Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Ógildi samnings hafnað

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. febrúar 2026

E-1553/2025

A (Sigmar Páll Jónsson lögmaður) gegn B (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Ekki var fallist á að samkomulag um jafna skiptingu eigna að frádregnum lánum og kostnaði sem tengdist fasteignum við sambúðarslit hefði valdið því að samkomulagið hefði verið ógilt frá upphafi vegna yfirstrikuna ákvæða um frekari barneignir, sem ágreiningur var um hvernig hefði komið til. Þá var ekki fallist á að kostnaðarliðir sem stefnda hélt fram að ættu að dragsta frá hlut stefnanda ættu við rök að styðjast og henni gert að greiða stefnanda dómkröfu.

Hæstiréttur birt 18. maí 2017

596/2016

HS 12 ehf (Gestur Jónsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

H ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði að ákvæði um verðtryggingu leigugrunns í þremur tilgreindum fjármögnunarleigusamningum um fasteignir, sem félagið hafði gert við L hf., væru óskuldbindandi fyrir sig. Byggði H ehf. á því að umræddir samningar væru í raun lánssamningar sem klæddir hefðu verið í búning leigusamninga. Með hinum áfrýjaða dómi var kröfum H ehf. hafnað, þ.á m. kröfu hans um að ógilda bæri ákvæði samninganna með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936. Þá var gagnkrafa L hf. um greiðslur eftirstöðva samkvæmt samningunum tekin til greina. Hæstiréttur vísaði til þess að rétturinn hefði margítrekað fjallað um samninga með hliðstæðum skilmálum og þeim sem til umfjöllunar voru í málinu og komist að þeirri niðurstöðu að þeir væru leigusamningar en ekki lánssamningar. Breytti engu í því tilliti þótt fram kæmi í tilboði L hf. um fjármögnun að söluverð á grunnleigutíma væri 1% af upphaflegum leigugrunni, enda væri þess hvorki getið í fjármögnunarleigusamningum aðila að H ehf. myndi eignast hið leigða í lok lánstíma né að hann ætti rétt á að leysa það til sín gegn tiltekinni greiðslu. Var hinn áfrýjaði dómur að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna.

Hæstiréttur birt 28. janúar 1999

517/1997

S. Konráðsson & Co ehf (Sigurður Georgsson hrl) gegn Ekrunni ehf (Sigurður G. Guðjónsson hrl)

S og E gerðu með sér samstarfssamning um að E seldi og dreifði áfengistegundum sem S hafði, eða kynni að hafa, umboð fyrir. Rúmum mánuði eftir að samningur aðila hafði verið undirritaður seldi S fyrirtækinu L áfengisumboð sín. Málsástæðu S um að samningur aðila hefði verið ósanngjarn í skilningi 36. gr. laga laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, var hafnað. Var talið að S hefði vanefnt samning aðila með þeim hætti að hann hefði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart E. Ekki þótti tækt að bæta E tjón vegna alls samningstímans þar sem samningur aðila hafði verið uppsegjanlegur eftir ákveðið tímabil. Var tjón E metið að álitum og með hliðsjón af undirmatsgerð. Ekki varð byggt á yfirmatsgerð sem aflað hafði verið eftir uppsögu héraðsdóms með því að hún var talin of seint fram komin.