Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Skerðing
Með breytingum á samþykktum L sem tóku gildi 1. janúar 2023 voru áunnin en óvirk lífeyrisréttindi yngri sjóðfélaga A-deildar til mánaðarlegs ellilífeyris lækkuð meira en þeirra sem eldri voru. Breytingarnar voru gerðar vegna nýrra forsendna um lífslíkur sem L bar að miða við í tryggingafræðilegum athugunum á fjárhag sínum frá og með árinu 2023. Í þeim forsendum var í fyrsta sinn gengið út frá því að þeir sem yngri væru myndu ná hærri aldri en þeir eldri. Í málinu krafðist A, sjóðfélagi í L, að 6. töluliður viðauka B við samþykktir sjóðsins yrði ógildur en þar voru breytingarnar útfærðar. Hæstiréttur taldi óvirk en áunnin lífeyrisréttindi njóta verndar 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. samningsviðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Talið var að þótt L hefði getað brugðist við breyttum reiknigrunni um lífslíkur með annarri útfærslu á breytingum á samþykktum sínum yrði að leggja til grundvallar að L hefði stefnt að lögmætu markmiði og að breytingarnar hefðu byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Hæstiréttur taldi breytingarnar ekki hafa gengið gegn jafnræði sjóðfélaga eða brotið gegn meðalhófi. Að öllu framangreindu virtu var því talið að breytingar á samþykktunum hefðu verið innan þess svigrúms sem L naut, þær ættu sér næga lagastoð og fælu ekki í sér skerðingu á áunnum en óvirkum lífeyrisréttindum A í andstöðu við ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu.