Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Synjun gerðar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. október 2024

K-4424/2023

CMA International Foundation (Fjölnir Ólafsson lögmaður) gegn Sarek Oy (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Sóknaraðili bar undir dóm þá ákvörðun sýslumanns að hafna að eigin frumkvæði kröfu hans um að lagt yrði lögbann við því að varnaraðili, erlendur lögaðili, starfrækti tilgreint, íslenskt landshöfuðlén sem gerði aðgengilegt höfundaréttarvarið efni. Í málinu reyndi á Fallist var á kröfu sóknaraðila um að ákvörðun sýslumanns yrði felld úr gildi en kröfu hans um að að lagt yrði fyrir sýslumann að taka lögbannsbeiðnina til efnismeðferðar var vísað frá dómi, án kröfu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. nóvember 2013

K-4/2013

Applicon ehf (Hjördís Halldórsdóttir hrl) gegn embætti sérstaks saksóknara (Finnur Þór Vilhjálmsson hdl)

Sóknaraðili bar undir héraðsdóm synjun sýslumanns á því að leggja lögbann við því að varnaraðili notaði tilgreind viðskiptamannakerfi sóknaraðila og að varnaraðila yrði gert að eyða þeim afritum kerfanna sem hann hefði undir höndum, þ. á m. frumkóða þeirra. Sóknaraðili krafðist þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi og að lagt yrði fyrir sýslumann að leggja á lögbann samkvæmt framansögðu. Málið var flutt í einu lagi um kröfu varnaraðila um frávísun og um efniskröfur aðila. Frávísun málsins var hafnað. Dómurinn taldi að notkun varnaraðila á umræddum hugbúnaði væri hluti af lögreglurannsókn og bryti ekki gegn höfundarétti sóknaraðila og að ekki hefði verið gengi lengra með notkun hugbúnaðarins en nauðsyn krefði. Þá var talið ósannað að starfsmenn Seðlabanka Íslands hefðu ,,hakkað" sig inn í hugbúnaðinn. Var kröfum sóknaraðila því hafnað og ákvörðun sýslumanns staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júní 2007

K-1/2007

Tryggingamiðstöðin hf (Magnús Guðlaugsson hrl) gegn Óðni Svanssyni (Ástráður Haraldsson hrl)
Lykilorð: Lögbann. Synjun gerðar.

Sóknaraðili krafðist þess að lögbann yrði sett við því að varnaraðili starfaði hjá samkeppnisaðila á grundvelli samkeppnisákvæðis í ráðningarsamningi. Kröfum sóknaraðila var hafnað og var ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík um að hafna lögbanni staðfest.