Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Fuglaveiði

Hæstiréttur birt 11. mars 2004

380/2003

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Bjarna Ingvari Halldórssyni og Svani Þór Brandssyni (Ólafur Sigurgeirsson hrl)

Á grundvelli framburðar vitna þótti sannað að B og S hefðu brotið gegn gegn lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, svo og reglugerð nr. 252/1996 um friðun tiltekinna villtra fuglategunda, friðlýsingu æðarvarps, fuglamerkingar, hamskurð o.fl. með skotveiðum á sjó. Þótti refsing hvors um sig hæfilega ákveðin 75.000 krónur, en auk þess var veiðifang gert upptækt.

Hæstiréttur birt 6. maí 1999

41/1999

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Stefáni Örvari Hjaltasyni og Einari Einarssyni Sigurðssyni (Ólafur Sigurgeirsson hrl)

S og E voru ákærðir fyrir að hafa verið við rjúpnaveiðar án leyfis landeiganda. Landsvæðið sem um var að ræða var í um 500 metra hæð og var einkum notað til sumarbeitar. Þar sem engum gögnum var til að dreifa um að land þetta hefði verið numið í öndverðu eða hvernig það hefði síðar orðið undirorpið beinum eignarrétti landeigandans voru ákærði sýknaðir, enda þótti þinglýst landamerkjabréf jarðarinnar frá 1884 ekki nægilega styrk heimild um eignarhald hans að umræddu landsvæði.