Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Upplýsingaskylda seljanda
K og Í höfðuðu mál á hendur B og P og kröfðust skaðabóta eða afsláttar vegna galla sem þau töldu vera á fasteign er þau keyptu af B og P með milligöngu M og S ehf. B og P stefndu M og S ehf. til réttargæslu. Hæstiréttur lagði til grundvallar að ekki hefði verið hnekkt matsgerð dómkvadds manns um ástands hússins. Fasteignin var talin gölluð vegna þess að ástand hennar var ekki í samræmi við upplýsingar sem K og Í fengu við kaupin auk þess sem fallist var á kröfu um greiðslu kostnaðar við flutning búslóðar á framkvæmdatíma. Ekki þóttu efni til að lækka skaðabætur til K og Í vegna endurbóta á þaki eignarinnar af þeim sökum að nýtt hefði komið í stað notaðs. Þá var B og P gert að endurgreiða K og Í dráttarvexti sem þau höfðu greitt til að fá útgefið afsal fyrir eigninni. Vextir af skaðabótum voru reiknaður frá dagsetningu matsgerðar en dráttarvextir frá því mánuði eftir að K og Í lögðu fram upplýsingar sem þörf var á til að meta tjónsatvik. Einnig var við ákvörðun vaxta tekið mið af því að K og Í héldu aftur lokagreiðslu hluta þessa tíma.
Þórhallur Ólafsson og Halla María Ólafsdóttir (
Eva Halldórsdóttir lögmaður)
gegn
Hilmari F. Thorarensen og Ingigerði Þorsteinsdóttur (
Jón Gunnar Ásbjörnsson lögmaður) og
Fasteignamarkaðnum ehf. og Guðmundi Theódór Jónssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (
Kristín Edwald lögmaður)
Seljendum fasteignar ásamt fasteignasala, fasteignasölu og vátryggingafélagi hinna síðastnefndu tveggja aðila var gert að greiða kaupendum fasteignar skaðabætur vegna ágalla á fasteigninni sem rekja mátti til þess að veittar voru rangar upplýsingar við söluna.