Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

38 dómar fundust

Lykilorð: Brottvísun af heimili

Landsréttur birt 15. desember 2025

879/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 18. nóvember 2025

793/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 12. ágúst 2025

594/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 6. ágúst 2025

591/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms um staðfestingu ákvörðunar sóknaraðila um að varnaraðili skyldi sæta brottvísun af heimili og nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að brotaþola hefði hvorki verið tilnefndur réttargæslumaður við meðferð málsins hjá lögreglustjóra né skipaður réttargæslumaður við meðferð málsins í héraði svo sem skylt væri samkvæmt ákvæðum laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Vegna þessa annmarka væri óhjákvæmilegt að ómerkja hinn kærða úrskurð og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar.

Landsréttur birt 23. júlí 2025

558/2025

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn X (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 3. júní 2025

412/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili í fjórar vikur á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 19. mars 2025

195/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 6. janúar 2025

12/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Svavar Daðason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili

Landsréttur birt 10. október 2023

678/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Andrés Már Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta brottvísun af heimili í fjórar vikur á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 16. febrúar 2022

77/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili með þeirri breytingu að nálgunarbanni var markaður skemmri tími.

Landsréttur birt 22. júní 2021

400/2021

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn X (Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta brottvísun af heimili og nánar tilgreindu nálgunarbanni í fjórar vikur á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 21. apríl 2021

262/2021

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn X (Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun lögreglustjóra um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Í úrskurði Landsréttar kom fram að X væri undir rökstuddum grun um að hafa framið brot gegn 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og að skilyrðum a-liðar 4. gr. og a- liðar 1. mgr. 5 gr. væri fullnægt. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 85/2011 yrði nálgunarbanni og brottvísun af heimili hins vegar aðeins beitt þegar ekki þætti sennilegt að friðhelgi brotaþola yrði vernduð með öðrum og vægari hætti og skyldi þá ekki fara strangar í sakirnar en nauðsyn bæri til. Taldi rétturinn að í ljósi málsatvika og fyrirliggjandi gagna lægi það ekki fyrir að ekki yrði talið sennilegt að friðhelgi A yrði vernduð með öðrum og vægari hætti en nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Landsréttur birt 7. janúar 2021

2/2021

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Friðrik Smárason lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að staðfest yrði ákvörðun hans um að X sætti brottvísun af heimili og nánar tilgreindu nálgunarbanni í 12 mánuði á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Í úrskurði Landsréttar kom fram að X væri undir rökstuddum grun um að hafa beitt sambýliskonu sína líkamsmeiðingum á heimili þeirra og að í framburði hennar hjá lögreglu kæmi fram að hún óttaðist X og óskaði eftir því að honum yrði vísað af heimilinu og hann látinn sæta nálgunarbanni. Þá væri X einnig undir rökstuddum grun um að hafa tekið ungt barn þeirra út af heimilinu og stefnt öryggi þess í hættu. Féllst Landsréttur á það mat L að ekki hefði verið unnt að beita öðrum og vægari úrræðum til að tryggja öryggi sambýliskonunnar og barna hennar en að víkja X tímabundið af heimili þeirra og að tilefni hafi verið til að setja nálgunarbann á X. Var ákvörðun L staðfest.

Landsréttur birt 18. ágúst 2020

513/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn X (Úlfar Guðmundsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 14. júlí 2020

428/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 26. júní 2020

387/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Úlfar Guðmundsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 8. júní 2020

350/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Úlfar Guðmundsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 16. janúar 2020

33/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þröstur Þór Guðmundsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011.

Landsréttur birt 29. maí 2019

377/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun lögreglustjóra um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki yrði talið að X væri undir rökstuddum grun um að hafa beitt B og C ofbeldi eða að hafa hótað að gera það. Þótt X væri undir rökstuddum grun um að hafa beitt A líkamlegu ofbeldi væru liðnir tveir mánuðir frá því atviki. Að því virtu yrði ekki talið að skilyrðum laga nr. 85/2011 til að X yrði gert að sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili væri fullnægt. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Landsréttur birt 22. mars 2019

201/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)

X var gert að sæta nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili í fjórar vikur frá birtingu ákvörðunar lögreglustjóra um nálgunarbann.

Hæstiréttur birt 4. ágúst 2015

502/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Helga Vala Helgadóttir Bachmann hdl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert skylt að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011. Málinu var vísað frá Hæstarétti, enda hafði kæra borist héraðsdómi eftir að frestur samkvæmt 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var liðinn.

Hæstiréttur birt 7. júlí 2015

445/2015

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn X (Berglind Jónasardóttir hdl)

L bar ákvörðun sína um X yrði gert skylt að sæta brottvísun af heimili sínu og nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili undir héraðsdóm til staðfestingar. Í hinum kærða úrskurði var ekki leyst úr þeim hluta kröfugerðar L sem laut að brottvísun X af heimili sínu og var úrskurðinn því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.

Hæstiréttur birt 30. júní 2015

430/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert skylt að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011. Málinu var vísað frá Hæstarétti, enda hafði kæra borist héraðsdómi eftir að frestur samkvæmt 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var liðinn.

Hæstiréttur birt 18. júní 2012

419/2012

Lögreglustjórinn á Selfossi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn X (Sveinn Guðmundsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert skylt að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011. Málinu var vísað frá Hæstarétti, enda hafði kæra borist héraðsdómi eftir að frestur samkvæmt 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var löngu liðinn.

Hæstiréttur birt 21. maí 2012

336/2012

Lögreglustjórinn á Selfossi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn X (Sveinn Guðmundsson hrl)

A varð fyrir líkamstjóni er hann stökk yfir steinvegg við Fylkisheimilið og niður á steinsteypta stétt. Í viðurkenndi bótaskyldu og hafði greitt A skaðabætur sem námu ¾ hlutum af tjóni hans en taldi að A ætti sjálfur að bera ¼ hluta tjónsins vegna eigin sakar. Ljóst þótti að A hefði umrætt sinn verið undir áhrifum áfengis. Taldi Hæstiréttur að A hefði sýnt af sér verulegt gáleysi er hann tók þá hvatvísu ákvörðun að hlaupa í áttina að húsinu og stökkva yfir vegginn án þess að aðgæta hvernig aðstæður væru handan veggjarins. Þótti rétt að hann yrði látinn bera fjórðung tjóns síns sjálfur. Ekki voru talin efni til að beita lækkunarheimild í 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var Í því sýknað af kröfu A.

Hæstiréttur birt 14. október 2011

557/2011

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert skylt að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni í fjórar vikur, á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Hæstiréttur taldi bresta heimild til kæru úrskurðarins og vísaði málinu því frá Hæstarétti.