Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Hryðjuverk

Hæstiréttur birt 11. mars 2026

28/2025

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Sindra Snæ Birgissyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Ísidóri Nathanssyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S og Í voru ákærðir fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Þá var S einnig ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Í fyrir hlutdeild í því broti. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur meðal annars um sakfellingu ákærðu fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðdóms um sýknu ákærðu af sakargiftum um tilraun til hryðjuverks og hlutdeild í því broti. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar um að hafna kröfu um frávísun málsins frá héraðsdómi. Rétturinn taldi á hinn bóginn að ágallar höfðu verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þar sem Hæstiréttur gæti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar var óhjákvæmilegt vegna framangreindra annmarka að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

Landsréttur birt 6. mars 2025

324/2024

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Sindra Snæ Birgissyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Ísidóri Nathanssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður, Einar Oddur Sigurðsson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S og Í voru ákærðir fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum, þá var S einnig ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Í fyrir hlutdeild í því broti. Með dómi Landsréttar var fallist á kröfu ákæruvaldsins um sakfellingu ákærðu fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Á hinn bóginn þótti því ekki verða slegið föstu að S hafi með athöfnum þeim sem í ákæru greindi sýnt ótvírætt í verki ásetning til að fremja hryðjuverk. Þá yrði heldur ekki talið að sýnt hefði verið fram á ásetning Í til hlutdeildar í slíkum verknaði, auk þess sem það leiddi af niðurstöðu réttarins um þátt S að ekki gæti komið til sakfellingar Í fyrir háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu ákærðu af sakargiftum um tilraun til hryðjuverks og hlutdeild í því broti. Var ákærðu dæmd refsing fyrir brot gegn vopnalögum og refsing S ákveðin fangelsi í 18 mánuði en refsing Í fangelsi í 15 mánuði. Þá var upptaka muna staðfest með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2024

S-6091/2022

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Sindra Snæ Birgissyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Ísidóri Nathanssyni (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu voru sakfelldir fyrir stórfelld vopnalagabrot en sýknaðir af ákæru fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Þá var annar ákærðu einnig sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum.