Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-2377/2018:

A

(Sveinbjörn Claessen lögmaður)

gegn

B

I.

Dómkröfur o.fl.:

(sjálfur ólöglærður)

Dráttarvextir. Einkahlutafélög. Endurgreiðslukrafa. Kröfuréttur. Prókúra. Riftun. Skiptastjóri. Skuldamál. Sönnun. Sönnunarbyrði. Vinnulaun.

Fyrrverandi fyrirsvarsmanni einkahlutafélags o.fl. gert að greiða þrotabúi félagsins til baka lán.

Stefnandi   krefst   þess   aðallega að   stefnda   verði   gert   að   greiða   stefnanda 11.713.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 150.000 krónum frá 12. desember 2015 til 26. desember 2015, af 350.000 krónum frá þeim degi til 28. desember 2015, af 1.350.000 krónum frá þeim degi til 29. desember 2015, af 1.550.000 krónum frá þeim degi til 26. janúar 2016, af 1.800.000 krónum frá þeim degi til 24. febrúar 2016, af 2.800.000 krónum frá þeim degi til 1. mars 2016, af 3.000.000 króna frá þeim degi til 3. mars 2016, af 3.183.000 krónum frá þeim degi til 30. mars 2016, af 3.383.000 krónum frá þeim degi til 31. mars 2016, af 3.533.000 krónum frá þeim degi til 5. apríl 2016, af 4.483.000 krónum frá þeim degi til 14. apríl 2016, af 4.683.000 krónum frá þeim degi til 24. apríl 2016, af 4.753.000 krónum frá þeim degi til 19. maí 2016, af 4.953.000 krónum frá þeim degi til 4. júní 2016, af 5.153.000 krónum frá þeim degi til 7. júní 2016, af 5.363.000 krónum frá þeim degi til 24. júní 2016, af 6.363.000 krónum frá þeim degi til 28. júní 2016, af 6.963.000 krónum frá þeim degi til 13. júlí 2016, af 7.163.000 krónum frá þeim degi til 19. júlí 2016, af 7.463.000 krónum frá þeim degi til 23. júlí 2016, af 7.613.000 krónum frá þeim degi til 25. nóvember 2016, af 7.713.000 krónum frá þeim degi til 8. desember 2016, af 7.913.000 krónum frá þeim degi til 19. desember 2016, af 8.113.000 krónum frá þeim degi til 11. janúar 2017, af 8.463.000 krónum frá þeim degi til 20. janúar 2017, af 8.663.000 krónum frá þeim degi til 21. janúar 2017, af 8.863.000 krónum frá þeim degi til 30. janúar 2017, af 8.963.000 krónum frá þeim degi til 22. febrúar 2017, af 9.163.000 krónum frá þeim degi til 25. febrúar 2017, af 9.263.000 krónum frá þeim degi til 3. mars 2017, af 9.413.000 krónum frá þeim degi til 14. mars 2017, af 10.113.000 krónum frá þeim degi til 22. mars 2017, af 10.213.000 krónum frá þeim degi til 4. apríl 2017, af 10.313.000 krónum frá þeim degi til 17. apríl 2017, af 10.413.000 krónum frá þeim degi til 24. apríl 2017, af 10.513.000 krónum frá þeim degi til 27. apríl 2017, en af allri fjárhæðinni frá þeim degi til greiðsludags.

Til vara gerir stefnandi í fyrsta lagi kröfu um riftun á eftirfarandi ráðstöfunum stefnanda til stefnda, samtals að fjárhæð 11.713.000 krónur:

