Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Greiðsluskylda
Deilt um greiðsluskyldu tryggingafélags úr fasteignatryggingu vegna þess að skólplögn í annarri samliggjandi fasteign gaf sig og olli tjóni á íbúð vátryggingartaka. Sýkna, en hluti málskostnaður þrátt fyrir það felldur á tryggingarfélagið þar sem sú málstæða sem leiddi til sýknu hafði ekki verið höfð uppi áður en málið var borið undir dóm.
Ágreiningur um uppgjör vegna verks sem aðalstefnandi vann í þágu gagnstefnanda. Fallist að mestu á kröfur í aðalsök, kröfu vegna hluta eins reiknings vísað frá vegna vanreifunar og sýknað að kröfum í gagnsök.
Fallast var að hluta á kröfu stefnanda um greiðsluskyldu stefndu vegna byggingarleyfisumsóknar.
Deilt um kröfu fjármögnunarfélags á hendur hlutafélagi sem stefndi taldi sér óskylt að greiða þar sem sá sem framseldi stefnanda kröfuna hefði gengið sviksamlega fram og ekki hefði legið fyrir samþykki eða uppáskrift reiknings stefnanda frá aðilum sem til þess hafi verið bærir fyrir hönd stefnda.