Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Álag á miskabætur

Hæstiréttur birt 25. október 2012

6/2012

A var 11 ára gamall er hann hlaut verulegan heilaskaða í kjölfar öndunar- og hjartastopps, sem hann varð fyrir við dvöl á sjúkrahúsi í kjölfar tveggja skurðaðgerða sem hann gekkst undir í tilefni alvarlegra veikinda. Örorkunefnd mat varanlegan miska A 100 stig og varanlega örorku hans 100%. A hélt því fram að margþætt saknæm mistök hefðu orðið við læknismeðferð hans og krafðist bóta úr hendi Í á þeim grundvelli. Með vísan til matsgerðar dómkvaddra manna og forsendna héraðsdóms, sem skipaður var sérfróðum meðdómendum, var talið að viðbrögð við stöðvun öndunar og blóðrásar A fælu í sér stórfellt gáleysi af hálfu þeirra sem meðhöndluðu hann. Talið var að Í hefði ekki sýnt fram á að A hefði allt að einu hlotið það líkamstjón sem varð þótt viðbrögð hefðu verið hraðari og markvissari og var Í því talið bera fébótaábyrgð á tjóni A. A voru dæmdar bætur fyrir varanlega örorku, bætur fyrir varanlegan miska auk 50% álags, sbr. 3. mgr. 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, þjáningarbætur, sem ekki voru talin efni til að lækka með vísan til lokamálsliðar 1. mgr. 3. gr. sömu laga, auk miskabóta samkvæmt 26. gr. laganna, samtals að fjárhæð 30.994.619 krónur.

Hæstiréttur birt 10. júní 2010

646/2009

Vátryggingafélag Íslands hf (Hákon Árnason hrl) gegn A (Ólafur Örn Svansson hrl)

(Ólafur Örn Svansson hrl.) og gagnsök A varð fyrir slysi þegar hann stakk sér til sunds frá grynnri enda sundlaugarinnar í Laugardal, með þeim afleiðingum að hann rak höfuðið í botn laugarinnar og hlaut alvarlegan skaða af. Samkvæmt matsgerð lækna var varanlegur miski A talinn 90 stig en varanleg örorka hans 100%. A krafði R, eiganda laugarinnar um skaðabætur vegna slyssins en V hf., tryggingafélag sem veitt hafði R ábyrgðartryggingu, hafnaði bótaskyldu. Taldi félagið að slysið yrði ekki rakið til saknæmrar háttsemi starfsmanna R, heldur til óaðgæslu A sjálfs. A höfðaði í kjölfarið mál gegn V hf. en hvorki var deilt um með hvaða hætti slysið bar að, né um afleiðingar þess. Ágreininglaust var, að ef skaðabótaskylda væri fyrir hendi, skyldi hækka miskabætur A um 30% með stoð í 3. mgr. 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að merkingar um dýpi og um að dýfingar væru bannaðar hefðu ekki verið greinilegar og því væri ekki fullnægt fyrirmælum 2. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 457/1998 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Fram kemur að sérstaklega væri brýnt að merkingar væru skýrar og ótvíræðar þar sem mikill fjöldi fólks af ólíku þjóðerni sækti sundlaugina. Fallist var á skaðabótaskyldu R á tjóni A. Þá var fallist á að A hefði sýnt af sér óvarkárni í aðdraganda slyssins og þannig orðið meðvaldur að tjóni sínu, samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar og ætti að bera hluta þess sjálfur. A hélt fram þeirri málsástæðu að líta bæri framhjá meðábyrgð hans þar sem skilyrði 2. mgr. 24. gr. skaðabótalaga væru fyrir hendi. Talið var að óvarkárni A hefði verið óveruleg. Líkamstjón hans væri mjög alvarlegt og afleiðingar þess honum sérlega þungbærar. Þá var litið til þess að R væri sveitarfélag, sem ekki hefði farið að skráðum reglum um merkingar við laugina. V hf. hefði, gegn gjaldi, tekið að sér að veita R vátryggingu vegna tjóns eins og hér um ræðir. Með vísan til framangreinds og atvika að öðru leyti var fallist á kröfu hans um að líta bæri fram hjá því að hann hefði verið meðábyrgur á tjóni sínu. Voru A því dæmdar fullar bætur vegna slysins.

Hæstiréttur birt 22. maí 2008

642/2007

Ákæruvaldið gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir líkamsárás og brot gegn frjálsræði A, fyrrum unnustu sinnar. Þá var hann ákærður fyrir hótanir í hennar garð. Ekki þótti hafið yfir skynsamlegan vafa að brotið hefði verið gegn frjálsræði A og var X því sýknaður af þeim lið ákærunnar. X var hins vegar sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Hæstaréttar sagði að X hefði játað brot sín að hluta. Þá hefði hann einungis verið 17 ára er hann framdi brotin og væri litið til þessara atriða til refsimildunar. Hins vegar yrði að líta til þess að sú líkamsárás sem X var fundinn sekur um stóð yfir í langan tíma og hafði talsverðar afleiðingar í för með sér fyrir A, einkum vegna þess áfalls sem hún varð fyrir er kærasti hennar beitti hana slíku ofbeldi. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað. Þá var X gert að greiða A 400.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 22. maí 2003

463/2002

Orkuveita Reykjavíkur (Jakob R. Möller hrl) gegn Guðmundi Felix Grétarssyni (Gísli Baldur Garðarsson hrl)

G slasaðist alvarlega við vinnu sína hjá O er hann fór upp í staur með háspennulínu, sem straumur var á. Deilt var annars vegar um það hvort G ætti sjálfur að bera hluta tjónsins vegna eigin sakar og hins vegar hvort uppfyllt væru skilyrði þágildandi 1. mgr. 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 til að ákveða hærri bætur en þær, sem fólust í hinum metna varanlega miska. Fyrir Hæstarétti byggði O á því að sér bæri ekki að bæta tjónið að stærri hluta en 2/3. Fallist var á það með héraðsdómi að ekki væri útilokað að veður- og birtuskilyrði umræddan dag hefði átt sinn þátt í að slysið varð. Þá lá fyrir að ekki hafði verið fylgt ströngum öryggisreglum, sem áttu að fela í sér margþætta vörn gegn því að starfsmenn yrðu fyrir slysum, þegar slysið varð. Þótti óhætt að slá því föstu að slysið hefði ekki orðið hefði þeim verið fylgt. Þá yrði í ljósi stöðu og starfsemi O að gera ríkar kröfur til þess varðandi öryggisráðstafanir. Með vísan til þessa var sök O metin svo yfirgnæfandi í samanburði við það aðgæsluleysi, sem G kynni að hafa sýnt, að ekki þótti ástæða til að leggja hluta sakar á hann. Var því staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að O skyldi bæta tjón G að fullu. Þegar litið væri til miska G, einkum þess, hve háður hann væri aðstoð annarra við helstu athafnir daglegs lífs, var fallist á að hinn metni 90% miski næði ekki að bæta miska hans að fullu. Þótti réttlætanlegt að hækka bætur til hans vegna þessa um 35%.