Nr. Dags. Skýring Fjárhæð, kr.
1. 12. desember 2015 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 150.000
2. 26. desember 2015 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
4. 29. desember 2015 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
5. 26. janúar 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 150.000
6. 26. janúar 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 100.000
8. 1. mars 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 200.000
9. 3. mars 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 183.000
10. 30. mars 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
11. 31. mars 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 150.000
12. 5. apríl 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 950.000
13. 14. apríl 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
14. 24. apríl 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 70.000
15. 19. maí 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
16. 4. júní 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
17. 7. júní 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 210.000
19. 28. júní 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 600.000
20. 13. júlí 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
21. 19. júlí 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 300.000
22. 23. júlí 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 150.000
23. 25. nóvember 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 100.000
24. 8. desember 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
25. 19. desember 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 200.000
26. 11. janúar 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 350.000
27. 20. janúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
Nr. Dags. Skýring Fjárhæð, kr.
1. 12. desember 2015 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 150.000
2. 26. desember 2015 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
3. 28. desember 2015 Peningaúttekt hjá gjaldkera í Arion banka Austurvegi 10, 800 Selfossi (tekið af debetkorti) 1.000.000
4. 29. desember 2015 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
5. 26. janúar 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 150.000
6. 26. janúar 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 100.000
7. 24. febrúar 2016 Peningaúttekt hjá gjaldkera í Arion banka, Bíldshöfða 20, 110 Rvk (tekið af debetkorti) 1.000.000
8. 1. mars 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 200.000
9. 3. mars 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 183.000
10. 30. mars 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
11. 31. mars 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 150.000
12. 5. apríl 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 950.000
13. 14. apríl 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
14. 24. apríl 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 70.000
15. 19. maí 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
16. 4. júní 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
17. 7. júní 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 210.000
18. 24. júní 2016 Peningaúttekt hjá gjaldkera í Arion banka, Bíldshöfða 20, 110 Rvk (tekið af debetkorti) 1.000.000
19. 28. júní 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 600.000
20. 13. júlí 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
21. 19. júlí 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 300.000
22. 23. júlí 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 150.000
23. 25. nóvember 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 100.000
24. 8. desember 2016 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
25. 19. desember 2016 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 200.000
26. 11. janúar 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 350.000
27. 20. janúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
28. 21. janúar 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 200.000
29. 30. janúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
30. 22. febrúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
31. 25. febrúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
32. 3. mars 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 150.000
33. 14. mars 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 500.000
34. 14. mars 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
35. 22. mars 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
36. 4. apríl 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
37. 17. apríl 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 100.000
38. 24. apríl 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
28. 21. janúar 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 200.000
29. 30. janúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
30. 22. febrúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
31. 25. febrúar 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
32. 3. mars 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 150.000
33. 14. mars 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 500.000
34. 14. mars 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 200.000
35. 22. mars 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
36. 4. apríl 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
37. 17. apríl 2017 Millifærsla á reikning stefnda nr. xxx-xx-xxxxxx (netbanki) 100.000
38. 24. apríl 2017 Hraðbankaúttekt Höfðaútibúi Bíldshöfða 20 100.000
39. 27. apríl 2017 Peningaúttekt hjá gjaldkera í Arion banka, Bíldshöfða 20, 110 Rvk (tekið af debetkorti) 1.200.000

Í öðru lagi krefst stefnandi þess að stefnda verði gert að greiða honum 11.713.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 17. júní 2018 til greiðsludags.

Í bæði aðal- og varakröfu er þess krafist að stefnanda verði dæmdur málskostn aður úr hendi stefnda, að mati dómsins.

Stefndi krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá dómi en til vara krefst hann sýknu af kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi ómaksþóknunar og málskostnaðar úr hendi stefnanda.

Kröfu stefnda um frávísun málsins var hafnað með úrskurði héraðsdóms 21. janúar 2019.

II.

Málsatvik:

Með bréfi Tollstjóra, sem skiptabeiðanda, til Héraðsdóms Reykjavíkur, sem barst 5. október 2017, var þess krafist að bú A yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Í bréfi skiptabeiðanda var tekið fram að um væri að ræða innheimtu á hendur skuldara vegna ógreiddra opinberra gjalda, samtals að fjárhæð 2.781.050 krónur. Krafa skiptabeiðanda var tekin fyrir á dómþingi 29. nóvember sama ár. Ekki var sótt þing af hálfu skuldara þrátt fyrir að kvaðning hefði verið réttilega birt. Var málið tekið til úrskurðar að kröfu skiptabeiðanda. Með úrskurði héraðsdóms 13. desember 2017 var lagt til grundvallar að skilyrðum 1. tölul. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri fullnægt. Að því virtu var bú fyrrgreinds félags tekið til gjaldþrotaskipta. Samhliða var Sveinbjörn Claessen lögmaður, skipaður skiptastjóri í   þrotabúinu.   Frestdagur   við   skiptin   miðast   við   5.   október   2017.   Stefndi   var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður félagsins og jafnframt eini starfsmaður þess og eigandi.

