Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lykilorð: Framlagning skjala
Markaðsmisnotkun. Umboðssvik.
Stefnandi krafði stefnda um greiðslu samkvæmt skuldabréfi sem hafði í upphafi verið til fimm ára, verðtryggt. Skuldari hafði síðan breytt skuldinni í gengistryggt lán. Stefnandi endurreiknaði lánið í framhaldi af gengisdómum Hæstaréttar og lækkaði dómkröfu sína í samræmi við það. Þá krafðist stefnandi staðfestingar á kyrrsetningu í eignastýringasafni stefnda hjá stefnanda. Stefndi mótmælti öllum kröfum stefnanda og krafðist sýknu á grundvelli aðildarskorts en hann taldi m.a. að ekki hafi verið heimilt að flytja skuldina frá Kaupþing banka hf., yfir í Nýja Kaupþing banka hf. þar sem útgáfa skuldabréfsins hafði verið hluti af afleiðusamningi sem stefndi var með hjá stefnanda. Stefndi gagnstefndi í málinu og krafðist afhendingar á fjármunum sem höfðu verið í eignastýringarsafninu. Niðurstaða dómsins var að stefndi hafi ekki sýnt fram á að skuldabréfið hafi verið liður í afleiðusamningum hans hjá bankanum og því framsal á skuldabréfinu samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins, heimil til Nýja Kaupþings banka hf., síðar Arion banka hf. Var stefndi dæmdur til að greiða stefnanda endanlegar dómkröfur ásamt dráttarvöxtum. Þá var staðfest kyrrsetning fjármuna í eignastýringasafni stefnda. Málskostnaður var felldur niður.
Úrskurður um framlagningu gagna.
Fallist var á kröfu stefndu um að vísa frá dómi máli á hendur þeim, enda væri þeim erfitt að taka til varna þar sem stefnandi legði ekki fram nauðsynleg gögn til stuðnings kröfu sinni
Ágreiningur um heimild til framlagningar sérstakrar greinargerðar af hálfu ákæruvalds.
Fyrrverandi tengdadóttir sýknuð af kröfu fyrrum tengdaföður síns þar sem sýnt þótti að hann hefði lánað syni sínum, en ekki stefndu, þá peninga sem hann krafði hana um.
Fyrrum tengdafaðir krafði fyrrum tengdadóttur sína um greiðslu fjármuna. Til þess að sanna að hann hefði ekki lánað henni peningana heldur syni sínum, fyrrverandi eiginmanni stefndu, krafðist hún þess að eiginmanni hennar fyrrverandi yrði gert að afhenda dóminum skattframtal sitt. Talið að þar sem varnaraðili gæti skorast undan vitnaskyldu vegna tengsla við stefnanda og stefndu yrði honum ekki gert að afhenda dóminum skattframtalið.