Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1962/2011:

D Ó M U R

máli nr. S-1962/2011:

Ákæruvaldið

(Óli Ingi Ólason fulltrúi)

gegn

Arnari Frey Gunnlaugssyni,

(Haukur Örn Birgisson hrl)

A,

(Valtýr Sigurðsson hrl)

Kristni Alfreðssyni, Óskari Mána Atlasyni og

(Bjarni Hólmar Einarsson hdl)

Sigurði Aroni  Snorra Gunnarssyni

(Páll Kristjánsson hdl)

Ávana- og fíkniefni. Gripdeild. Hylming. Nytjastuldur. Rán. Fangelsi. Skilorð. Skjalabrot. Þjófnaður.

Fimm menn voru dæmdir til fangelsisvistar fyrir rán og var refsing fjögurra þeirra skilorðsbundin. Tveir þeirra voru að auki dæmdir fyrir önnur brot.

Ár 2012, fimmtudaginn 16.  febrúar, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara,  kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 1962/2011:  Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason) gegn Arnari Frey Gunnlaugssyni (Haukur Örn Birgisson hrl.), A (Valtýr Sigurðsson hrl.),  Kristni Alfreðssyni (Valtýr Sigurðsson hrl.), Óskari Mána Atlasyni  (Bjarni Hólmar Einarsson hdl.) og Sigurði Aroni Snorra Gunnarssyni (Páll Kristjánsson hdl.), sem tekið var til dóms hinn 8. febrúar að aflokinni aðalmeðferð.

Málið er höfðað með tveimur ákæruskjölum á hendur ákærðu, Arnari Frey Gunnlaugssyni, kennitala 000000-0000, Reyrengi 3, A, kennitala 000000-0000, [..], Kristni Alfreðssyni, kennitala 000000-0000, Heiðargerði 41, Óskari Mána Atlasyni, kennitala 000000-0000, Klausturstíg 1 og Sigurði Aroni Snorra Gunnarssyni, kennitala 000000-0000, Hátúni 10b, öllum búsettum í Reykjavík.

Í fyrsta lagi er málið höfðað með ákæru ríkissaksóknara, dagsettri 19. desember sl. á hendur ákærðu öllum, „fyrir eftirgreind hegningarlagabrot framin í Reykjavík:

  1. Á hendur ákærðu Arnari Frey, Kristni, Óskari Mána og Sigurði Aroni fyrir rán, með því að hafa að kvöldi föstudagsins 11. febrúar 2011, í félagi tekið ákvörðun um að fremja rán sem þeir framkvæmdu þannig að ákærðu Óskar Máni, Arnar Freyr og Kristinn fóru inn á veitingastað Dominos Pizza í  Spönginni, með andlit sín hulin, en ákærði Sigurður Aron beið í bifreiðinni YX-654 skammt frá veitingastaðnum, eftir að hafa ekið þeim þangað. Ákærði Óskar Máni tók vaktstjórann Mikael Harðarson kverkataki, þrýsti honum upp að vegg og krafðist þess að hann upplýsti hvar peningarnir væru geymdir, sem hann gerði. Ákærðu Arnar Freyr og Kristinn fóru því næst inn í vaktherbergi og tóku þaðan kr. 196.240 í reiðufé og höfðu á brott með sér, sem ákærðu skiptu síðar á milli sín. Ákærði Sigurður Aron ók meðákærðu á brott í fyrrnefndri bifreið og útvegaði lambhúshettur sem notaðar voru við ránið.

    Telst þetta varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    M. 007-2011-8886

  2. Á hendur ákærðu öllum fyrir rán, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 21. febrúar 2011 í félagi tekið ákvörðun um að fremja rán sem þeir framkvæmdu þannig að ákærðu Óskar Máni, Arnar Freyr, Kristinn og A fóru inn á veitingastað Dominos Pizza við Hjarðarhaga, með andlit sín hulin, en ákærði Sigurður Aron beið í bifreiðinni YX-654, skammt frá veitingastaðnum, eftir að hafa ekið meðákærðu þangað. Ákærði Kristinn tók Olgu Kopilova starfsmann Dominos og lagði enni hennar upp að vegg, ákærði Óskar Máni ýtti öðrum starfsmanni Zintis Roznieks og skipaði honum að setjast í stól við hlið Olgu og ákærði Arnar, sem hafði kúbein í hönd, krafðist þess að starfsmaðurinn Pálmar Helgi afhenti sér peninga og tóku ákærðu kr. 85.000 í reiðufé sem þeir höfðu á brott með sér og skiptu á milli sín. Ákærði Sigurður Aron ók meðákærðu á brott í fyrrnefndri bifreið og hann útvegaði lambhúshettur og kúbein sem notað var við ránið.