Stefndi mætti til skiptastjóra 9. janúar 2018 til skýrslugjafar. Við þá skýrslu töku gerði stefndi meðal annars grein fyrir starfsemi félagsins, aðkomu hans að rekstrinum, verkefna-, eigna- og skuldastöðu o.fl. Stefndi bar um að X bókhalds þjónusta hefði annast færslu bókhalds og færi með vörslur á bókhaldsgögnum félagsins. Með tölvuskeyti skiptastjóra til fyrrgreindrar bókhaldsþjónustu 9. janúar 2018 var óskað eftir afhendingu á bókhaldsgögnunum. Með svarskeyti sama dag var meðal annars upplýst að bókhaldsgögnin væru ekki hjá bókhaldsþjónustunni og að hún hefði ekki fært bókhald fyrir félagið.

Skiptafundur var haldinn 8. mars 2018 en til þess fundar var boðað með auglýs ingu í Lögbirtingablaði 19. desember 2017. Í fundargerð greinir meðal annars að á fundinum hafi verið lögð fram margvísleg gögn, meðal annars krafa skiptabeiðanda um   gjaldþrotaskipti,   innköllun   15.   desember   2017,   kröfuskrá,   ein   kröfulýsing, yfirlit bankareikninga hins gjaldþrota félags o.fl. Enginn kröfuhafi hafi mætt til fundarins. Í fundargerðinni greinir einnig að skiptastjóri hafi verið búinn að senda skiptabeiðanda erindi með tölvuskeyti 28. febrúar 2018 og upplýst um meintar úttektir og ráðstafanir fyrirsvarsmanns hins gjaldþrota félags á bankareikningum. Þá hafi í tölvuskeytinu verið óskað eftir afstöðu skiptabeiðanda um framhald á skiptum búsins með tilliti til endurheimtu á fjárhæðum sem búið var að greiða út af bankareikningum. Jafnframt greinir í fundargerðinni að engin svör hafi fengist frá skiptabeiðanda   fyrir   skiptafundinn   vegna   fyrrgreinds   erindis   og   að   annar skiptafundur myndi verða haldinn 5. apríl 2018. Í fundargerð skiptafundar 5. apríl 2018   greinir   meðal   annars   að   skiptabeiðandi   hafi   enn   ekki   tekið   afstöðu   til erindisins frá 28. febrúar 2018 og að skiptafundi væri frestað í sex vikur að beiðni skiptabeiðanda. Í fundargerð skiptafundar 17. maí 2018 greinir meðal annars að skiptastjóri hafi lagt fram bréf frá skiptabeiðanda, dagsett 16. maí 2018, um aukinn skiptakostnað, en enginn kröfuhafi hafi mætt til fundarins. Þá greinir í fundargerð inni   að   skiptabeiðandi   hafi   samþykkt   að   ábyrgjast   kostnað   skiptastjóra   vegna riftunar- og innheimtuaðgerða gagnvart stefnda sem fyrrum fyrirsvarsmanns hins gjaldþrota félags og að skiptastjóri myndi aðhafast í samræmi við það, fyrst með sendingu riftunarbréfs til stefnda og í framhaldi með höfðun riftunarmáls á hendur honum yrði ekki brugðist við af hans hálfu.

