Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 28. febrúar 2008.
Mál nr. S-26/2008:
D Ó M U R
máli nr. S-26/2008:
Ákæruvaldið
(Erna Sigríður Sigurðardóttir fulltrúi)
gegn
Bergþóri Leifssyni og
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Björtu Karlsdóttur
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð
Fangelsi. Hegningarauki. Skaðabætur. Skilorð. Umferðarlagabrot. Sakarkostnaður. Ökuréttarsvipting. Þjófnaður.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 8 mánaða fangelsi, til sviptingar ökuréttinda og greiðslu skaðabóta fyrir margvísleg hegningar- og umferðarlagabrot. Þá var kona einnig dæmd í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi, til sviptingu ökuréttinda og greiðslu skaðabóta fyrir margvísleg hegningar- og umferðarlagabrot.
Ár 2008, fimmtudaginn 28. febrúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 26/2008: Ákæruvaldið (Erna Sigríður Sigurðardóttir) gegn Bergþóri Leifssyni (Hilmar Ingimundarson hrl.) og Björtu Karlsdóttur (Sveinn Andri Sveinsson hrl.), sem tekið var til dóms hinn 26. febrúar sl. Málið er höfðað með tveimur ákærukjölum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Í fyrsta lagi er málið höfðað með ákæru, 18. desember sl. á hendur ákærðu, Bergþóri Leifssyni, kt. 000000-0000, Kleppsvegi 72, Reykjavík, og Björtu Karlsdóttur, kt. 000000-0000, Lindasmára 5, Kópavogi, “fyrir eftirtalin hegningar- og umferðarlagabrot:
I.
Á hendur ákærðu báðum fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 16. nóvember 2007, í verslun Kjarvals að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið Móa kjúklingabringum, Closan flush salernishreinsi, Nivea hreinsimjólk, Þykkvabæjar kartöflumús, 2 lítrum af kóki og Delon Cocoa Butter húðmjólk, samtals að verðmæti 3.344 krónur, en ákærða Björt verslaði tvo burðarpoka sem ákærðu fylltu bæði af ofangreindum vörum og gengu út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-91331.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærðu verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 3.374, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
II.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 10. júní 2007, ekið bifreiðinni ZU-457 án skráningarmerkja austur Hrísateig í Reykjavík, og undir áhrifum amfetamíns og metýlfenídat en þau efni eru ávana- og fíkniefni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði og af þeim sökum telst ákærði hafa verið óhæfur til að stjórna ökutækinu örugglega.
ML.007-2007-42779.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 64. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
III.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 14. september 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið einni Júmbó langloku, einni Júmbó samloku og tveimur kókflöskum, samtals að verðmæti 800 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-75390.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Magnús R. Magnússon, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 800, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
IV.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 19. september 2007, í verslun 11-11, Laugavegi 116 í Reykjavík, stolið tveimur pakkningum af Ali svínakótilettum og þremur pakkningum af Móa kjúklingabringum, samtals að verðmæti 6.627 krónur, með því að stinga vörunum ofan í plastpoka og ganga með þær úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-72008.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Magnús R. Magnússon, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 6.627, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
V.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 25. september 2007, í verslun Nóatúns við Hringbraut í Reykjavík, stolið 6 pakkningum af kjúklingabringum og Tech Hydroxycut fitubrennslutöflum samtals að verðmæti kr. 17.183.
ML.007-2007-73695.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VI.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 25. september 2007, í verslun Hagkaups, Eiðistorgi í Reykjavík, stolið 8 DVD myndum og þremur pakkningum af Holta kjúklingabringum, samtals að verðmæti kr. 18.545.
ML.007-2007-73695.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Steinþór Oddgeirsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Hagkaups, kt. 000000-0000, að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 3.553, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001, frá tjónsdegi sem var 26. september 2007, en síðan dráttarvexti samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
VII.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 25. september 2007, í félagi með Björgvini Ómarssyni, kt. 000000-0000, stolið tveimur gaskútum, að verðmæti 4000 krónur, af fellihýsum á tjaldvagnasvæði Seglagerðarinnar Ægis, Eyjaslóð 5 í Reykjavík.
