Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1342/2008:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Björtu Karlsdóttur

Ár 2008, fimmtudaginn 20. nóvember,

er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af

Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr.

til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru

Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 9. október sl. á hendur

ákærðu, Björtu

Karlsdóttur, kt. 000000-0000, Lindasmára 5, Kópavogi, dvst. Kleppsvegi 76,

Reykjavík,

“Fyrir eftirtalin brot:

I.

Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 16. janúar 2008, farið inn

í verslunina Kjarval við Norðurbrún 2 í Reykjavík, og stolið þaðan hárlit af

tegundinni Wella og dömubindum af tegundinni Always, samtals að verðmæti kr.

1.694.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

hönd Kaupáss hf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða

skaðabætur að fjárhæð kr. 1.694, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og

verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr.

sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

II.

Fyrir skjalafals, með því að hafa laugardaginn 19. janúar 2008, að

Kleppsvegi 72 í Reykjavík, notað í viðskiptum við Pizzahöllina tékka að upphæð

kr. 9.000, með því að framselja hann, útgefinn til handhafa á eyðublað úr

tékkhefti Ólafs Friðriks Bjarnasonar, á tékkareikning nr. 00000 hjá Xxxxx, með

nafn útgefanda, Kolbrún Arnarsdóttir, sem ákærða falsaði.

Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr.

19/1940.

6-R ehf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að

fjárhæð kr. 9.000, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr.

38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum

mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

III.

1) Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 12. febrúar 2008, í

félagi við tvo ónafngreinda menn, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina

RB-379, þar sem hún stóð við Miklaholt í Hafnarfirði, með því að brjóta tvær

hliðarrúður í afturhurð farþegamegin, og stolið þaðan iPod Nano spilara og

veski, sem innihélt ökuskírteini, bíllykla og snyrtivörur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

2) Fyrir fjársvik, með því að hafa miðvikudaginn 13. febrúar 2008, í

blekkingarskyni fengið Steinar Halldór Sigurjónsson, kt. 000000-0000, leigubifreiðarstjóra,

til að aka með sig um götur Reykjavíkur frá versluninni Kjarval við Austurbrún

að BYR í Borgartúni, þaðan að söluturninum Draumnum á Rauðarárstíg og loks að

Austurbrún, án þess að geta greitt fyrir aksturinn, alls kr. 2.700.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV.

Fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 14.

febrúar 2008, heimildarlaust tekið bifreiðina ON-287 til eigin nota á

bifreiðastæði við Vínbúðina á Dalvegi í Kópavogi, og ekið henni, svipt

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Fjársvik. Hylming. Nytjastuldur. Fangelsi. Skaðabætur. Skjalafals. Umferðarlagabrot. Þjófnaður.

Ákærða dæmd í 18 mánaða fangelsi og til greiðslu skaðabóta fyrir þjófnaði, skjalafals, fjársvik o.fl.

Ár 2008, fimmtudaginn 20. nóvember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 1342/2008:  Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson) gegn Björtu Karlsdóttur (Hilmar Ingimundarson hrl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 9. október sl. á hendur ákærðu, Björtu Karlsdóttur, kt. 000000-0000, Lindasmára 5, Kópavogi, dvst. Kleppsvegi 76, Reykjavík, “Fyrir eftirtalin brot:

I.          (007-2008-7371) Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 16. janúar 2008, farið inn í verslunina Kjarval við Norðurbrún 2 í Reykjavík, og stolið þaðan hárlit af tegundinni Wella og dömubindum af tegundinni Always, samtals að verðmæti kr. 1.694.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fyrir hönd Kaupáss hf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 1.694, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

II.        (007-2008-5601) Fyrir skjalafals, með því að hafa laugardaginn 19. janúar 2008, að Kleppsvegi 72 í Reykjavík, notað í viðskiptum við Pizzahöllina tékka að upphæð kr. 9.000, með því að framselja hann, útgefinn til handhafa á eyðublað úr tékkhefti Ólafs Friðriks Bjarnasonar, á tékkareikning nr. 00000 hjá Xxxxx, með nafn útgefanda, Kolbrún Arnarsdóttir, sem ákærða falsaði.

Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gerir Tara Jensdóttir, kt. 000000-0000, þá kröfu fyrir hönd 6-R ehf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 9.000, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

III. (007-2008-10607) 1) Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 12. febrúar 2008, í félagi við tvo ónafngreinda menn, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina RB-379, þar sem hún stóð við Miklaholt í Hafnarfirði, með því að brjóta tvær hliðarrúður í afturhurð farþegamegin, og stolið þaðan iPod Nano spilara og veski, sem innihélt ökuskírteini, bíllykla og snyrtivörur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

2) Fyrir fjársvik, með því að hafa miðvikudaginn 13. febrúar 2008, í blekkingarskyni fengið Steinar Halldór Sigurjónsson, kt. 000000-0000, leigubifreiðarstjóra, til að aka með sig um götur Reykjavíkur frá versluninni Kjarval við Austurbrún að BYR í Borgartúni, þaðan að söluturninum Draumnum á Rauðarárstíg og loks að Austurbrún, án þess að geta greitt fyrir aksturinn, alls kr. 2.700.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV. (007-2008-11153) Fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 14. febrúar 2008, heimildarlaust tekið bifreiðina ON-287 til eigin nota á bifreiðastæði við Vínbúðina á Dalvegi í Kópavogi, og ekið henni, svipt ökuréttindum, um götur Reykjavíkur, uns lögreglan stöðvaði aksturinn við Freyjugötu 15.

Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 3. gr. laga nr. 27/2007 og 182. gr. laga nr. 82/1998.

V. (007-2008-16434) Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 17. febrúar, í félagi við Bergþór Leifsson kt. 000000-0000, farið inn í verslunina Kjarval við Norðurbrún 2 í Reykjavík, og stolið þaðan einni langloku og fimm pökkum af humri, samtals að verðmæti kr. 25.205.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fyrir hönd Kaupáss hf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 25.205, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

VI. (007-2008-18197) 1) Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 11. mars 2008, í verslun Lyfju í Smáralind í Kópavogi, stolið rakspíra af tegundinni Hugo Boss að verðmæti kr. 4.149, ilmvatni af tegundinni Vercace að verðmæti kr. 4.099 og „Body spray“ að verðmæti kr. 299 og í verslun Hagkaupa í Smáralind í Kópavogi, stolið rakspíra af tegundinni Diesel að verðmæti kr. 6.179 og CH allure spray að verðmæti kr. 4.339.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

2) Fyrir hylmingu, með því að hafa þriðjudaginn 11. mars 2008, í verslun Lyfju í Smáralind í Kópavogi, haft í vörslum sínum neðangreinda muni, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða:

a)         Ökuskírteini Þórunnar Sævarsdóttur, sem stolið var 10. mars 2008 úr bifreiðinni NJ-537, þar sem henni var lagt við Landsspítalann, Hringbraut í Reykjavík.

b)         Tvö debetkort Heiðrúnar Eddu Ingadóttur, sem stolið var 10. mars 2008 úr bifreiðinni RD-616, þar sem henni var lagt á bifreiðastæði Iðnskólans, Skólavörðuholti í Reykjavík.

c)         Ökuskírteini og tvö debetkort Eyjólfs Þórs Bragasonar, sem stolið var                      10. mars 2008 úr bifreiðinni ZL-591, þar sem henni var lagt á bifreiðastæði við Hafnarfjarðarkirkju, Strandgötu í Hafnarfirði.

d)         Bensínkort, strætókort og veski Braga Þorsteinssonar, sem stolið var 10. mars 2008 úr bifreiðinni ZG-331, þar sem henni var lagt á bifreiðastæði við Suðurbæjarlaug, við Hringbraut í Hafnarfirði.

Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VII. (007-2008-20327) Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 19. mars 2008, í verslun Hagkaupa í Smáralind í Kópavogi, stolið svampi fyrir andlitsfarða að verðmæti kr. 249 og einu pari af hælsokkum að verðmæti kr. 1.499.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gerir Kári Gunnar Stefánsson þá kröfu fyrir hönd Hagkaupa, kt. 000000- 0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 1.748, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

VIII. (007-2008-41434) Fyrir þjófnað, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 5. júní 2008, brotist inn í bifreiðina YF-262, þar sem henni var lagt á við Reykjavíkurveg 76-78 í Hafnarfirði, og stolið þaðan borvél, sólgleraugum, kr. 4.000 í reiðufé, smámynt og ökuskírteini í eigu Elísabethar Tönju Jónsdóttur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IX. (007-2008-42952) Fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 6. júní, farið inn í verslun 11-11 á Laugavegi í Reykjavík, og stolið þaðan matvörum, samtals að verðmæti kr. 1.846, með því að setja þær í tösku sem ákærða hafði meðferðis og ganga rakleiðis út úr versluninni án þess að greiða fyrir umræddar vörur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gerir Gunnlaugur Jóhannsson, kt. 000000-0000, þá kröfu fyrir hönd Kaupáss hf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 1.846, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

