Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Orlo

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. júní 2023

E-1991/2022

Hrafn Hauksson (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Þingvangi ehf (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður)

Deilt var um uppgjör orlofs og ökutækjastyrks við starfslok.Annars vegar var einkum um það deilt hvort samið hefði verið um hærra orlofshlutfall en kjarasamningar ráðgerðu og hins vegar hvort ökutækjastyrkur hefði verið hluti fastra starfskjara. Þá laut ágreiningur að uppgjöri orlofsdaga.Var ekki fallist á kröfu stefnanda um greiðslu orlofs þar sem hann var ekki talinn hafa sýnt fram á að samið hefði verið um hærra orlofshlutfall en mælt var fyrir um í kjarasamningi. Þá var ekki talið að stefnandi ætti kröfu til frekari orlofsgreiðslna.Fallist var á greiðslu vangoldins ökutækjastyrks vegna tilgreinds tímabils. Ekki var fallist á að draga bæri þær greiðslur sem stefnandi þáði frá einkahlutafélagi sínu á uppsagnarfresti frá launum.