    Telst þetta varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    M. 007-2011-10554

  3. Á hendur ákærða Sigurði Aroni Snorra Gunnarssyni, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 21. febrúar 2011 í íbúð sinni að Hátúni 10b í Reykjavík haft í vörslum sínum 0,57 g af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við leit í íbúð ákærða í tengslum við ofangreind mál. Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

    M. 007-2011-10554

    Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa:

Vegna ákæruliðar 1.

Af hálfu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. kt. 000000-0000, gerir Gestur Óskar Magnússon hdl. þá kröfu að ákærðu í ákæruliði 1. verði dæmdir til greiðslu á kr. 196.240 ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá tjónsdegi til þess dags er dómsmál er höfðað, en samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar skv. 3. mgr. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Vegna ákæruliðar 2.

Af hálfu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. kt. 000000-0000, gerir Gestur Óskar Magnússon hdl. þá kröfu að ákærðu í ákærulið 2. Verði dæmdir til greiðslu á kr.53.565 ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá tjónsdegi til þess dags er dómsmál er höfðað, en samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar skv. 3. mgr. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.“

Í öðru lagi er málið höfðað á hendur ákærða Óskari Mána með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 15. nóvember 2011, „fyrir eftirtalin brot framin á höfuðborgarsvæðinu 2009 og 2010:

I.

Á hendur ákærða Óskari Mána fyrir þjófnað í félagi við tvo aðra, með því að hafa:

  1. Aðfaranótt þriðjudaginn 15. desember 2009 brotist inn í bílasölu Ingvars ehf., Nethyl 1 í Reykjavík, með því að  spenna upp glugga  og stolið þaðan fartölvu af gerðinni Toshiba, 3 kveikjuásalyklum, myndavél af gerðinni Samsung og  bifhjóli af gerðinni  Honda CRF.

    M. 007-2009-78576

II.

Á hendur ákærða Óskari Mána:

  1. Fyrir þjófnað, með því að hafa Laugardaginn 11. júlí 2009 brotist inn í íbúðarhúsið að Hamravík 86 í Reykjavík, með því að spenna þar  upp glugga og stolið þaðan 3 Ipod nano tónhlöðum, Ipod touch spilara, Sony farsíma, Apple fartölvu og armbandsúri af gerðinni D&C, samtals að verðmæti kr. 412.580,-.

    M. 007-2009-42647

  2. Fyrir þjófnað og nytjastuld, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 7. mars 2010 brotist inn í bílasölu Ingvars ehf., Nethyl 1 í Reykjavík, með því að fjarlægja plötu sem huldi brotin glugga  og stolið þaðan fjölda kveikjuáslykla allt að 40 og í kjölfarið tekið bifreiðina AR-627 heimildarlaust og ekið bifreiðinni allt til 11. mars sama ár, en bifreiðin fannst  yfirgefin við Lækjargötu í Reykjavík.

    M. 007-2010-14641

  3. Fyrir þjófnað með því að hafa föstudaginn 9. júlí 2010 í versluninni Hagkaup í Smáralind í Kópavogi stolið Hugo Boss herrailmi að verðmæti kr. 5656,-.

    M. 007-2010-43969

  4. Fyrir, þjófnað, skjalabrot og hilmingu, með því að hafa í félagi við Hinrik Geir Helgason á tímabilinu frá 7. til 10. maí 2010 stolið skráningarmerkjunum af bifreiðinni ZH-381 á bifreiðastæði  við Víkurhvarf 6 í Kópavogi  og í blekkingarskyni og heimildarleysi fest það á bifreiðina YV-663, en bifreiðin fannst þann 21. maí 2010 við Prestastíg nr. 11 í Reykjavík með stolin skráningarmerki af bifreiðinni ZH-381, en ákærði Óskar Máni vissi að bifreiðin YV-663 var stolin.

    M. 007-2010-29100

    Telst þetta varða við  244. gr.  er varðar ákærulið 1, 2, 3, 4, og 5, og einnig við 259. gr. er varðar  ákærulið 3 og er varðar ákærulið 5 einnig við 157. gr., og 254. gr.  almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

  5. Fyrir gripdeild, með því að hafa mánudaginn 10. maí  2010 á bensínstöð N1 við Ártúnshöfða í Reykjavík,  dælt eldsneyti að andvirði kr. 6.001,-  á bifreiðina YV- 663 og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.