X. (007-2008-44338) Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 11. júní 2008, í félagi við Bergþór Leifsson, kt. 000000-0000, farið inn í verslun Nóatúns við Hringbraut í Reykjavík, og stolið þaðan þremur pökkum af kjúklingabringum, humri, elgslundum, hjartarkjöti og kartöflugratíni, samtals að verðmæti kr. 24.288.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XI. (007-2008-43039) Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 11. júní 2008, brotist inn í bifreiðina ON-542, í eigu Mörtu Sigurfinnsdóttur, kt. 000000-0000, þar sem bifreiðinni var lagt á bifreiðastæði við Laugarásbíó við Laugarás í Reykjavík, og stolið þaðan veski er innihélt greiðslukort í eigu Mörtu Sigurfinnsdóttur, GSM-farsíma af tegundinni Nokia, tveimur vegabréfum sem voru í eigu Mörtu og sonar hennar, gjafabréfi á snyrtistofuna Dekur og um kr. 1.200 í smámynt.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XII. (007-2008-43154) 1) Fyrir fjársvik, með því að hafa, í félagi við Bergþór Leifsson kt. 000000-0000, í blekkingarskyni í eftirtalin skipti við kaup á vörum og þjónustu, framvísað greiðslukorti í eigu Mörtu Sigurfinnsdóttur, sem ákærða tók ófrjálsri hendi, og þannig í heimildarleysi látið skuldfæra andvirði varanna og þjónustunnar á greiðslukortareikning rétthafa, eins og hér greinir:

a)         Hinn 11. júní 2008 um kl. 23:57 í verslun 10-11 að Lágmúla í Reykjavík, fyrir fjárhæð kr. 3.600.

b)         Hinn 12. júní 2008 um kl. 2:10 í verslun Skeljungs við Suðurfelli Reykjavík, fyrir fjárhæð kr. 2.605.

c)         Hinn 12. júní 2008 um kl. 5:46 við greiðslu á þjónustu leigubifreiðar við Torfufell í Reykjavík, fyrir fjárhæð kr. 2.150.

d)         Hinn 12. júní 2008 um kl. 8:53 í verslun 10-11 að Langarima í Reykjavík, fyrir fjárhæð kr. 4.111.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

2) Fyrir tilraun til fjársvika, með því að hafa, í félagi við Bergþór Leifsson kt. 000000-0000, í blekkingarskyni í eftirtalin skipti við kaup á vörum og þjónustu notað greiðslukort í eigu Mörtu Sigurfinnsdóttur, sem ákærða tók ófrjálsri hendi, og þannig reynt að skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar:

a)         Hinn 12. júní 2008 um kl. 9:08 við söluver Símans við áfyllingu á GSM-farsíma, fyrir fjárhæð kr. 5.000.

b)         Hinn 12. júní 2008 um kl. 12:12 í verslun Bónuss í Spönginni í Reykjavík, fyrir fjárhæð kr. 4.301.

c)         Hinn 12. júní 2008 um kl. 15:25 í versluninni Gullnesti að Gylfaflöt 1 í                    Reykjavík, við kaup á ostborgara, gosdrykk og mjólkurhristingi.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

XIII. (007-2008-44058) 1) Fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 16. júní 2008, í félagi við Þorvald Eydal, stolið gaskúti við íbúðarhúsi að Vallarbyggð 4 í Hafnarfirði, með því að taka gaskútinn í bifreiðina NR-370 og aka rakleiðis á brott.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

2) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 16. júní 2008, ekið bifreiðinni NR-370, svipt ökurétti og óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna, frá Vallarbyggð í Hafnarfirði, um Strandgötu í Hafnarfirði þar sem ákærða sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu sem gefin voru með neyðarakstursljósum og –hljóðmerkjum lögreglubifreiðar, áfram um vegamót Flensborgartorgs og Strandgötu án þess að gefa stefnumerki, á röngum vegarhelmingi um Strandgötu á vegarkafla við Fjarðartorg, fram úr bifreið á vegamótum Lækjargötu og Suðurgötu, á röngum vegarhelmingi um hringtorg  við Lækjargötu þannig að aðrir vegfarendur þurftu frá að víkja, án þess að gefa stefnumerki á vegamótum Hringbrautar og Fögrukinnar, austur Fögrukinn á of miklum hraða miðað við aðstæður, rakleiðis yfir vegamót Fögrukinnar og Bárukinnar án nokkurrar aðgátar, uns bifreiðin staðnæmdist við Fögrukinn 30.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr., 2. mgr. 15. gr., 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 22. gr., 2. mgr. 31. gr., 1. mgr. 36. gr., 1. og 2. mgr. 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 44/1993, 5. gr. laga nr. 66/2006, 3. gr. laga nr. 24/2007 og 182. gr. laga nr. 82/1998.

XIV. (007-2008-54333) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 30. júlí 2008, ekið bifreiðinni NJ-008, óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og án gildandi ökuréttar, frá Lyngrima að bifreiðastæði við verslun 10-11 að Langarima í Reykjavík.

Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, 3. gr. laga nr. 24/2007 og 182. gr. laga nr. 82/1998.

