Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Framlagning skjala

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. júní 2015

S-206/2013

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn Hreiðari Má Sigurðssyni (Hörður Felix Harðarson hrl), Sigurði Einarssyni (Gestur Jónsson hrl), Ingólfi Helgasyni (Grímur Sigurðsson hrl), Einari Pálma Sigmundssyni (Gizur Bergsteinsson hrl), Birni Sæ Björnssyni (Halldór Jónsson hrl), Pétri Kristni Guðmarssyni (Vífill Harðarson hrl), Magnúsi Guðmundssyni (Kristín Edwald hrl) og Bjarka H. Diego (Jóhannes Sigurðsson hrl)

Markaðsmisnotkun. Umboðssvik.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. júlí 2013

E-1889/2011

Arion banki hf (Sigurður Guðmundsson hdl) gegn Einari Þór Einarssyni (Kristján Stefánsson hrl)

Stefnandi krafði stefnda um greiðslu samkvæmt skuldabréfi sem hafði í upphafi verið til fimm ára, verðtryggt. Skuldari hafði síðan breytt skuldinni í gengistryggt lán. Stefnandi endurreiknaði lánið í framhaldi af gengisdómum Hæstaréttar og lækkaði dómkröfu sína í samræmi við það. Þá krafðist stefnandi staðfestingar á kyrrsetningu í eignastýringasafni stefnda hjá stefnanda. Stefndi mótmælti öllum kröfum stefnanda og krafðist sýknu á grundvelli aðildarskorts en hann taldi m.a. að ekki hafi verið heimilt að flytja skuldina frá Kaupþing banka hf., yfir í Nýja Kaupþing banka hf. þar sem útgáfa skuldabréfsins hafði verið hluti af afleiðusamningi sem stefndi var með hjá stefnanda. Stefndi gagnstefndi í málinu og krafðist afhendingar á fjármunum sem höfðu verið í eignastýringarsafninu. Niðurstaða dómsins var að stefndi hafi ekki sýnt fram á að skuldabréfið hafi verið liður í afleiðusamningum hans hjá bankanum og því framsal á skuldabréfinu samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins, heimil til Nýja Kaupþings banka hf., síðar Arion banka hf. Var stefndi dæmdur til að greiða stefnanda endanlegar dómkröfur ásamt dráttarvöxtum. Þá var staðfest kyrrsetning fjármuna í eignastýringasafni stefnda. Málskostnaður var felldur niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. maí 2013

S-206/2013

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn Hreiðari Má Sigurðssyni (Hörður Felix Harðarson hrl), Sigurði Einarssyni (Gestur Jónsson hrl), Ingólfi Helgasyni (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl), Einari Pálma Sigmundssyni (Gizur Bergsteinsson hrl), Birni Sæ Björnssyni (Halldór Jónsson hrl), Pétri Kristni Guðmarssyni (Vífill Harðarson hdl), Magnúsi Guðmundssyni (Karl Axelsson hrl) og Bjarka H Diego (Jóhannes Sigurðsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Úrskurður um framlagningu gagna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2009

E-6174/2008

Hið íslenska gáfumannafélag ehf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Pétri Ingasyni og Gunnari Björnssyni (Klemenz Eggertsson hdl)

Fallist var á kröfu stefndu um að vísa frá dómi máli á hendur þeim, enda væri þeim erfitt að taka til varna þar sem stefnandi legði ekki fram nauðsynleg gögn til stuðnings kröfu sinni

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. nóvember 2008

S-953/2008

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Jóni Ólafssyni (Ragnar Aðalsteinsson hrl), Hreggvið Jónssyni (Kristinn Bjarnason hrl), Ragnari Birgissyni (Ragnar Halldór Hall hrl) og Símoni Ásgeiri Gunnarssyni (Gestur Jónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ágreiningur um heimild til framlagningar sérstakrar greinargerðar af hálfu ákæruvalds.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2008

E-1454/2007

Málaflokkur: Barnaréttur

Fyrrum tengdafaðir krafði fyrrum tengdadóttur sína um greiðslu fjármuna. Til þess að sanna að hann hefði ekki lánað henni peningana heldur syni sínum, fyrrverandi eiginmanni stefndu, krafðist hún þess að eiginmanni hennar fyrrverandi yrði gert að afhenda dóminum skattframtal sitt. Talið að þar sem varnaraðili gæti skorast undan vitnaskyldu vegna tengsla við stefnanda og stefndu yrði honum ekki gert að afhenda dóminum skattframtalið.