    M. 007-2010-34138

  6. Fyrir gripdeild, með því að hafa þriðjudaginn 18. maí  2010, í félagi við Hinrik Geir Helgason á bensínstöð N1 við Lækjargötu 46 í Hafnarfirði, dælt eldsneyti að andvirði kr. 6.817,-  á bifreiðina YV-663 og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.

    M. 007-2010-33705

    Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og  greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Í málinu gera eftirtaldir aðilar kröfu um bætur:

    Gísli Páll Jónsson, kt. 000000-0000, f.h. N1 hf. kt. 540206-201 gerir kröfu um að ákærði Óskar Máni greiði  skaðabætur  að fjárhæð kr. 6.001, auk vaxta  skv. 8. gr. vaxtalaga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi 10. maí 2010, en síðan dráttarvaxta  skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

    M. 007-2010-34138

    Gísli Páll Jónsson, kt. 000000-0000, f.h. N1 hf. kt. 540206-201 gerir kröfu um að ákærði Óskar Máni greiði skaðabætur  að fjárhæð kr. 6.817, auk vaxta  skv. 8. gr. vaxtalaga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi 18. maí 2010, en síðan dráttarvaxta  skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

    M. 007-2010-33705

    Þorsteinn Þorsteinsson, f.h. Vátryggingafélags Íslands hf., kt. 000000-0000 gerir kröfu um að ákærði Óskar Máni verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 412.580,-  auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, sem var 11.07.2009 en síðan dráttarvaxta samkvæmt III. kafla vaxtalaga til  greiðsludags.“

    M. 007-2009-42647

    Fallið hefur verið frá því atriði í ákæru ríkissaksóknara að ákærði Óskar Máni hafi tekið Mikael Harðarson vaktstjóra kverkataki.

    Af hálfu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. hefur því verið lýst yfir að bótakrafa félagsins beinist ekki að ákærða A.

    Ákærðu hafa skýlaust játað þau brot sem þeir eru saksóttir fyrir með ákærunum í málinu.  Hafa þeir orðið sekir um verknaði þá sem þar er lýst og réttilega eru þar færðir til refsiákvæða.

    Refsing, skaðabætur og sakarkostnaður Ránsbrotin tvö voru skipulögð í þaula og framin annars vegar af fjórum og hins vegar af fimm mönnum í sameiningu.  Á hinn bóginn ber að gæta þess að ákærðu hafa, eins og áður segir, játað þessi brot að öllu leyti og telja verður að lítil hætta hafi verið samfara þeim.  Ekki þykir vera hægt að byggja á því, gegn skýrslum í málinu, að kúbeinið sem ákærðu höfðu með sér í síðara tilvikinu hafi verið ætlað til annars en að spenna upp hirslur.  Er þess sérstaklega að gæta að verkfærið var ekki sýnt þeim sem fyrir brotinu urðu.  Loks varð lítill ávinningur af þessum brotum, þótt víst sé að í augum ákærðu hafi hann verið vonum minni.

    Ákærði Arnar Freyr var sektaður fyrir fíkniefnalagabrot í október 2010 en annan sakaferil hefur hann ekki.  Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir tvö rán. Þykir refsing hans vera hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.  Rétt þykir að fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

    Ákærða A hefur ekki verið refsað áður en hann var á sautjánda ári þegar hann framdi brot sitt.  Refsing ákærða þykir með vísan til 2. tl. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga vera hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði.  Rétt þykir að fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

    Ákærða Kristni hefur ekki verið refsað fyrr.  Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir tvö rán.  Þykir refsing hans vera hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.  Rétt þykir að fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

    Ákærði Óskar Máni var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi í október 2009 fyrir þjófnaðarbrot, en þá var hann 17 ára gamall.  Þá hefur hann verið sektaður fyrir  brot gegn 45. gr.a í umferðarlögum og sviptur ökurétti. Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir tvö ránsbrot og sjö önnur brot gegn hegningarlögum.  Ákærði hefur rofið skilorð fyrrnefnds dóms og ber að dæma hann upp og gera ákærða refsingu í einu lagi.  Þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.  Fram er komið í málinu að ákærði hefur tekið sig á, er hættur óreglu og stundar nú nám með árangri.   Þykir mega fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

    Ákærði Sigurður Aron Snorri er mun eldri en aðrir ákærðir í málinu, fæddur 1976, og á að baki nokkurn brotaferil.  Hann hefur hlotið fimm refsidóma fyrir hegningarlagabrot, fyrst árið 1995 en síðast 15. desember sl.  Þá hefur honum verið refsað nokkrum sinnum fyrir umferðarlagabrot.  Fyrir liggur að ákærði var forystumaður um ránsbrotin og skipuleggjandi.  Refsing hans nú verður hegningarauki við þriggja mánaða fangelsisdóm sem hann hlaut 19. desember sl. Þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár.