Með bréfi skiptastjóra til stefnda 17. maí 2018 var vísað til þess að skiptastjóri hefði undir höndum yfirlit bankareiknings hins gjaldþrota félags. Tekið var fram að af yfirlitinu mætti ráða að á tímabili frá 12. desember 2015 til 27. apríl 2017 hefðu nánar   tilgreindar   fjárhæðir   verið   teknar   út   af   reikningi   félagsins,   ýmist   með millifærslum á reikning stefnda, með úttektum úr hraðbönkum eða með úttektum hjá gjaldkera, samtals að fjárhæð 11.513.000 krónur. Í bréfinu var jafnframt tekið fram að skiptastjóri teldi, með hliðsjón af þeim gögnum sem hann hefði undir höndum, að úttektirnar hefðu verið framkvæmdar af stefnda í krafti stöðu hans sem framkvæmdastjóra,   stjórnarmanns   og   eiganda   hins   gjaldþrota   félags   og   að fjárhæðin hefði verið tekin til persónulegra nota þar sem engar aðrar skýringar lægju fyrir í gögnum skiptastjóra. Þessu til viðbótar var meðal annars vísað til framkomins misræmis um bókhaldsgögn félagsins og að þau gögn gætu skýrt stöðu málsins   frekar.   Þá   var   tekið   fram   að   umræddar   greiðslur   væru   riftanlegar   á grundvelli 131., 134. og/eða 141. gr. laga nr. 21/1991. Auk þess var krafist, með vísan til 1. mgr. 142. gr. sömu laga, að stefndi greiddi þrotabúinu fjárhæðina til baka, ásamt vöxtum og dráttarvöxtum, fyrir 28. maí 2018, eða með því að semja um greiðsluna eða koma á framfæri athugasemdum og frekari upplýsingum til skiptastjóra.

Sveinbjörn Claessen, lögmaður og skiptastjóri stefnanda, gaf aðilaskýrslu við aðalmeðferð, auk vitnanna C lögmanns, og D, dóttur stefnda.

III.

Helstu málsástæður og lagarök stefnanda:

Varðandi aðalkröfu þá byggir stefnandi í fyrsta lagi á almennum reglum kröfu réttar um endurgreiðslu lánveitinga, hvort sem slíkar lánveitingar eru lögmætar eða ekki, sem og á grundvelli 79. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Skiptastjóri telur   að   ekki   verði   með   nokkru   móti   séð   af   bókhaldi,   rekstrargögnum   eða   á grundvelli annarra upplýsinga, sem séu skiptastjóra tiltækar, að hinir umkröfðu fjár munir hafi verið nýttir í þágu reksturs hins gjaldþrota félags. Þvert á móti bendi allt til þess að stefndi hafi nýtt fjármunina í sína eigin þágu, án nokkurrar tengingar við hagsmuni stefnanda. Að mati stefnanda skipti í raun ekki máli fyrir niðurstöðu málsins hvað tileinkun stefnanda á fjármunum stefnda verði kölluð. Nærtækast sé þó að líta á ráðstafanirnar sem lán, enda sé ekki til úrlausnar í málinu hvort um fjárdrátt eða annars konar refsiverða háttsemi hafi verið að ræða.

