Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Áfengisauglýsing

Landsréttur birt 29. mars 2019

722/2018

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X ehf (Jóhann Pétursson lögmaður)

X ehf. og Y voru ákærð fyrir brot gegn áfengislögum nr. 75/1998 og lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 með því að hafa keypt áfengisauglýsingar í prentmiðli. Héraðsdómur vísaði frá dómi þeim hluta málsins sem varðaði ætluð brot á fjölmiðlalögum, sýknaði Y af öllum sakargiftum, en sakfelldi X ehf. fyrir brot gegn áfengislögum og dæmdi félagið til sektargreiðslu. Málinu var í kjölfarið áfrýjað til Landsréttar að fengnu áfrýjunarleyfi að því er varðaði sakfellingu X ehf. Í ljósi þess að í áfengislögum væri ekki að finna heimild til að refsa lögaðila féllst Landsréttur á kröfu ákæruvaldsins um sýknu X ehf. af sakargiftum.

Hæstiréttur birt 25. febrúar 1999

415/1998

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Jóni Snorra Snorrasyni (Sigurður G. Guðjónsson hrl)

J, framkvæmdastjóri bjórframleiðanda, var ákærður fyrir að hafa birt bjórauglýsingar á flettiskilti, í dagblaði og í útvarpi. Talið að J bæri ábyrgð á birtingu auglýsinganna og að þær brytu í bága við ákvæði 20. gr. áfengislaga um bann við áfengisauglýsingum. Hvorki var fallist á að bann gegn auglýsingum sem þessum fæli í sér brot gegn 73. gr. stjórnarskrárinnar10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu enda væri ljóst að tilgangur bannsins væri að vinna gegn misnotkun áfengis og þeim vandamálum sem af henni hljótast. Þau rök sem byggju að baki banninu ættu sér því efnislega stoð í 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 10. gr. mannréttindasáttmálans. Var J dæmdur til greiðslu sektar.