Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Hópuppsagnir

Hæstiréttur birt 18. september 2024

3/2024

Íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Verkfræðingafélagi Íslands Stéttarfélagi tölvunarfræðinga og Lyfjafræðingafélagi Íslands (Lára Valgerður Júlíusdóttir lögmaður)

V, S og L höfðuðu mál fyrir hönd félagsmanna sinna og kröfðust þess að viðurkennt yrði að ákvörðun Í um að segja upp samningum um yfirvinnu á föstum forsendum við starfsmenn á stoðeiningum Landspítala hefði falið í sér hópuppsagnir í skilningi laga nr. 63/2000 um hópuppsagnir. Undir rekstri málsins fyrir Landsrétti var leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um hvernig bæri að túlka tilskipun ráðsins 98/59/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna um hópuppsagnir, sem var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 63/2000. Í áliti EFTA-dómstólsins kom meðal annars fram að það væri uppsögn í skilningi a-liðar 1. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar þegar vinnuveitandi, einhliða og starfsmanni í óhag, gerði verulegar breytingar á meginþætti ráðningarsamnings af ástæðum sem tengdust ekki hlutaðeigandi launþegum. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að lög nr. 63/2000 veittu opinberum starfsmönnum einnig réttarvernd fyrir hópuppsögnum. Þær breytingar sem urðu á starfskjörum umræddra starfsmanna hefðu hins vegar ekki falið í sér verulegar breytingar á meginþætti ráðningarsamnings þeirra og því ekki um hópuppsagnir að ræða. Samkvæmt framangreindu var kröfum V, S og L hafnað.

Hæstiréttur birt 29. nóvember 2001

196/2001

Kaupfélag Þingeyinga (Gísli Baldur Garðarsson hrl) gegn Sigrúnu Marinósdóttur (Ástráður Haraldsson hrl)

K fékk heimild til greiðslustöðvunar 21. maí 1999 vegna greiðsluerfiðleika. Tíu dögum síðar var S sagt upp störfum með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Með kaupsamningi 27. júlí 1999 keypti H hf. tiltekinn hluta starfsemi K og tók við rekstrinum 1. september sama ár. S, sem ekki fékk endurráðningu hjá H hf., taldi K hafa brotið gegn lögvörðum rétti hennar með ólögmætri uppsögn. Ekkert lá fyrir um að skylda til að standa reikningsskap þeirrar gerðar hefði færst yfir á H og var hafnað kröfu K um sýknu á grundvelli aðildarskorts. Með hliðsjón af atvikum málsins var ekki talið, að lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 77/1993 hefðu staðið í vegi uppsagna starfsmanna K 31. maí 1999, sem voru til komnar af brýnum efnahagslegum ástæðum, sbr. einkum 2. málslið 1. mgr. 3. gr. laganna. Þegar litið var á aðstæður í heild og þá óvissu sem ríkti á þessum tíma um framtíð starfsemi K, var ekki talið, að framferði K gagnvart starfsmönnum, sem ekki var í fullu samræmi við fyrirmæli þágildandi laga um hópuppsagnir nr. 95/1992, ætti að leiða til þess, að uppsögn S yrði metin ólögmæt. Var K því sýknað af kröfu S.

Hæstiréttur birt 29. nóvember 2001

195/2001

Kaupfélag Þingeyinga (Gísli Baldur Garðarsson hrl) gegn Margréti Björnsdóttur (Ástráður Haraldsson hrl)

K fékk heimild til greiðslustöðvunar 21. maí 1999 vegna greiðsluerfiðleika. Tíu dögum síðar var M sagt upp störfum með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Með kaupsamningi 27. júlí 1999 keypti H hf. tiltekinn hluta starfsemi K og tók við rekstrinum 1. september sama ár. M, sem ekki fékk endurráðningu hjá H hf., taldi K hafa brotið gegn lögvörðum rétti hennar með ólögmætri uppsögn. Ekkert lá fyrir um að skylda til að standa reikningsskap þeirrar gerðar hefði færst yfir á H og var hafnað kröfu K um sýknu á grundvelli aðildarskorts. Með hliðsjón af atvikum málsins var ekki talið, að lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 77/1993 hefðu staðið í vegi uppsagna starfsmanna K 31. maí 1999, sem voru til komnar af brýnum efnahagslegum ástæðum, sbr. einkum 2. málslið 1. mgr. 3. gr. laganna. Þegar litið var á aðstæður í heild og þá óvissu sem ríkti á þessum tíma um framtíð starfsemi K, var ekki talið, að framferði K gagnvart starfsmönnum, sem ekki var í fullu samræmi við fyrirmæli þágildandi laga um hópuppsagnir nr. 95/1992, ætti að leiða til þess, að uppsögn M yrði metin ólögmæt. Var K því sýknað af kröfu M.