Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lykilorð: Mál um vörumerki

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. júlí 2012

E-1450/2011

Hótel Keflavík ehf (Hulda Árnadóttir hdl) gegn Flugleiðahóteli ehf og H 57 - Flughóteli Keflavík ehf (Jóhannes Sigurðsson hrl)

Staðfest var lögbann Sýslumannsins í Hafnarfirði við við því að stefndu noti auðkenni sem innihalda vörumerki og firmaheiti "Hótel Keflavík" / "Hotel Keflavik". Jafnframt var fallist á viðurkenningarkröfu stefnanda, þess efnis að stefndu væri óheimilt að nota þessi auðkenni fyrir hótel þeirra að Hafnargötu 57, Reykjanesbæ, sem nefnt hafði verið Icelandair hótel keflavík eða Icelandair Hotel Keflavik.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. júní 2009

E-3595/2008

Eðalfiskur ehf gegn Salathúsinu, ehf, kveðinn og upp svohljóðandi

Aðila greindi á um heimild stefnda til að nota vörumerkið EÐALLAX og önnur vörumerki, sem líkjast því eða fela í sér aðra tilvísun til þess vörumerkis. Sýkna

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2007

E-87/2007

Bakkavör Group hf (Árni Vilhjálmsson hrl) gegn Eignarhaldsfélaginu Bakkavör ehf (Ragnheiður Margrét Ólafsdóttir hdl)

Eignarhaldsfélagið Bakkavör ehf. var sýknað af kröfu Bakkavarar Group hf. um notkun á firmaheitinu Bakkavör þar sem málshöfðunarfrestir í lögum um einkahlutafélög um ágreining um firmaheiti voru liðnir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2007

E-3193/2006

Aðilar deildu um notkunarheimild á heitinu Marco og léninu marco.is. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda þess efnis að viðurkennt væri að stefnda væri óheimil notkun heitisins og lénsins og að viðurkennd væri skylda stefnda til nafnabreytingar á einkahlutafélaginu.