Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Viðhaldsgjald

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 5. apríl 2023

E-467/2022

Pétur Þ. Stefánsson (Arnar Sigfússon lögmaður) gegn Búfesti hsf (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)

Stefnandi krafðist ógildingar ákvæðis í uppgjöri vegna sölu hans á búseturétti í húsnæðissamvinnufélagi (stefnda) og endurgreiðslu svokallaðs "frestaðs viðhalds" sem dregið var frá uppgjöri af söluverði búseturéttar hans. Þrátt fyrir að hvergi í lögum, búsetusamningi né samþykktum stefnda sé kveðið á um "frestað viðhald" taldi dómurinn að með heildstæðri skýringu á framangreindum heimildum og ákvörðunum aðalfunda félagsins ætti gjaldið sér fullnægjandi stoð. Þá hafi stefnanda mátt vera kunnugt um gjaldið og því yrði ekki fallist á að óskýrleiki í framsetningu þess gæti haft þau áhrif að hann yrði ekki bundinn af því. Ennfremur var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á að gjaldið væri bersýnilega ósanngjarnt í skilningi lag nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Loks var því hafnað að gjaldið fæli í sér brot á jafnræði félagsmanna. Með vísan til þess að veruleg vafaatriði voru í málinu var málskostnaður látinn niður falla.