Stefnandi   telur   augljóst   að   umræddar   lánveitingar   séu   í   andstöðu   við fortakslaust ákvæði 1. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994 sem kveði á um bann við lánveitingum einkahlutafélags til hluthafa. Stefnandi vísar til þess að stefndi hafi verið   eini   hluthafi   hins   gjaldþrota   félags,   auk   þess   sem   hann   hafi   verið framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og eini starfsmaður þess. Hann hafi því haft alla þræði félagsins í hendi sér. Með því að tileinka sér fjármunina án nokkurrar sýnilegrar tengingar þeirra við rekstur og þarfir stefnanda verði ekki unnt að líta á ráðstafanirnar   með   öðrum   hætti   en   sem   ólögmætt   hluthafalán.   Ákvörðun   um úthlutunina   og   ástæður   hennar   þurfi   að   koma   greinilega   fram   í   skjölum   og fundargerðum stjórnar, sbr. 8. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994. Engin gögn liggi hins vegar fyrir um tilgang umræddra ráðstafana. Stefnandi byggir á því að það beri að endurgreiða ólögmætt hluthafalán með dráttarvöxtum, sbr. 4. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994. Sá sem taki ákvörðun um ólögmætt hluthafalán eða hrindi því í fram kvæmd sé einnig greiðsluskyldur, sbr. 5. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994. Endur greiðsluskyldan hvíli því ótvírætt á stefnda. Verði talið að tileinkun stefnda á fjár munum stefnanda hafi falið í sér ólögmætar lánveitingar þá beri á grundvelli framangreindra sjónarmiða að fallast á aðalkröfu stefnanda. Þá tekur stefnandi fram að vaxtakrafa vegna aðalkröfu byggist á 4. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994. Hvað varðar aðalkröfu þá byggir stefnandi einnig á því að verði af einhverjum ástæðum talið að umræddar ráðstafanir hafi falið í sér lögmætar lánveitingar til stefnda   þá   hvíli   endurgreiðsluskyldan   eftir   sem   áður   á   stefnda   á   grundvelli almennra reglna kröfuréttar um endurgreiðslu lánveitinga. Eftir atvikum megi þá fallast á vaxtakröfu sem fram komi í síðari hluta varakröfu stefnanda, enda verði þá að líta svo á að krafa um endurgreiðslu lánsins hafi verið gerð með bréfi stefnanda þann 17. maí 2018. Að því virtu beri að reikna dráttarvexti mánuði frá dagsetningu bréfsins. Þá byggir stefnandi jafnframt aðalkröfu sína á 108. gr. laga nr. 138/1994 um skyldu stofnenda, stjórnarmanna o.fl. í einkahlutafélagi til að bæta félagi það tjón sem þeir hafa valdið í störfum sínum, hvort sem það hafi verið gert af ásetningi eða gáleysi. Þessu til viðbótar, varðandi aðalkröfu, byggir stefnandi á almennum reglum skaðabótaréttar. Til stuðnings varakröfu byggir stefnandi á því að um sé að ræða riftanlegar ráðstafanir á grundvelli 131., 134. og 141. gr. laga nr. 21/1991 og stefndi hafi verið nákominn félaginu í skilningi 3. gr. sömu laga. Þá beri stefnda að greiða fjármunina til baka til félagsins með dráttarvöxtum á grundvelli 1. og 3. mgr. 142. gr. sömu laga. Um lagarök að öðru leyti vísar stefnandi til 73. gr. laga nr. 138/1994, auk almennra reglna kröfu- og skaðabótaréttar. Þá vísar stefnandi til 32., 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 varðandi varnarþing og kröfu um málskostnað. Með hliðsjón af úrlausn málsins þykja ekki efni til að greina nánar frá máls ástæðum og lagarökum stefnanda að þessu leyti, sbr. e-lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 10. gr. laga nr. 78/2015.

Helstu málsástæður og lagarök stefnda:

Stefndi reisir sýknukröfu á því að hann hafi rekið einkahlutafélagið A og verið eini   starfsmaður   félagsins,   framkvæmdastjóri   þess,   stjórnarmaður   og   eigandi. Félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 13. desember 2017. Sveinbjörn Claessen lögmaður hafi verið skipaður skiptastjóri búsins. Skiptastjóri hafi boðað stefnda til fundar á skrifstofu sinni 9. janúar 2018 samkvæmt 81. gr. laga nr. 21/1991 til að veita upplýsingar um búið. Stefndi hafi mætt til fundar og veitt umbeðnar upplýsingar. Á þeim fundi, sem skráður er í skýrslu skiptastjóra, hafi komið fram að engar nýlegar skuldir hefðu verið gerðar upp og stefndi hefði greitt sér laun innan eðlilegra marka. Stefndi hafi staðfest efni skýrslunnar með undirritun sinni. Skiptastjóri hafi einnig skrifað undir skjalið, auk C lögmanns. Stefndi byggir á því að skýringar þær sem hann veitti skiptastjóra á fyrrgreindum fundi um greiðslur til stefnda hafi verið að þær hefðu verið vegna starfa hans fyrir félagið. Stefndi mótmælir öllum öðrum skýringum og mála tilbúnaði stefnanda varðandi umræddar greiðslur frá félaginu til stefnda, hvaða nöfnum sem þær kunna að vera nefndar. Um lagarök vísar stefndi til laga nr. 138/1994 og almennra reglna kröfu- og skaðabótaréttar. Þá vísar stefndi til laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, sbr. síðari breytingar. Einnig vísar stefndi til laga nr. 21/1991, sbr. síðari breytingar, auk laga nr. 91/1991 og stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

IV.

