Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Málshöfðun
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að vísa frá dómi máli sem þrotabú A ehf. höfðaði gegn G ehf. þar sem við höfðun málsins var liðinn sex mánaða málshöfðunarfrestur 1. mgr. 148. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.
Mál S gegn Ó var fellt niður að ósk málsaðila, sem jafnframt voru sammála um að leggja það í dóm um málskostnað. Rétt var talið að aðilarnir bæru hvor sinn kostnað af málinu.
Vátryggingafélagið T höfðaði endurkröfumál á hendur H vegna bóta sem félagið hafði greitt út á grundvelli ábyrgðartryggingar bifreiðar H. Málinu var vísað frá dómi þar sem endurkröfunefnd hafði ekki lokið umfjöllun sinni um kröfuna þegar málið var höfðað, en það var skilyrði málssóknar samkvæmt umferðarlögum.