Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Frádráttur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2019

E-3445/2018

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf. (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður) og B (Lárus Sigurður Lárusson lögmaður)

Stefnandi krafði bónda og vátryggjanda um skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir þegar naut stangaði hana. Deilt var um það hvort slysið hefði átt sér stað í vinnu og hvort skort hefði á eftirlit og leiðbeiningar stefnda B, sem ráðið hafði stefnanda í vinnu á bóndabæ sínum. Talið var ósannað að slys stefnanda hafi átt sér stað á vinnutíma og því jafnframt hafnað að orsakir þess væru að rekja til ófullnægjandi leiðbeininga við bústörf. Var B því sýknaður af bótakröfu stefnanda. Hið meðstefnda tryggingafélag viðurkenndi bótarétt stefnanda en taldi rétt að draga frá bótum hennar fjárhæð sem svaraði til bóta úr slysatryggingu launþega, sem hún hefði átt rétt til ef Bhefði keypt slíka tryggingu. Þeirri málsástæðu var hafnað þar sem slysatrygging launþega var ekki talin ná til tjóns stefnanda. Var félaginu því gert að greiða stefnanda umkrafðar bætur.

Hæstiréttur birt 19. maí 2016

535/2015

A slasaðist á fæti við vinnu sína hjá forvera B ehf. á árinu 2005 en fyrirtækið var þá með frjálsa ábyrgðartryggingu og samningsbundna slysatryggingu launþega fyrir starfsmenn sína hjá V hf. A tilkynnti V hf. fyrst um slysið á árinu 2014 og fékk í kjölfarið greiddar skaðabætur en við uppgjör þeirra var dregin frá bótum fyrir varanlega örorku sú fjárhæð sem svaraði til réttar A til greiðslna úr slysatryggingu launþega, sbr. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í málinu deildu aðilar um réttmæti þess frádráttar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar A tilkynnti V hf. um slysið hefði krafa til bóta úr slysatryggingu launþega verið fyrnd. Var talið að sú vanræksla A að láta undir höfuð leggjast að sækja um bætur úr tryggingunni, sbr. 21. gr. laga nr. 50/1954 um vátryggingarsamninga, þrátt fyrir að hann hefði haft einkenni frá fætinum allt frá slysdegi, væri á hans ábyrgð, en honum hefði borið í samræmi við meginreglur skaðabótaréttar að takmarka tjón sitt. Var B ehf. því sýknaður af kröfu A.

Hæstiréttur birt 25. janúar 2001

314/2000

Vátryggingafélag Íslands hf (Hákon Árnason hrl) gegn Jeff Clemmensen (Stefán Geir Þórisson hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 16. ágúst 2000 og krefst sýknu af öllum kröfum stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti. I. Í máli þessu deila aðilar um frádrátt frá skaðabótum til stefnda vegna varanlegrar örorku, er hann hlaut af völdum slyss 2. apríl 1996. Er í héraðsdómi nánar greint frá hvernig áfrýjandi dró greiðslu til stefnda úr kjarasamningsbundinni atvinnuslysatryggingu frá við uppgjör bóta úr slysatryggingu ökumanns samkvæmt 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Reynir í málinu einkum á ákvæði 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, sem hefur að geyma reglur um frádrátt við uppgjör bóta fyrir varanlega örorku. Atvikið gerðist áður en nefndri lagagrein var breytt með 4. gr. laga nr. 37/1999 um breyting á skaðabótalögum, en með þeim voru meðal annars endurskoðuð ákvæði laganna um bætur fyrir varanlega örorku, þar á meðal um margfeldisstuðul til útreiknings skaðabóta, sem breytt var til hags fyrir tjónþola. Var þá jafnframt aukið við reglur 4. mgr. 5. gr. laganna um frádrátt frá skaðabótum, þar sem fleiri greiðslur til tjónþola komu eftir það til frádráttar en áður. Fer um uppgjör skaðabóta til stefnda samkvæmt lögunum, eins og þau voru á slysdegi. Ákvæði um frádrátt frá slysatryggingarbótum, sem bætt var inn í 92. gr. umferðarlaga með 2. gr. laga nr. 32/1998, skipta heldur ekki máli hér. II. Í hinum áfrýjaða dómi er rakið efni 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga og greint frá ítarlegum skýringum við hana í athugasemdum, sem fylgdu frumvarpi því, er varð að lögum nr. 50/1993. Meginreglan um frádrátt kemur fram í 1. málslið ákvæðisins, en samkvæmt því dragast greiðslur frá þriðja manni, þar á meðal vátryggingarfélagi, ekki frá skaðabótakröfu vegna varanlegrar örorku. Í athugasemdunum var þess getið að nýmæli fælust í greininni. Meðal röksemda fyrir því var tilfært að þegar um væri að ræða bætur fyrir varanlega örorku væri alltaf umdeilanlegt hversu mikið fé þyrfti til að gera hlut tjónþola jafnan því, sem verið hefði ef tjónsatburðurinn hefði ekki gerst. Í flestum eða öllum tilvikum væri því ekki unnt að slá föstu að tjónþoli hagnaðist á því að eiga óskertan skaðabótarétt þótt hann nyti jafnframt greiðslna frá þriðja manni. Var auk þess tekið fram að reglur frumvarpsins um margföldunarstuðul við útreikning bóta hafi öðrum þræði verið ákveðnar með hliðsjón af því að tjónþoli héldi almennt fullum rétti til skaðabóta samhliða óskertum rétti til greiðslna frá þriðja manni, svo sem vátryggingum. Frá nefndri meginreglu var síðan í 2. málslið 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga gerð sú undantekning að greiðslur úr samnings- eða lögbundinni atvinnuslysatryggingu launþega skyldu dregnar frá skaðabótakröfu hans á hendur vinnuveitanda þeim, sem slysatrygginguna keypti. Í framangreindum athugasemdum var þessi tilhögun sögð helgast af því að reglur um rétt launþega til bóta frá atvinnuslysatryggingu séu yfirleitt reistar á þeim forsendum að atvinnurekandi, sem annast kaup á slysatryggingunni, skuli njóta góðs af henni, þegar líkamstjón verður rakið til atvika, er hann ber skaðabótaábyrgð á. Sú undantekning frá þeirri meginreglu, sem að framan greinir, verður ekki skýrð rýmra en orð hennar mæla beinlínis fyrir um. Vátrygging samkvæmt 92. gr. umferðarlaga er slysatrygging og verður krafa stefnda til greiðslu úr hendi áfrýjanda vegna hennar ekki lögð að jöfnu við skaðabótakröfu launþega á hendur vinnuveitanda í skilningi síðastgreinds ákvæðis skaðabótalaga. Skýringar, sem fram koma í athugasemdum með frumvarpi til skaðabótalaga og áður er getið, styðja heldur ekki sjónarmið áfrýjanda um frádrátt. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur. Áfrýjandi skal greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti, sem verður ákveðinn eins og í dómsorði segir.