ML.007-2007-73695.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VIII.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 22. október 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið kókflösku og þremur pakkningum af hrísmjólk, samtals að verðmæti 384 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-85186.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 384, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 31, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
IX.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 23. október 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið kókflösku og sælgæti, samtals að verðmæti 770 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-85182.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu hf. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 770, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
X.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 4. nóvember 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið Júmbó samloku, þremur pakkningum af hrísmjólk og sælgæti, samtals að verðmæti 930 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-87735.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu hf. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 930, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XI.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 5. nóvember 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið þremur pakkningum af hrísmjólk, samtals að verðmæti 264 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-87709.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XII.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir þjófnað, með því að hafa á sama stað og tíma og getið er um í ákærulið XI. hér að framan, stolið New Comfort bómul og New Comfort boxi af eyrnapinnum, samtals að verðmæti 338 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-87709.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, hvað varðar ákærulið XI. og XII., þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærðu verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 602, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XIII.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 6. nóvember 2007, í verslun Kjarvals að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið pakka af Gouda ostasneiðum, samtals að verðmæti 234 krónur, með því að stinga vörunni inn á sig og ganga með hana út úr versluninni án þess að greiða fyrir hana.
ML.007-2007-87704.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 234, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XIV.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 19. nóvember 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið þremur pakkningum af hrísmjólk, kókflösku og Júmbo langloku, samtals að verðmæti 693 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-91329.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 693 auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá ofangreindum tjónsdögum, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XV.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 19. nóvember 2007, í versluninni Kjarval að Norðubrún 2 í Reykjavík, stolið tveimur kókflöskum, samtals að verðmæti 240 krónur.
ML.007-2007-91334.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Magnús R. Magnússon, kt. 000000-0000, þá kröfur fh. Kaupáss hf. að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 240, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XVI.
Á hendur ákærða Bergþóri fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 23. nóvember 2007, í verslun Nóatúns, Hverafold í Reykjavík, stolið tveimur Nóatúns hamborgarhryggjum, samtals að verðmæti kr. 8.597, með því að stinga þeim innan á sig og ganga út úr versluninni án þess að greiða fyrir þá.
ML.007-2007-91335.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 8.597 auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá ofangreindum tjónsdögum, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XVII.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir hylmingu, með því að hafa mánudaginn 30. apríl 2007, í bifreiðinni ZT-655, sem lögreglan stöðvaði við Hamraborg í Kópavogi, haft í vörslum sínum debetkort, ökuskírteini og safnkort ESSO, öll stíluð á Helenu Guðlaugsdóttur, kt. 000000-0000, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni var að ræða, en umræddum kortum var stolið úr innbroti í íbúðarhúsnæði að Dugguvogi 23 í Reykjavík, 15. október 2006.
ML.010-2006-51943.
Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XVIII.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 9. maí 2007, stolið fatnaði, bókum og skarti samtals að verðmæti kr. 197.800 úr íbúðarhúsnæði að Frostafold 147 í Reykjavík, með því að setja neðangreinda muni í heimildarleysi í plastpoka og yfirgefa húsnæðið, en plastpokinn innihélt eftirfarandi muni:
ML.007-2007-33078.
Tvær enskar orðabækur að verðmæti kr. 8.000.
Silfurkross með rauðum hring að verðmæti kr. 8.800.
LOTR silfurhring að verðmæti kr. 11.000.
Silfurhringur að verðmæti kr. 7.000.
Gullkross í keðju að verðmæti kr. 15.000.
6 stk. buxur að verðmæti kr. 60.000.
2 stk. jakkar að verðmæti kr. 29.000.
3 stk. peysur, þykkar að verðmæti kr. 25.000.
3 stk. skyrtur að verðmæti kr. 15.000.
Pils að verðmæti kr. 4.000.
3 stk. þunnar peysur að verðmæti kr. 10.000.
Skartgripi að verðmæti kr. 5.000.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Díana Ósk Óskarsdóttir, kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærða verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 197.800, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001, frá tjónsdegi 9. maí 2007, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XIX.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 10. maí 2007, ekið bifreiðinni ZU-457 um Höfðatún og Snorrabraut í Reykjavík án þess að hafa til þess gild ökuréttindi, uns lögreglan stöðvaði bifreiðina á Sæbraut, auk þess sem ákærða var undir áhrifum metýlfenídat en það efni er ávana- og fíkniefni sem bannað er á íslensku yfirráðasvæði og af þeim sökum telst ákærða hafa verið óhæf til að stjórna ökutækinu örugglega.