XV. (007-2008-54438) Fyrir hylmingu, með því að hafa föstudaginn 1. ágúst 2008, haft í vörslum sínum stafræna myndavél af tegundinni Olympus, brúnt seðlaveski, tvö greiðslukort í eigu Hilmars Þorkelssonar kt. 000000-0000, útivistarjakka af tegundinni Nike og knippi af lyklum, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða, en umræddum munum var stolið í innbroti í bifreiðina KH-153, þar sem henni var lagt í bifreiðastæði við Snorrabraut 56 í Reykjavík 30. júní 2008.

Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XVI. (007-2008-54983) Fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 1. ágúst 2008, tekið í heimildarleysi til eigin nota bifreiðina ZX-896, þar sem henni var lagt í bifreiðastæði við Skólavörðuholt í Reykjavík gegnt Hallgrímskirkju, og ekið henni um götur Reykjavíkur án gildandi ökuréttar, uns lögreglan stöðvaði aksturinn á Sæbraut sama dag.

Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 20/1956 og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 3. gr. laga nr. 24/2007 og 182. gr. laga nr. 82/1998.

XVII. (007-2008-57119) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 12. ágúst 2008, ekið bifreiðinni NJ-008, óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og án gildandi ökuréttar, vestur Suðurlandsbraut í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði akstur hennar við álfheima.

Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, 3. gr. laga nr. 24/2007 og 182. gr. laga nr. 82/1998.

XVIII. (007-2008-59892) Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 20. ágúst 2008, í félagi við Baldur Þór Guðmundsson kt. 000000-0000, tekið ófrjálsri hendi GSM-farsíma af tegundinni Sony Ericsson, af afgreiðsluborði verslunarinnar Optical Studio Sól í Smáralind í Kópavogi, en umræddur sími fannst í fórum ákærðu skömmu síðar.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XIX. (007-2008-60601) Fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 23. ágúst 2008, í félagi við Tinnu Jensdóttur, farið í leyfisleysi inn í íbúð að Engihjalla 9 í Kópavogi og notað til þess húslykla, sem stolið var frá Kristni Sæmundssyni íbúa að Engihjalla 9 fimmtudaginn 21. ágúst 2008, og stolið þaðan kr. 176.000 í íslenskri mynt, um kr. 80.000 í taílenskum peningaseðlum, demantshring að verðmæti kr. 192.000, armbands-skartgripum að verðmæti kr. 25.000, fjórum GSM-farsímum af tegundinni Nokia að verðmæti kr. 50.000, níu stykkjum af handtöskum af tegundinni Cucci, samtals að verðmæti kr. 57.000, myndavél af tegundinni Sony að verðmæti kr. 10.000, myndavél af tegundinni Kodak að verðmæti kr. 39.000 og þremur vegabréfum.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu er þess krafist fyrir hönd Vátryggingafélags Íslands hf., að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 312.026, auk vaxta samkvæmt 7. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá greiðsludegi bótanna, en síðan dráttarvaxta samkvæmt III. kafla vaxtalaga til greiðsludags.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar. Jafnframt að ákærða sæti sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.”

Af hálfu ákæruvalds hefur heimfærslu til refsiákvæðis í 1. tl. III. kafla ákærunnar verið breytt þannig að brotið er talið varða við 256. gr. almennra hegningarlaga.

Málavextir

Ákærða hefur skýlaust játað þau brot sem hún er saksótt fyrir.  Hefur hún orðið sek um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis.  Þykir refsing ákærðu vera hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Frá refsingunni ber að draga 84 daga gæsluvarðhald.

Dæma ber ákærðu til þess að greiða skaðabætur vegna brotanna ásamt vöxtum samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, eins og rakið er í dómsorðinu.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Hilmari Ingimundarsyni hrl., 180.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti, og greiða auk þess 453.055 krónur í annan sakarkostnað.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Björt Karlsdóttir, sæti fangelsi í 18 mánuði. Frá refsingunni dregst 84 daga gæsluvarðhald.

Ákærða greiðir skaðabætur ásamt almennum vöxtum skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu og ennfremur með dráttarvöxtum frá dómsuppsögu til greiðsludags, sem hér segir:

Gunnlaugi Jónssyni, 1.694 krónur, frá 16. janúar 2008, Töru Jensdóttur, 9.000 krónur, frá 19. janúar 2008, Kaupási hf., 25.205 krónur, frá 17. febrúar 2008, Hagkaupum hf., 1.748 krónur, frá 19. mars 2008, Kaupási hf. 1.846 krónur, frá 6. júní 2008, Vátryggingarfélagi Íslands hf. 312.026 krónur, frá 3. september 2008. Ákærða er svipt ökurétti í þrjú ár frá dómsbirtingu að telja.

Ákærða greiði verjanda sínum, Hilmari Ingimundarsyni hrl., 180.000 krónur í réttargæslu- og málsvarnarlaun og greiði jafnframt 453.055 krónur í annan sakarkostnað.

Pétur Guðgeirsson.