Niðurstöður:

Ágreiningslaust er í málinu að þrjátíu og níu greiðslur fóru fram á tímabili frá 12. desember 2015 til 27. apríl 2017 sem runnu af bankareikningi stefnanda til stefnda, samtals að fjárhæð 11.713.000 krónur, þar af fjórar peningaúttektir hjá gjaldkera samtals að fjárhæð 4.200.000 krónur, átján úttektir í hraðbanka, samtals að fjárhæð 3.000.000 króna og sautján millifærslur í netbanka á bankareikning stefnda, samtals að fjárhæð 4.513.000 krónur. Stefnandi byggir meðal annars á því að umræddar greiðslur hafi verið ólögmæt lán einkahlutafélags til stefnda sem framkvæmdastjóra o.fl. og þau beri að greiða til baka til félagsins með dráttar vöxtum. Stefndi kannast við að umræddar greiðslur hafi runnið til hans en hann byggir   á   því   að   um   hafi   verið   að   ræða   launagreiðslur   til   hans   frá   félaginu. Bókhaldsgögn félagsins styðji það og þau megi finna hjá bókhaldsþjónustufyrirtæki sem hafi fært bókhald fyrir félagið.

Meðal   málsgagna   er   vottorð   ríkisskattstjóra   úr   fyrirtækjaskrá,   dagsett   19. febrúar   2019,   þar   sem   meðal   annars   kemur   fram   að   stefndi   hafi   verið stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi hins gjaldþrota einkahlutafélags samkvæmt   stofnsamþykktum   þess   frá   19.   febrúar   2015.   Þá   greinir   einnig   í vottorðinu, um endurskoðanda/skoðunarmann einkahlutafélagsins, að bókhaldsþjónustan X. hafi verið skoðunarmaður félagsins og að D hafi verið varaskoðunarmaður þess. Í máli þessu liggur fyrir að skiptastjóri leitaðist, í aðdrag anda   málshöfðunarinnar,   við   að   afla   bókhaldsgagna   þrotabúsins,   án   árangurs. Stefndi, sem var áður fyrirsvarsmaður, eigandi og eini starfsmaður hins gjaldþrota einkahlutafélags, vísaði á fyrrgreinda bókhaldsþjónustu þegar hann gaf skýrslu hjá skiptastjóra 9. janúar 2018. Bar hann um að bókhaldsþjónustan hefði séð um bók hald félagsins og að þar mætti finna bókhaldsgögnin. Framburður stefnda um færslu bókhalds og vörslur bókhaldsgagnanna samrýmist hins vegar ekki skriflegu svari   sem   skiptastjóri   aflaði   frá   fyrrgreindri   bókhaldsþjónustu   í   framhaldi   af skýrslutöku af stefnda sama dag. Af því svari, sem stafar frá fyrrgreindum D, fram kvæmdastjóra umræddrar bókhaldsþjónustu og varaskoðunarmanni hins gjaldþrota félags, verður ráðið að bókhaldsþjónustan hafi ekki komið að færslu bókhalds fyrir félagið frá stofnun þess í byrjun árs 2015. Að þessu virtu verður ráðið að fyrr greindur framburður stefnda og málatilbúnaður hans fyrir dómi um færslu bókhalds og vörslur á bókhaldsgögnum hins gjaldþrota félags byggist ekki á nægjanlega traustum grundvelli. Er því ekki unnt að byggja á þeim skýringum við úrlausn máls þessa og verður stefndi látinn bera hallann af því við sönnunarmatið.

Meðal málsgagna eru færsluyfirlit, úttektarnótur o.fl. sem skiptastjóri aflaði frá Arion banka hf., viðskiptabanka hins gjaldþrota félags, sem sýna að umræddir fjár munir runnu til stefnda með fyrrgreindum greiðslum á umræddu tímabili. Engin gögn liggja fyrir sem sýna fram á eða gera líklegt að fjármunir þessir hafi verið nýttir í þágu félagsins. Engin gögn liggja fyrir sem staðfesta, gera líklegt eða styðja þann málatilbúnað stefnda að um hafi verið að ræða launagreiðslur til hans. Engir launaseðlar hafa verið lagðir fram né heldur gögn um staðgreiðslu tekjuskatts af meintum launum eða greiðslur til lífeyrissjóðs vegna hinna meintu launagreiðslna. Stefndi   verður   látinn   bera   hallann   af   þessu   og   eru   staðhæfingar   hans   um fyrrgreindar launagreiðslur því ósannaðar. Að mati dómsins bendir allt til þess að bankareikningur félagsins og þeir fjármunir sem þar komu inn hafi verið nýttir í þágu stefnda sjálfs eins og um væri að ræða hans eigin bankareikning og hann hafi ekki haldið bókhald vegna reksturs félagsins. Stefndi hefur ekki fært fram sönnur fyrir hinu gagnstæða og verður hann látinn bera hallann af því.

