Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Fylgifé

Landsréttur birt 5. desember 2024

857/2023

Jóhannes Helgi Einarsson Bachmann (Valgeir Kristinsson lögmaður, Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður, 4. prófmál) gegn Veðskuldabréfasjóðnum Virðingu (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður)

Deilt var um hvort 91 geymslueiningar teldust til fylgifjár fasteignarinnar Á sem VV eignaðist með afsali í kjölfar nauðungarsölu sem fram fór hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og hvort þær teldust þannig hafa orðið eign VV við útgáfu afsalsins. J byggði á því að hann hefði áður en nauðungarsalan fór fram eignast geymslueiningarnar á grundvelli afsals M ehf. til sín. Í dómi Landsréttar kom fram að ekkert lægi fyrir um að M ehf. hefði eignast umræddar geymslueiningar með löggerningi. Þá hefði J samkvæmt gögnum málsins gefið ýmsar yfirlýsingar um eignarhald á umræddum geymslueiningum sem samræmdust ekki málatilbúnaði hans fyrir Landsrétti. Yrði ekki ráðið af gögnum málsins að J hefði í reynd verið eigandi að geymslueiningunum, hvorki þegar nauðungarsalan fór fram né þegar gefið var út afsal til VV. Var því fallist á að geymslueiningunum hefði í kjölfar nauðungarsölunnar verið afsalað VV sem fylgifé fasteignarinnar Á.

Hæstiréttur birt 27. mars 2018

170/2017

Golden Seafood Company ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Íslandsbanka hf, Jöfri ehf (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður), Íslandsbanki hf. gegn (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Golden Seafood Company ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

G ehf. höfðaði mál á hendur Í hf. og J ehf. til heimtu bóta vegna galla á fasteign sem félagið hafði keypt af Í hf. fyrir milligöngu J ehf. Byggði G ehf. í fyrsta lagi á því að skort hefði á að öll þau tæki og búnaður sem áskilin voru við kaupin hefðu fylgt fasteigninni. Í öðru lagi byggði G ehf. á því að fasteignin hefði verið haldin galla vegna leka með þaki og á milligangi. Þá byggði G ehf. í þriðja lagi á því að það ætti rétt til bóta vegna þess óbeina tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna vanefndanna. Héraðsdómur sýknaði J ehf. af kröfum G ehf. en féllst á kröfu þess á hendur Í hf. vegna þakgallans. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms vegna þakgallans en taldi að hafna bæri kröfu G ehf. um bætur vegna vöntunar á tækjum og búnaði, annars vegar að með vísan til þess að félagið hefði ekki sinnt áskorun seljanda um skoðun fyrir kaupin og hins vegar með vísan til þess að G ehf. hefði ekki innan sanngjarns frests tilkynnt Í hf. um vanefndina og að félagið hygðist bera hana fyrir sig. Þá hafnaði rétturinn kröfu G ehf. um bætur fyrir óbeint tjón með vísan til 1. mgr. 43. gr. laga nr. 40/2002. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms samkvæmt því staðfest.

Hæstiréttur birt 14. júní 2007

580/2006

Austurveita, Ölfusi (Magnús Thoroddsen hrl) gegn Björgvin Ásgeirssyni og Hafdísi Ósk Guðmundsdóttur (Sigurður Sigurjónsson hrl)

Deilt var um hvort eignarhlut í A hafi verið ráðstafað með jörðinni Hlíðartungu við nauðungarsölu hennar og tilheyrði þannig B og H eða hvort hann væri ennþá í eigu BK. Við nauðungarsölu jarðarinnar á uppboði 12. desember 2002 var lagt fram bréf af hálfu A þar sem gerð var krafa um að gætt yrði hagsmuna A varðandi nauðungarsöluna. Í bréfinu kom fram að einn eignarhlutur í A fylgdi jörðinni Hlíðartungu. Taldi Hæstiréttur að vegna þessa hefði B, sem varð hæstbjóðandi við uppboðið og gerðist þannig kaupandi að jörðinni, mátt líta svo á að A hafi með þessu tekið af tvímæli fyrir sitt leyti um að eignarhlutur í A fylgdi jörðinni við nauðungarsölu hennar. B og H höfðu vegna deilunnar greitt með fyrirvara fyrir vatn úr A en kröfðust endurgreiðslu. Óumdeilt var að eigendur A áttu rétt á að fá 10 mínútulítra af heitu vatni úr veitunni án endurgreiðslu. Þar sem B og H áttu eignarhlut í A var fallist á endurgreiðslukröfu þeirra.