, hefði haldið verkinu áfram þrátt fyrir veðuraðstæður og skilja yrði framburð hans fyrir dómi svo að hann hefði talið hættu á ferðum en ákveðið að framkvæma verkið eigi að síður og treysta á að það leiddi ekki til tjóns. Með þessari háttsemi hefði D og þar af leiðandi vinnuveitandi hans Z vikið frá þeim ríku skyldum sem á Z hvíldu sem atvinnurekanda og var það metið honum til sakar. Viðurkenndi Landsréttur því óskipta bótaskyldu S og V úr fyrrgreindum ábyrgðartryggingum en ekki var talið tilefni til að takmarka bótarétt A vegna meðábyrgðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júlí 2022

E-2147/2021

A (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)

Sýknað af kröfu manns um fullar bætur, sem tekið hafði sér far með ölvuðum ökumanni, þar sem hann yrði að bera meðábyrgð á tjóni sínu vegna eigin sakar um sem næmi 2/3 hlutum tjónsins.