    Að kröfu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. ber að dæma ákærðu Arnar Frey, Kristin, Óskar Mána og Sigurð Aron Snorra til þess að greiða félaginu 196.240 krónur í skaðabætur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá 11. febrúar 2011 til 11. janúar 2012 en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags.

    Þá ber einnig að kröfu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. ber að dæma ákærðu Arnar Frey, Kristin, Óskar Mána og Sigurð Aron Snorra til þess að greiða félaginu 53.565 krónur í skaðabætur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, frá 21. febrúar 2011 til 11. janúar 2012 en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags.

    Ekki var sótt þing af hálfu þeirra sem krafist hafa bóta fyrir brotin í ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.  Ber að vísa þeim kröfum frá dómi.

    Dæma ber ákærðu til þess að greiða verjendum sínum fyrir dómi og við lögreglurannsókn í málinu málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti, eins og rakið er hér að neðan.

    Ákærða Arnar Frey til þess að greiða verjanda sínum, Hauki Erni Birgissyni hrl., 150.000 krónur í málsvarnarlaun og Bjarna Eiríkssyni hdl., 50.000 krónur fyrir verjandastörf við rannsókn málsins..

    Ákærðu A og Kristin til þess að greiða verjanda sínum, Valtý Sigurðssyni hrl., óskipt 150.000 krónur í málsvarnarlaun.

    Ákærða Óskar Mána til þess að greiða verjanda sínum, Bjarna Hólmari Einarssyni hdl., 150.000 krónur í málsvarnarlaun.

    Ákærða Sigurð Aron Snorra til þess að greiða verjanda sínum, Páli Kristjánssyni hdl. 150.000 krónur í málsvarnarlaun og Sverri Bergmann Pálmasyni hdl. 150.000 krónur fyrir verjandastörf við rannsókn málsins.

    Annan sakarkostnað hefur ekki leitt af máli þessu.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Arnar Freyr Gunnlaugsson, sæti fangelsi í 12 mánuði.  Frestað er framkvæmd refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði, A, sæti fangelsi í 4 mánuði.  Frestað er framkvæmd refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði, Kristinn Alfreðsson, sæti fangelsi í 12 mánuði.  Frestað er framkvæmd refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði, Óskar Máni Atlason, sæti fangelsi í 15 mánuði.  Frestað er framkvæmd refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði Sigurður Aron Snorri Gunnarsson, sæti fangelsi í tvö ár.

Ákærðu Arnar Freyr, Kristinn, Óskar Máni og Sigurður Aron Snorri greiði Tryggingamiðstöðinni hf. 196.240 krónur í skaðabætur ásamt almennum vöxtum frá 11. febrúar 2011 til 11. janúar 2012, en þaðan í frá með dráttarvöxtum til greiðsludags.

Ákærðu Arnar Freyr, Kristinn, Óskar Máni og Sigurður Aron Snorri greiði Tryggingamiðstöðinni hf. 53.565 krónur í skaðabætur ásamt almennum vöxtum frá 21. febrúar 2011 til 11. janúar 2012 en þaðan í frá með dráttarvöxtum til greiðsludags.

Ákærði Arnar Frey greiði verjanda sínum, Hauki Erni Birgissyni hrl., 150.000 krónur í málsvarnarlaun og Bjarna Eiríkssyni hdl. 50.000 krónur fyrir verjandastörf við rannsókn málsins.

Ákærðu A og Kristinn greiði verjanda sínum, Valtý Sigurðssyni hrl., óskipt 150.000 krónur í málsvarnarlaun.

Ákærði Óskar Máni greiði verjanda sínum, Bjarna Hólmari Einarssyni hdl., 150.000 krónur í málsvarnarlaun.

Ákærði Sigurður Aron Snorri greiða verjanda sínum, Páli Kristjánssyni hdl. 150.000 krónur í málsvarnarlaun og Sverri Bergmann Pálmasyni hdl. 150.000 krónur fyrir verjandastörf við rannsókn málsins.

Pétur Guðgeirsson