ML.007-2007-33159.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a , sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
XX.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir gripdeild, með því að hafa miðvikudaginn 30. maí 2007, á bensínafgreiðslustöð Olís við Sæbraut í Reykjavík, dælt eldsneyti á á bifreiðina ZU-457 að verðmæti 5.972 krónur og ekið á brott án þess að greiða fyrir það.
ML.007-2007-55492.
Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gerir Eiríkur Beck þá kröfu fh. Olíuverslunar Íslands, kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 5.972, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi 30. maí 2007, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XXI.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir gripdeild, með því að hafa miðvikudaginn 13. júní 2007, á bensínafgreiðslustöð Olís við Gullinbrú í Reykjavík, dælt eldsneyti á bifreiðina ZU-457 að verðmæti 5.399 krónur og ekið á brott án þess að greiða fyrir það.
ML.007-2007-55589.
Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXII.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa að morgni sunnudagsins 8. júlí 2007, ekið bifreiðinni ZY-690 frá gatnamótum Skúlagötu og Sæbrautar í Reykjavík, vestur Sæbrautina, án þess að hafa til þess gild ökuréttindi, auk þess sem ákærða var undir áhrifum amfetamíns og vímuefnisins MDMA en þau efni eru ávana- og fíkniefni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði og af þeim sökum telst ákærða hafa verið óhæf til að stjórna ökutækinu örugglega.
ML.007-2007-52076.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a , sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
XXIII.
Á hendur ákærðu Björtu fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 15. nóvember 2007, stolið 6 DVD myndum úr verslun Fjarðarkaups í Hafnarfirði, með því að stinga umræddum myndum inn undir úlpu sína og ganga fram hjá afgreiðslukössum verslunarinnar án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-87789.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44, 1993 og 18. gr. laga nr. 66, 2006.”
Í öðru lagi er málið höfðað gegn ákærða Bergþóri einum “fyrir eftirtalin þjófnaðarbrot:
I.
Með því að hafa sunnudaginn 16. desember 2007, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið Júmbó langloku og ½ líters kókflösku, samtals að verðmæti 429 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær.
ML.007-2007-100424.
Í máli þessu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu hf. Kaupáss hf., að ákærði Bergþór verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 429, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
II.
Með því að hafa laugardaginn 22. desember 2007, í versluninni 11/11 á Skúlagötu 13 í Reykjavík, stolið tveimur Hóla hamborgarhryggjum, Kea hangikjötslæri og Hóla bayonnesskinku, samtals að verðmæti 16.490 krónur, með því að stinga kjötvörunum ofan í bakpoka sem ákærði hafði meðferðis og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða þær.
ML.007-2007-98938.
III.
Með því að hafa miðvikudaginn 9. janúar 2008, í versluninni Kjarval að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið húfu að verðmæti 949 krónur, með því að stinga húfunni inn á sig og ganga með hana út úr versluninni án þess að greiða fyrir hana.
ML.007-2007-2825.
Í máli þessu gerir Sigurður Már Grétarsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fh. Norvik hf., að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 949 kr., auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Teljast ofangreind brot öll varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”
Af hálfu ákæruvaldsins hefur því verið lýst yfir að afturkallaður sé I. kafli síðari ákærunnar og að IV. kafla fyrri ákærunnar sé breytt á þann veg að ákærði Bergþór sé saksóttur fyrir þjófnað á einni pakkningu af kjúklingabringum. Loks hefur verið fallið frá XVIII. kafla ákærunnar sem varðar ákærðu Björtu.
Málavextir
Ákærðu hafa skýlaust játað þau brot sem þau eru saksótt fyrir. Hafa þau orðið sek um verknaði þá sem lýst er í ákærunum og réttilega eru þar færðir til refsiákvæða.
Ákærði Bergþór hefur til þessa verið dæmdur 12 sinnum fyrir ýmis hegningarlagabrot, aðallega þjófnaði, frá árinu 1996. Refsingu hans ber að ákveða sem hegningarauka að hluta til. Þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði.
Ákærða Björt hefur hlotið tvo skilorðsdóma fyrir hegningarlagabrot. Refsingu hennar nú ber að ákveða að nokkru sem hegningarauka við dóma þessa en jafnframt ber að dæma þá upp og gera ákærðu refsingu í einu lagi. Þykir refsingin þannig hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Rétt þykir að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Svipta ber ákærða Bergþór ökurétti í 2 mánuði frá 11. mars 2008 að telja og svipta ber ákærðu Björtu ökurétti í 4 mánuði frá 13. mars 2008 að telja.