Að öllu framangreindu virtu, og þar sem annarra gagna nýtur ekki við, verður lagt til grundvallar að stefndi hafi, með því að nýta sér stöðu sína hjá umræddu einkahlutafélagi, og sem prókúruhafi á umræddan bankareikning félagsins, veitt sjálfum sér lán frá félaginu með umræddum greiðslum andstætt því sem til var ætlast samkvæmt 1. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994. Um skyldu til endurgreiðslu slíkra ólögmætra lána með dráttarvöxtum fer eftir 4. og 5. mgr. sömu lagagreinar og almennum   reglum   kröfuréttar.   Verður   því   fallist   á   aðalkröfu   stefnanda   með dráttarvöxtum eins og nánar greinir í dómsorði.

Eftir niðurstöðu málsins og í samræmi við 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað sem telst með hliðsjón af umfangi og rekstri málsins fyrir dómi hæfilega ákveðinn 1.200.000 krónur.

Af hálfu stefnanda flutti mál þetta Sveinbjörn Claessen lögmaður. Stefndi, sem er ólöglærður, flutti mál sitt sjálfur. Daði Kristjánsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Stefndi, B, greiði stefnanda, þrotabúi A ehf., 11.713.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 150.000 krónum frá 12. desember 2015 til 26. desember 2015, af 350.000 krónum frá þeim degi til 28. desember 2015, af 1.350.000 krónum frá þeim degi til 29. desember   2015,   af   1.550.000   krónum   frá   þeim   degi   til   26.   janúar   2016,   af 1.800.000 krónum frá þeim degi til 24. febrúar 2016, af 2.800.000 krónum frá þeim degi til 1. mars 2016, af 3.000.000 króna frá þeim degi til 3. mars 2016, af 3.183.000 krónum frá þeim degi til 30. mars 2016, af 3.383.000 krónum frá þeim degi til 31. mars 2016, af 3.533.000 krónum frá þeim degi til 5. apríl 2016, af 4.483.000 krónum frá þeim degi til 14. apríl 2016, af 4.683.000 krónum frá þeim degi til 24. apríl 2016, af 4.753.000 krónum frá þeim degi til 19. maí 2016, af 4.953.000 krónum frá þeim degi til 4. júní 2016, af 5.153.000 krónum frá þeim degi til 7. júní 2016, af 5.363.000 krónum frá þeim degi til 24. júní 2016, af 6.363.000 krónum frá þeim degi til 28. júní 2016, af 6.963.000 krónum frá þeim degi til 13. júlí 2016, af 7.163.000 krónum frá þeim degi til 19. júlí 2016, af 7.463.000 krónum frá þeim degi til 23. júlí 2016, af 7.613.000 krónum frá þeim degi til 25. nóvember 2016, af 7.713.000 krónum frá þeim degi til 8. desember 2016, af 7.913.000 krónum frá þeim degi til 19. desember 2016, af 8.113.000 krónum frá þeim degi til 11.   janúar   2017,   af   8.463.000   krónum   frá   þeim   degi   til   20.   janúar   2017,   af 8.663.000 krónum frá þeim degi til 21. janúar 2017, af 8.863.000 krónum frá þeim degi til 30. janúar 2017, af 8.963.000 krónum frá þeim degi til 22. febrúar 2017, af 9.163.000 krónum frá þeim degi til 25. febrúar 2017, af 9.263.000 krónum frá þeim degi til 3. mars 2017, af 9.413.000 krónum frá þeim degi til 14. mars 2017, af 10.113.000 krónum frá þeim degi til 22. mars 2017, af 10.213.000 krónum frá þeim degi til 4. apríl 2017, af 10.313.000 krónum frá þeim degi til 17. apríl 2017, af 10.413.000 krónum frá þeim degi til 24. apríl 2017, af 10.513.000 krónum frá þeim degi til 27. apríl 2017, en af allri fjárhæðinni frá þeim degi til greiðsludags. Stefndi greiði stefnanda 1.200.000 krónur í málskostnað.

Daði Kristjánsson (sign.)