Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Atvinnuhúsnæði
Úrskurður kærunefndar húsamála felldur úr gildi. Sýknað af kröfu um að viðurkennt verði með dómi að stefnandi skuldi stefnda ekki tilgreinda fjárhæð vegna sjálfsábyrgðar vegna húseigendatryggingar.
R eignaðist hluta 1. hæðar hússins H með makaskiptasamningi á árinu 1978. T, G og RE seldu R að auki 55% af eignarhluta sínum í 1. hæð hússins á árinu 1996 og hugðist R í framhaldi af því gera breytingar á húsnæðinu, setja upp veggi og fjölga inngönguleiðum í húsið. Áður en kaupsamningur milli R og T, G og RE var gerður hafði verið haldinn fundur í húsfélagi H þar sem greidd voru atkvæði um fyrirhugaðar breytingar. Samþykktu fulltrúar 78,76% eignarhluta breytingarnar, en fulltrúi V, sem átti 3,65% í eigninni, mótmælti breytingunni. Umsókn um breytingarnar var samþykkt af byggingarnefnd R og staðfest af borgarráði. V skaut samþykki byggingarnefndar til umhverfisráðherra, sem felldi úr gildi ákvörðun um að heimila að settar yrðu nýjar dyr á húsið, en féllst á uppsetningu veggja á 1. hæð hússins. Höfðaði V mál gegn R, T, G og RE og krafðist þess að útveggir hússins og innréttingar og skilrúm í miðrými yrði fært í það horf, sem gert var ráð fyrir á samþykktri teikningu. Þá krafðist hann skaðabóta. Samkvæmt sameignar- og eignaskiptasamningi, sem eigendur H gerðu með sér á árinu 1978, skyldi fara um stjórn húsfélagsins eftir lögum um hlutafélög þannig, að eigendur hefðu atkvæðisrétt á félagsfundum í hlutfalli við eignarhluti sína, en ekki voru sérstök ákvæði um málsmeðferð við ákvarðanatöku á húsfélagsfundi um breytingar á sameign eða afmörkun séreignar einstakra eigenda. Var talið að líta yrði til ákvæða hlutafélagalaga við úrlausn málsins og að V yrði á grundvelli þess að hlíta umræddum breytingum. Var byggingarnefnd R talin hafa getað reist samþykkt sína á niðurstöðum fundar í húsfélaginu og voru R, T, G og RE sýknuð af kröfum V. Þá var fallist á kröfu þeirra um að úrskurður umhverfisráðherra yrði felldur úr gildi. Einnig voru viðurkenndar kröfur R um afmörkun á séreignarhluta á 1. hæð, en kröfum um afmörkun eignarhlutans með skilrúmum var vísað frá héraðsdómi.