Dæma ber ákærðu til þess að greiða skaðabætur ásamt almennum vöxtum samkvæmt 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi til dómsuppsögu en eftir það með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags:
Ákærðu Bergþór og Björtu til þess að greiða Kaupási hf. 3.374 krónur, frá 16. nóvember 2007.
Ákærða Bergþór til þess að greiða Kaupási hf. bætur sem hér segir:
800 krónur, frá 14. september 2007;
4.113 krónur, frá 19. september 2007;
384 krónur, frá 22. október 2007;
770 krónur, frá 23. október 2007;
930 krónur, frá 4. nóvember 2007;
264 krónur, frá 5. nóvember 2007;
234 krónur, frá 6. nóvember 2007;
833 krónur, frá 19. nóvember 2007;
8.597 krónur, frá 23. nóvember 2007;
949 krónur, frá 9. janúar 2008.
Ákærða Bergþór til þess að greiða Hagkaupum hf. 3.353 krónur, frá 25. september 2007.
Ákærðu Björtu til þess að greiða Kaupási hf. 338 krónur, frá 5. nóvember 2007.
Ákærðu Björtu til þess að greiða Olíuverslun Íslands hf. 5.972 krónur, frá 30. maí 2007.
Bótakrafa Díönu Óskar Óskarsdóttur kemur ekki til álita þar sem fallið hefur verið frá því ákæruatriði.
Dæma ber ákærða Bergþór til þess að greiða verjanda sínum, Hilmari Ingimundarsyni hrl., 200.000 krónur í málsvarnarlaun vegna rannsóknar og dómsmeðferðar málsins. Þá ber að dæma ákærðu Björtu til þess að greiða verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hrl. 100.000 krónur í málsvarnarlaun en 50.000 króna málsvarnarlaun ber að greiða verjandanum úr ríkissjóði. Málsvarnarlaunin dæmast með virðisaukaskatti.
Dæma ber ákærða Bergþór til þess að greiða 107.953 krónur í annan sakarkostnað og ákærðu Björtu einnig til þess að greiða 107.953 krónur í annan sakarkostnað.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Bergþór Leifsson, sæti fangelsi í 8 mánuði.
Ákærða, Björt Karlsdóttir, sæti fangelsi í 10 mánuði. Frestað er því að framkvæma refsingu þessa og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Ákærði Bergþór er sviptur ökurétti í 2 mánuði frá 11. mars 2008 að telja.
Ákærða Björt er svipt ökurétti í 4 mánuði frá 13. mars 2008 að telja.
Ákærðu greiði skaðabætur ásamt almennum vöxtum samkvæmt 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, sem tilgreindur er hér í hverju tilviki, til dómsuppsögu en eftir það með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags:
Ákærðu Bergþór og Björt Kaupási hf. 3.374 krónur, frá 16. nóvember 2007.
Ákærði Bergþór Kaupási hf.:
800 krónur, frá 14. september 2007;
4.113 krónur, frá 19. september 2007;
384 krónur, frá 22. október 2007;
770 krónur, frá 23. október 2007;
930 krónur, frá 4. nóvember 2007;
264 krónur, frá 5. nóvember 2007;
234 krónur, frá 6. nóvember 2007;
833 krónur, frá 19. nóvember 2007;
8.597 krónur, frá 23. nóvember 2007;
949 krónur, frá 9. janúar 2008.
Ákærði Bergþór Hagkaupum hf. 3.353 krónur, frá 25. september 2007.
Ákærða Björt Kaupási hf. 338 krónur, frá 5. nóvember 2007.
Ákærða Björt Olíuverslun Íslands hf. 5.972 krónur, frá 30. maí 2007.
Ákærði Bergþór greiði verjanda sínum, Hilmari Ingimundarsyni hrl., 200.000 krónur í málsvarnarlaun.
Ákærða Björt greiði verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hrl., 100.000 krónur í málsvarnarlaun en 50.000 króna málsvarnarlaun greiðist verjandanum úr ríkissjóði.
Ákærði Bergþór greiði 107.953 krónur í annan sakarkostnað.
Ákærða Björt greiði 107.953 krónur í annan sakarkostnað.
Pétur Guðgeirsson